Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.2015, Side 21

Læknablaðið - 01.04.2015, Side 21
LÆKNAblaðið 2015/101 205 Netmeðferð við svefnleysi Netmeðferð Betri svefns byggist á hefðbundinni HAM-S.29 Net- meðferðin samanstóð af 6 vikulöngum meðferðarlotum með sál- fræðingi þar sem lögð var áhersla á fræðslu, atferli og hugsanir. Notast var við myndskeið og lykilatriði birtust samhliða á glæru- formi. Upplýsingar svefnskráningar færðust inn jafnóðum og þátttakendur gátu fylgst með árangri sínum á myndrænan hátt. Í fyrstu meðferðarlotu fór fram fræðsla um svefn, svefnleysi og fyrirkomulag meðferðarinnar. Fyrsta vika svefnskráningar var því án beinnar meðferðar og þar fékkst grunnlína svefnmunsturs. Þegar svefnskráningu fyrir fyrstu viku lauk, fengu þátttakendur einstaklingsbundnar leiðbeiningar í textaformi á heimasvæði sitt, allt eftir útreikningum svefnskráningar, um hvernig haga skyldi svefni næstu vikuna. Önnur meðferðarlota fjallaði um tímabundna svefnskerðingu og áreitisstjórnun. Fólk sem glímir við svefnvanda eyðir oft lengri tíma í rúminu en svefngeta bendir til. Af þeim sökum er tímabundin svefnskerðing notuð til að tak- marka þann tíma sem fólk ver í rúminu við tímann sem sofið er. Hvernig henni var háttað fór eftir svefnskráningu hvers og eins. Í upphafi hverrar viku fengu þátttakendur áætlaðan svefntíma fyrir komandi viku og réðst sá tími af meðalsvefntíma vikuna á undan. Lágmarkssvefntími fer þó aldrei undir 5 klukkustundir. Þegar 90% svefnnýting náðist, lengdist áætlaður svefntími um 15 mínútur í næstu meðferðarlotu, ef svefnnýting var 85-90% hélst áætlaður svefntími óbreyttur, en ef nýtingin fór undir 85% var hann styttur um 15 mínútur. Á þann hátt byggist svefnþörfin upp þegar svefninn er skertur og þannig næst samfelldari og dýpri svefn.29 Áreitisstjórnun er svo notuð til þess að tengja rúmið ein- göngu við svefn í stað andvökunótta og áhyggja.29 Áherslur þriðju meðferðarlotu voru á fræðslu um svefnumhverfi, mataræði, hreyf- ingu og svefn og í fjórðu lotu voru hugsanaskráning og slökun teknar fyrir. Yfirlit yfir góðar svefnvenjur var sett fram í fimmtu meðferðarlotu og fjallað var um svefnlyf. Í sjöttu og síðustu með- ferðarlotu voru meðal annars gefin ráð um hvernig best væri að halda árangrinum við og farið var yfir framtíðarmarkmið. Þátttakendur gátu fengið aðstoð meðan á meðferðinni stóð með því að senda fyrirspurnir á starfsmenn Betri svefns með tölvupósti eða ræða við þá og aðra þátttakendur á spjallborði. Allt efni vefsíðunnar er á íslensku. Úrvinnsla Notast var við tölfræðiforritið IBM SPSS Statistics 20 við úrvinnslu gagna. Lýsandi tölfræði var notuð til að fá yfirlit yfir einkenni þátttakenda. Óháð t-próf og kíkvaðrat próf voru notuð til að skoða mun á þeim sem luku meðferð og hinum sem gerðu það ekki. Pöruð t-próf voru gerð til að meta áhrif meðferðarinnar og línu- leg aðfallsgreining var notuð til að skoða hvort ákveðin einkenni þátttakenda segðu fyrir um árangur. Marktekt var miðuð við 5% marktektarmörk (p<0,05). Niðurstöður Alls luku 125 þátttakendur meðferð og skráðu upplýsingar um svefn sinn daglega meðan á meðferðinni stóð. Svefnvandi þátttakenda fyrir meðferð Áður en þátttakendur hófu meðferð svöruðu þeir spurningum um svefnvanda sinn, erfiðleika með að sofna annars vegar og hins vegar að vakna oft á næturnar og eiga þá erfitt með að sofna aftur (mynd 1). Þessi einkenni geta birst hvort fyrir sig en sam- kvæmt DSM-51 er algengast að þau birtist samtímis. Tæplega 17% þátttakenda upplifðu hvorugt þessara einkenna en svefnmynstur þeirra var oft óreglulegt og þeir höfðu tilhneigingu til að neyta meiri svefnlyfja en aðrir. Árangur þátttakenda eftir meðferð Í töflu II má sjá breytingar á svefni þátttakenda miðað við fyrstu og síðustu viku meðferðar og var munurinn marktækur á öllum breytum (p<0,0001). Tíminn sem tók að sofna styttist að meðaltali um 55% og vökutími á nóttu fór úr tæpum 50 mínútum í rúmar 23 mínútur og styttist því að meðaltali um 53%. Svefnnýting breyttist um 15% til batnaðar og heildarsvefntími þátttakenda í meðferð- inni styttist um 5%. Huglægt mat þátttakenda á svefngæðum og morgunþreytu breyttist marktækt til hins betra. Neysla svefnlyfja minnkaði umtalsvert á meðan meðferðinni stóð. Í upphafi tóku 62 þátttakendur (50%) að meðaltali 0,68 svefn- töflur á viku. Í lok meðferðar fækkaði þeim þátttakendum í 47, eða um 24%, og magn svefnlyfja minnkaði um 31%, úr 0,68 töflum að meðaltali á viku í 0,47, p<0,001. R A N N S Ó K N Mynd 1. Svefnvandi þátttakenda sem luku meðferð, við upphaf meðferðar (n=104). Tafla II. Breytingar á svefni þátttakenda í meðferð samkvæmt svefnskráningu, n=125. Svefnbreyta 1. vika meðferðar Meðaltal ± staðalfrávik 6. vika meðferðar Meðaltal ± staðalfrávik Breyting, % Tími sem tekur að sofna (mínútur) 33,3 ± 33,3 15,1 ± 14,8a 55 Vökutími eftir að hafa sofnað (mínútur) 49,5 ± 41,3 23,3 ± 14,2a 53 Vaknanir (fjöldi) 1,8 ± 1,2 1,0 ± 0,8a 45 Heildarvökutími (mínútur) 82,9 ± 61,2 38,4 ± 22,0a 54 Heildarsvefntími (klst.) 6,7 ± 1,0 6,4 ± 1,0a 5 Tími í rúmi (klst.) 8,1 ± 0,9 7,0 ± 1,0a 13 Svefnnýting (%) 76,2 ± 12,1 87,4 ± 6,9a 15 Svefngæði (stig)b 3,1 ± 0,7 3,7 ± 0,6a 18 Þreyta eftir svefn (stig)c 2,9 ± 0,8 3,3 ± 0,8a 16a aPöruð t-próf, p<0,0001 bStig á skalanum 1-5, 1=mjög slæm og 5=mjög góð c Stig á skalanum 1-5, 1=mjög þreytt(ur) og 5=vel úthvíld(ur) % 30 25 20 15 10 5 0 oft Stundum Lengur en 30 mínútur að sofna og vaknar á næturnar Lengur en 30 mínútur að sofna Vaknar á næturnar

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.