Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 19

Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 19
María GuðMundsdóttir 5% 10% 15% Frjálsi 1 Frjálsi ÁhættaFrjálsi 2 Frjálsi 3 6,8% 9,2% 4,0% 8,1% 10,0% 4,2% 1,7% 6,9% Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5 -0 1 4 5 Margverðlaunaður lífeyrissjóður Frjálsi lífeyrissjóðurinn Frjálsi lífeyrissjóðurinn var á síðasta ári valinn besti lífeyrissjóður Evrópu í sínum stærðarflokki í samkeppni á vegum fagtímaritsins Investment Pension Europe. Sjóðurinn var einnig valinn besti lífeyrissjóður Evrópulanda með færri en eina milljón íbúa annað árið í röð. Á undanförnum árum hefur sjóðurinn hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun sem endurspegla sterka stöðu sjóðsins og árangur hans. Ef þú hefur frjálst val um hvar þú ávaxtar skyldulífeyrissparnaðinn þinn og vilt faglega stýringu þá er Frjálsi lífeyrissjóðurinn góður kostur. Jafnframt stendur öllum til boða að ávaxta viðbótar- lífeyrissparnað sinn hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum. Þú færð ítarlegar upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn í næsta útibúi Arion banka, á frjalsi.is, með því að senda fyrirspurn á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða í síma 444 7000. Nafnávöxtun 2014 5 ára meðalnafnávöxtun tímabilið 2009–2014 Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í framtíð. Fimm ára ávöxtunartölurnar sýna meðalnafnávöxtun fyrir tímabilið 2009–2014 en ávöxtunin er mismunandi á milli ára. Frekari upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn, þ.á.m. um ávöxtun hvers árs, reglur sjóðsins o.fl., má nálgast á frjalsi.is. fyrir,“ segir María sem er hvergi bangin. María hefur skrifað fjöldann allan af verkum, stórum sem smáum, fyrir Leikfélag Mosfells- bæjar og segir sögurnar vera af öllum gerðum. „Ég hef skrifað nokkur jólaleikrit fyrir börn, svo hef ég skrifað þrjú eða fjögur leikrit,“ segir hún. „Ég skrifaði Elvis- dagskrá, svo skrifaði ég Kántrý Mos í samvinnu við Þórunni Lárusdóttur og svo leikritið Franska kaffihúsið. Svo hef ég skrifað allskonar styttri örþætti fyrir hinar og þessar uppákomur,“ segir María. „Í vor ætla ég að læra að gera leik- gerðir hjá Símoni Birgis- syni og í mars ætlum við Agnes á spunanámskeið hjá Dóru Jóhannsdóttur, svo ég er bara bókuð á námskeið fram á vor,“ segir hún. „Við höfum báðar mjög gaman af þessu.“ María hefur leikið í fjöldanum öllum af sjón- varpsþáttum og leik- ritum og segist eigin- lega sjá eftir því að hafa ekki byrjað fyrr. „Það er nú allt í lagi að vera hjúkrunarfræðingur og það er ágætis vinna, en ég hugsa að ég hefði haft meira gaman af hinu og eiginlega sé eftir því að hafa ekki byrjað fyrr,“ segir María. „Ég vissi bara ekkert að ég gæti skrifað. Maður veit það ekki fyrr en maður byrjar. Ég var gjaldkeri leikfélagsins og tímdi ekki að borga fyrir leik- rit svo ég ákvað að skrifa það bara sjálf þegar það vantaði,“ segir María og hlær. „Það eru margir í minni fjölskyldu tengdir leikfélaginu og þetta er góður félagsskapur sem fylgir manni alla ævi,“ segir María. María lék síðast í Hreinum skildi með Steinda sem hún hefur oft leikið fyrir áður, enda bæði úr Mosfellsbænum. Henni finnst þó ekki allt fyndið sem hún hefur þurft að leika. „Sumt af þessu finnst mér mjög fyndið, segir María. Steindi gengur þó aldrei fram af mér. Það er þó einn þáttur sem ég lék í fyrir mörgum árum, skets sem nefnist Tussu- duft, sem var gerður fyrir þáttinn Konfekt og sýndur á Skjá einum, en hann var í umsjón Barða Jóhannssonar. Það fannst mér erfitt,“ segir María. „Ég fékk alveg hræðileg viðbrögð frá kollegum mínum í hjúkruninni. Þeim fannst þetta ekki passa fyrir virðulegan hjúkrunarfræðing,“ segir María. „Mér fannst þetta þó allt í lagi og það hafa margir gaman af þessu í dag.“ Þú ætlar samt ekki að taka uppistandið lengra? „Nei ég held að það sé einmannalegt djobb, en það er gaman og nauð- synlegt að prófa,“ segir María Guðmundsdóttir, leikkona og leikritahöf- undur. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Þorsteinn Guðmundsson leikari „María er frábær manneskja. Hún er í rauninni 16 ára stelpa föst í líkama eldri konu,“ segir Þorsteinn sem unnið hefur með Maríu. „Hún er ótrúlega opin, skapandi og þægileg í samvinnu. Hún var hjá mér á uppistands- námskeiði og þar var hún alveg frábær. Vel undirbúin og var með allt sitt efni úthugsað. Ég á í erfiðleikum með að finna eitthvað að hjá henni, því hún er alveg pottþétt í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur,“ segir Þor- steinn Guðmundsson, leikari og grínisti. Steindi grínisti „María er snillingur. Ég sá hana fyrst í Tussudufts sketsinum sem er það fyndnasta sem ég hef séð og mér finnst hún ein fyndnasta kona landsins,“ segir Steindi grínisti sem hefur unnið með Maríu í fjölda sjónvarps- þátta. „Hún er algjört náttúrutalent og við erum með sama húmorinn. Ég var samt oft með í maganum áður en ég sagði henni frá sumum atriðunum, því ég hélt að ég mundi ganga fram af henni, en henni fannst aldrei neitt vera eitthvert mál. Henni finnst best þegar einhverjir jafnaldrar hennar hneykslast á henni sem er frábær kostur. Ég geri ekkert í sjónvarpi nema hún taki þátt í því á ein- hvern hátt,“ segir Steindi. viðtal 19 Helgin 6.-8. febrúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.