Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 66
menningarkort.is
facebook.com/menningarkort
#menningarkort
#menningarkort
ÞINN AÐGANGUR
AÐ MENNINGARLÍFI BORGARINNAR
FÖST AFSLÁTTARKJÖR • FJÖLDI TILBOÐA • FJÖLMARGIR SAMSTARFSAÐILAR
50+
sýningar viðburðir
150+
söfn
14
Bor
gar
sög
usa
fn R
eyk
javí
kur
List
asa
fn R
eyk
javí
kur
Bor
gar
bók
asa
fn R
eyk
javí
kur
20% afsláttur
af verði Menningarkortsins
í tilefni af Safnanótt
Gildir á Safnanótt og um helgina
á söfnum Reykjavíkurborgar
6.2.2014 – 22.2.2015
Ertu
tilbúin,
frú forseti?
Are
you ready,
Madam
President?
6.2. - 31.5. 2015
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson
tískuhönnuðar
6.2.2014 – 22.2.2015
Ertu
tilbúin,
frú forseti?
Are
you ready,
Madam
President?
6.2. - 31.5. 2015
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson
tískuhönnuðar
6.2.2014 – 22.2.2015
Ertu
tilbúin,
frú forseti?
Are
you ready,
Madam
President?
6.2. - 31.5. 2015
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson
tískuhönnuðar
Sýningunni lýkur 22. febrúar
Leiðsagnir á sunnudögum kl. 14.
Fatnaður og fylgihlutir frá
forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur
www.honnunarsafn.is
V etrarhátíð er haldin á höfuðborgarsvæðinu og taka öll sex bæjarfélögin
þátt. Sundlauganótt og Safnanótt
eru meginstoðir hátíðarinnar
ásamt ljóslistaverkum sem lýsa upp
skammdegið á ævintýralegan hátt.
Meðal viðburða á Safnanótt í ár eru
fjölmargir áhugaverðir viðburðir.
Þar á meðal er opnun á sýning-
unni „Un peu plus – Teikningar og
skissur Helgu Björnsson tísku-
hönnuðar“ sem verður í Hönnunar-
safni Íslands í dag, föstudag. Helga
Björnsson starfaði um árabil við
hátískuna í tískuhúsi Louis Féraud
í París og hefur hannað búninga
fyrir íslensk leikhús. Teikningar
hennar og skissur bera næmum
listamanni vitni. Með örfáum
dráttum skapar hún glæsileika og
munúð. Ríkulegt hugarflug, ásamt
kröfunni að fara stöðugt fram úr
sjálfri sér, skapar teikningar sem í
einfaldleika sínum, afhjúpa vinnu
þess sem starfar eftir hröðum takti
tískunnar. Sýningin opnar klukkan
19.
Á morgun, laugardag, opnar
einnig í Hönnunarsafninu sýningin
Ertu tilbúin frú forseti. Í leiðsögn
þar verður lögð sérstök áhersla á
„orðið í fötunum“ og hvernig við
notum klæðnað til að tjá líðan eða
jafnvel pólitískar skoðanir. Stoppað
verður við nokkra klæðnaði á
sýningunni og varpað fram spurn-
ingum eða vangaveltum varðandi
hvaða skilaboð er hægt að lesa úr
þeim. Á sunnudag klukkan 14 mun
Vigdís Finnbogadóttir ganga með
gestum um sýninguna.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnar-
hús, Kjarvalsstaðir og Ásmundar-
safn – stendur fyrir margs konar
viðburðum á Safnanótt þar sem
myndlist og tónlist er blandað sam-
an á líflegan og skemmtilegan hátt.
Á Safnanótt standa alls sex sýn-
ingar listasafnsins opnar gestum
að kostnaðarlausu. Auk fjölbreyttra
sýninga verður boðið upp dagskrá
með listsmiðju og leiðsögnum á
ensku og pólsku.
Stærsti viðburður Listasafns
Reykjavíkur á Safnanótt er án efa
opnun sýningarinnar Nýmálað 1 í
Hafnarhúsi, sem er yfirlitssýning
um stöðu málverksins á Íslandi.
Opnunin stendur frá klukkan 20 en
efnt verður til heljarinnar veislu þar
sem plötusnúðurinn Krystal Carma
(Arnljótur Sigurðsson úr Ojba
Rasta) mun halda uppi fjörinu frá
klukkan 20.30 til miðnættis.
Á Kjarvalsstöðum heldur Tríó
Reykjavíkur kvöldtónleika og boðið
verður upp á námskeið í listmálun
undir leiðsögn myndlistarmanns-
ins Þorvaldar Jónssonar. Þá verður
boðið upp á leiðsögn um sýningar
Einars Hákonarsonar og Kjarvals
á pólsku.
Í Ásmundarsafni ætlar Duo
Harpverk að flytja ný tónverk fyrir
hörpu og slagverk auk þess sem
listamaðurinn Kathy Clark segir
frá verki sínu á samsýningunni A
posteriori: Hús, Höggmynd.
Af nógu verður að taka á þessum
dimmu vetrardögum þar sem
magnað myrkur fær að njóta sín
í Reykjavík og nágrannasveitar-
félögum. Allir viðburðir hátíðarinn-
ar eru gestum að kostnaðarlausu
og er þar með séð til þess að allir
íbúar höfuðborgarsvæðisins geti
notið kraftmikils menningarlífs og
góðrar samveru yfir alla hátíðina.
Dagskránna má finna á www.vetr-
arhatid.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Vetrarhátíð Öll bæjarfélÖg á fÖfuðborgarsVæðinu taka þátt
Magnað myrkur
á Vetrarhátíð
Sundlauganótt verður á sínum stað á
Vetrarhátíð 2015. Ljósmynd/Vetrarhátíð
Vetrarhátíð, hátíð ljóss og myrkurs, hófst í gærkvöld, fimmtu-
dag og stengur fram á sunnudag, 8. febrúar. Hún er nú haldin í
tólfta sinn. Á henni fær magnað myrkur að njóta sín en hátíðin
verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna, safna og
sundlauga taka þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.
66 menning Helgin 6.-8. febrúar 2015