Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.2015, Side 27

Læknablaðið - 01.04.2015, Side 27
LÆKNAblaðið 2015/101 211 Á þessum vetri hefur verið til umfjöllunar á Alþingi „Frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, lögum um aukatekjur ríkissjóðs, áfengislögum og lögum um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum (smásala áfengis)“ sem Vilhjálmur Árnason og með- flutningsmenn lögðu fram snemma hausts 2014. Titill frumvarpsins er langur og flókinn en megininnihaldið er tiltölulega einfalt. Að fella úr gildi einkaleyfi Áfeng- is-og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) til smásölu á áfengi og færa hana þess í stað til smásöluverslana (matvöruverslana), með ákveðnum takmörkunum þó. Laga- frumvörp í þessa veru hafa oft á undan- förnum árum verið lögð fyrir Alþingi en aldrei náð fram að ganga. Á því kann að verða breyting á þessu vori. Ýmsar ástæður hafa verið færðar fram sem kallað gætu á breytt fyrirkomulag áfengissölu. Tvær ástæður heyrast tíðast nefndar: a) hátt verð á áfengi og b) slök þjónusta, meðal annars að opnunartími sé of stuttur og að langt sé á milli út- sölustaða. Það er staðreynd að hátt verð á áfengi hérlendis stafar ekki af hárri smá- söluálagningu ÁTVR heldur af almennri skattlagningu ríkisins og það mun ekki breytast við það að gefa smásölu áfengis frjálsa. Er léleg þjónusta ÁTVR (Vínbúð- anna) röksemd fyrir breyttu fyrirkomu- lagi? Nei, tæpast. Í landinu öllu eru nú 49 áfengisútsölur (einn ústölustaður á 6000 íbúa), 12 eru á höfuðborgarsvæðinu en 37 á landsbyggðinni. Þetta má því telja þétt- riðið net útsölustaða. Ekki er heldur hægt að halda því fram með réttu að þjónusta við viðskiptavini sé léleg. Áfengisbúðir víða um land eru opnar á laugardögum og á virkum dögum eru þær opnar fram á kvöld. Starfsfólk miðlar af þekkingu upp- lýsingum um ólíkar áfengistegundir til viðskiptavina, sé eftir því leitað. Og þótt greinarhöfundur minnist þess tíma þegar forsjárhyggja „stóra bróður“ var slík að útsölustöðum væri lokað fyrirvaralaust fyrir verslunarmannahelgi, 17. júní og aðra hátíðisdaga til að sporna við ótæpilegri drykkju landans er sá tími löngu liðinn. Röksemdir gegn rýmkun á áfengis- sölulöggjöfinni vega að mínu viti mun þyngra en þær sem kallað gætu á breyt- ingar. Það er á flestra vitorði að sé áfengis neytt í óhóflegu magni í langan tíma getur það haft skaðleg áhrif. Best þekkt eru líklega áhrifin á lifrarstarfsemi (fitulifur, skorpulifur og lifrarbólga), en líka má tína til skaða á vélinda, brisi, á heila- og taugastarfsemi, hjarta- og æðakerfi auk neikvæðra áhrifa á fósturþroska. Þar á ofan koma síðan margvísleg geðræn og félagsleg áhrif sem geta orðið svo mikil að líf fólks og fjölskyldna þeirra hreinlega leggst í rúst. Til að sporna við þessu eru víða um lönd í gildi ákveðnar takmarkanir á sölu áfengis, þótt með mismunandi hætti séu landa á milli. Hér á landi er slíkt gert með aldurstakmörkunum, verðstýringu og einkasölu ÁTVR á áfengi. Á Norðurlönd- unum er fyrirkomulag áfengissölu með mismunandi hætti. Í Danmörku er sala áfengis leyfð í matvöruverslunum, í Nor- egi er einungis heimilt að selja léttan bjór í matvörubúðum, en Svíar hafa Systembola- get sem eru ríkisreknar áfengiseinkasölur með líku sniði og við höfum hér á landi. Embætti landlæknis,1 Félag lýðheilsu- fræðinga, Barnaverndarstofa, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, Umboðs- maður barna og margir fleiri leggjast gegn þeim breytingum á áfengissölulöggjöfinni sem lagðar hafa verið til. Meginröksemdin er auðvitað að rýmkaðar reglur auki sýnileika áfengis og aðgengileika og það muni auka neyslu og þann skaða sem af drykkju hlýst. Landlæknir hefur nýlega birt samantekt á sænskri greiningu þar sem spáð var fyrir um það hverjar afleið- ingarnar yrðu ef einkasala sænska ríkis- ins á áfengi yrði afnumin.2 Niðurstaðan var afdráttarlaust sú að áfengistengdum dauðsföllum (slysum, sjálfsmorðum, morðum og svo framvegis) myndi fjölga og veikindafjarvistir vegna áfengisneyslu ykust sömuleiðis. Hver skyldi afstaða almennings hér á landi vera til breytinga á sölufyrir- komulagi áfengis? Fréttablaðið lagði fyrir skömmu könnun þessa efnis fyrir 800 manna úrtak. „Nei“ svöruðu 55% þegar spurt var „Finnst þér að heimila eigi sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum?“3 Þetta er afgerandi niðurstaða og styður alls ekki það að nauðsynlegt sé að breyta áfengissölu á þann hátt sem Vilhjálmur Árnasonar alþingismaður leggur til. Meirihluti almennings telur núverandi fyrirkomulag á áfengissölu vera full- nægjandi. Fyrirkomulag áfengissölu hér á landi er í öllum aðalatriðum gott – og almenningur virðist ekki hafa neinn sérstakan áhuga á breyta því. Skaðinn sem kann að hljótast af ótímabærum breytingum og auknu aðgengi kann hins vegar að verða umtals- verður. Það eru því engin skynsamleg rök sem mæla með því að breyta núna fyrir- komulagi sem gefist hefur vel og almenn sátt er um. Heimildir 1. Embætti landlæknis. Umsögn um 17. mál, frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis). http://www.althingi.is/altext/erindi/144/144-411. pdf - mars 2015 2. Embætti landlæknis. Spá um áhrif þess að einkasala ríkisins væri afnumin í Svíþjóð: If Retail Alcohol Sales in Sweden were Privatized, what would be the Potential Consequences? http://www.althingi.is/altext/ erindi/144/144-696.pdf - mars 2015. 3. Visir.is, 16. mars 2015. Meirihluti landsmanna andvígur bjór og léttvíni í matvöruverslunum. http://www.visir.is/ meirihluti-landsmanna-andvigur-bjor-og-lettvini-i-mat- voruverslunum/article/2015703169999 - mars 2015. Ú R P E n n a S T J Ó R n a R M a n n a l Í Áfengissölu í matvöruverslanir, nEI TAkk! Þorbjörn jónsson, formaður orri Þór ormarsson, varaformaður Magnús Baldvinsson, gjaldkeri Magdalena Ásgeirsdóttir ritari Arna Guðmundsdóttir Björn Gunnarsson Hildur Svavarsdóttir Tinna Harper Arnardóttir Þórarinn Ingólfsson Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands, ónæmislæknir og blóðgjafafræðingur thorbjorn@lis.is Stjórn lÍ 2015

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.