Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 33
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R LÆKNAblaðið 2015/101 217 fyrirmynd annarra þjóða um dugnað, sjálfstæði og vinnusemi. Haustið 2008 var nú staðan þannig að Landspítalinn átti ekki peninga til að borga út laun. Ég hef aldrei, hvorki fyrr né síðar, heyrt um ríkissjúkrahús á Vesturlöndum sem ekki hefur getað borgað út laun. Hvernig getur slíkt gerst? Það var upp úr því sem fyrstu drög að þessari sögu kviknuðu. Ég sat á flugvallarbar að bíða eftir vél heim til Ís- lands og byrjaði að hripa niður hugsanir Jóhannesar, þessa veika læknis sem veltist í lyfjamóki í sjúku samfélagi.“ Vorum viðtakendur ekki þátttakendur Kennsla í læknadeild hefur breyst mikið á undanförnum árum og Hlynur segir reynsluna af læknanáminu á níunda áratugnum hafa beint sér í nám í bók- menntum að því loknu. „Læknanámið sem ég fór í gegnum á sínum tíma var mjög sérstök reynsla. Kennsluformið var ótrúlega gamaldags, við sátum þarna og hlýddum á fyrirlestra, ekki var ætlast til þess að við spyrðum spurninga eða segðum yfirleitt nokkurn skapaðan hlut. Ég var orðinn afar þreyttur á þessu við útskrift úr læknadeildinni. Þá fór ég til New York og varði einu ári í meistaranám í enskum bókmenntum. Í því námi var þátttaka nemenda í tímum skylda og ég átti mjög erfitt til að byrja með þar sem ég gat hreinlega ekki sagt orð eftir að hafa þagað í 6 ár. Okkar samfélag var í rauninni gegnsýrt af þessari þögn. Við vorum viðtakendur en ekki þátt- takendur. Mín kynslóð var ekki þjálfuð í neins konar samræðu eða rökræðu. Kannski var það þess vegna að fór sem fór. Við treystum þeim sem fóru með völdin og sögðum ekkert.“ Viðurkenna ekki veikleika „Auk þess að skrifa þjóðfélagsádeilu lang- aði mig til að skrifa um veikan lækni,“ „Á ferli mínum hef ég starfað á meira en tug sjúkrahúsa í fjórum löndum. Sjúkrahúsið í sögunni er samnefnari þeirra allra og persónur sögunnar eru samsettar úr því fólki sem ég hef hitt, bæði í starfi mínu og annars staðar,“ segir Hlynur Níels Grímsson krabbameinslæknir og höfundur nýrrar skáldsögu, Krabbaveislunnar. Maður hættir heldur aldrei að vera læknir, það var mér kennt snemma í náminu. Þetta er hlut- skipti að bera, það var mér kennt snemma í náminu. Mitt hlutskipti. Minn heimur. Og spítalinn ER heimur út af fyrir sig. Heimur með fullt af reglum sem einu sinni gátu verið óskráðar en eru nú birtar samþykktar einróma af yfirstjórn framkvæmdastjórn ráðuneytisstjóra ráðherra og svo framvegis á vef spítalans mánaðarlega bara svona til að minna starfsmenn á. Hér má ekki, svona í hnotskurn, segja neitt mótmæla neinu hafa vonda skoðun eða einhverja skoðun yfirleitt maður á hreinlega ekki að kunna við svoleiðis því þá fellur maður í ónáð hjá yfirstjórn inni og er aldrei aftur litinn öðru auga en hornauganu og getur gleymt öllu því sem heitir stöðuhækk- un eða framgangur í starfi og ef maður segir samt eitthvað þrátt fyrir að hafa verið varaður við þá berst orðrómurinn ósjálfrátt út innan veggjanna að maður sé ákaflegur erfiður í samstarfi og svo framvegis alveg þangað til maður er orðinn óalandi og óferjandi og þá er þetta búið og skógarmannsævin bíður manns einhvers staðar verulega langt í burtu erlendis. þannig að ég hugsa bara. Með sjálfum mér. Það má. Hér eru hugsanir mínar. Um allt þetta. Allt það sem ekki má. Allt það sem ekki er hægt. Allt það sem ég get ekki sagt. Ég hugsa. Ég get það ennþá. Með hjálp lyfjanna. Ennþá. Krabbaveislan, 2015: 22

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.