Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 50
50 heilsa Helgin 6.-8. febrúar 2015
Svefn Góð ráð til að bæta Svefnvenjur barna
Órólegur svefn barna
hefur áhrif á námsgetu
fullnæGjandi Svefn veitir barninu eftirfarandi atriði
Jákvæð orka
Þegar við sofum er líkaminn
að hvílast og safna upp orku.
Eftir fullan nætursvefn er
líkaminn tilbúinn til þess að
takast á við verkefni dagsins
og jafnvel frístundir og
íþróttir að skóla loknum. Börn
sem sofa illa upplifa streitu og
vanlíðan og eru þannig síður
í stakk búin til að takast á við
daginn. Svefnleysi ýfir upp
tilfinningar á borð við reiði,
depurð og eirðarleysi.
Athygli og námsgleði
Minnið styrkist þegar heilinn
hefur fengið næga hvíld yfir
nóttina. Rannsóknir sýna að
svefnleysi hefur sterk áhrif á
minnisgetu og þar með náms-
getu. Úthvíldur heili hefur
áhuga á að tileinka sér nýjar
upplýsingar á meðan að óró-
legur og svefnlaus heili þolir
utanaðkomandi áreiti illa.
Sköpunargleði
Eftir fullan nætursvefn er
viðkomandi betur í stakk
búinn til þess að taka þátt í
skapandi verkefnum á meðan
að illa sofinn einstaklingur
upplifir oft á tíðum áhuga-
leysi.
Kjörþyngd og heilsa
Rannsóknir sýna að unglingar
sem sofa illa og lítið sækjast í
sykur og kolvetni í ríkari mæli
til þess að bæta fyrir orku-
tapið. Við langvarandi ójafn-
vægi af þessu tagi geta efna-
skiptasjúkdómar og sykursýki
þróast hjá viðkomandi.
BENECOS DAGAR
Í HEILSUHÚSINU
5. - 9. febrúar
Glæsilegar náttúrulegar snyrtivörur!
BENECOS – náttúruleg fegurð
Lífrænt vottaðar snyrtivörur þurfa ekki að vera dýrari!
Benecos eru frábærar lífrænar snyrtivörur á enn betra verði.
Benecos förðunarfræðingur verður í Heilsuhúsinu
í Kringlunni föstudag kl. 14 – 17 og laugardag kl. 13-16.
Lífrænt vottað
Ótrúlegt verð
Án parabena
20%
Nokkur ráð til þess að bæta svefninn
Forðastu máltíðir rétt fyrir svefn
Best er að 2-3 klukkutímar séu liðnir frá
síðustu máltíð þegar að barnið á að fara
að sofa. Þá er álagið á meltingarkerfinu
minna og líkurnar á bakflæði eða öðrum
óþægindum litlar.
Veltu milt mataræði
Viðkvæmir einstaklingar bregðast við
mataræði á mismunandi hátt. Kolvetni
sem dæmi breytast í glúkósa og þar með
orku í meltingarferlinu. Því getur of mikið
af kolvetnum fyrir svefn haft örvandi
áhrif á heilann. Sumir bregðast illa við
ákveðnum fæðutegundum eins og lauk,
papriku, sterkum eða krydduðum mat
sem ertir meltingarfærin og þar með
taugakerfið. Þetta veldur óróleika sem
getur átt þátt í að trufla nætursvefninn.
Athugaðu fæðuóþol
Glútein- og mjólkuróþol er orðið nokkuð
algengt í dag en þó þjást margir af
fæðuóþoli án þess að vita af því. Óþol
af þessu tagi getur oft verið lúmskt og
erfitt er að greina það með hefðbundnum
blóðprufum. Óþol hefur ertandi áhrif
á líkamann og hann hvílist síður undir
stöðugu áreiti.
Kalt kamillute fyrir svefn
Kamillujurtin er þekkt fyrir þá eiginleika
að hafa róandi áhrif á líkamann. Útbúðu
te úr lífrænum blómum sem fást í heilsu-
búðum og láttu það kólna. Gefðu barninu
teið hálftíma fyrir svefn. Í heilsubúðum
og jurtaapótekum má finna margvísleg te
sem talin eru hafa róandi áhrif.
Róandi tónlist
Sum börn eiga auðveldara með að festa
svefn við róandi hugleiðslutónlist, sjávar-
hljóð eða lækjarnið. Hægt er að nálgast
fjölbreytt efni á vefnum youtube sem
dæmi.
Gott loft
Rýmið sem barnið sefur í þarf að
vera notalegt og loftið hreint og gott.
Lavenderjurtin gefur af sér mjúkan og
vellyktandi ilm sem talinn er hafa róandi
áhrif. Það getur verið gagnlegt að spreyja
loftið með nokkrum dropum af ilmkjarna-
olíu úr lavender í vatni. Heilinn lærir með
tímanum að tengja lyktina við svefn sem
hjálpar líkamanum að slaka betur á.
Lestur fyrir svefn
Mörg börn upplifa að samverutíminn með
foreldrunum er ófullnægjandi þegar á að
fara að sofa. Að slökkva á snjallsímanum
og gefa sér góðan hálftíma með barninu
fyrir svefn, þar sem það fær óskipta at-
hygli yfir bókalestri, getur hjálpað barninu
að sofna betur að lestri loknum. Snjall-
síma og spjaldtölvur ætti aldrei að nota
fyrir svefn þar sem birtan frá skjánum
hefur örvandi áhrif á augu og heila.
Rútína og öryggi
Gott er að venja barnið á að fara
upp í rúm á sama tíma á hverju
kvöldi. Kvöldrútína getur falið í sér
að barnið fari í bað, bursti tennur
og fari síðan upp í rúm að lesa
bók með foreldri. Rútínan hjálpar
barninu að búa sig undir svefninn.
Bangsar og sérstakir næturlampar
geta hjálpað barninu að upplifa
öryggi.
Þ egar kemur að nætursvefni skiptir bæði lengd svefnsins máli og hversu vel við-komandi nær að hvílast á meðan á svefni
stendur.
Rannsóknir sýna að gæði svefnsins hafa bein
áhrif á námsgetu viðkomandi. Því getur verið
kostur að aðstoða barnið við að fá sem besta hvíld
til þess að geta tekist á við daginn með fullri at-
hygli og hæfni til náms.
Talið er að leikskólabörn þurfi á bilinu 10-
12 klukkutímasvefn. Grunnskólabörn þurfa að
meðaltali 9-10 klukkutíma svefn. Hormónabreyt-
ingum fylgir oft aukin svefnþörf og því eykst
jafnvel svefntími unglinga á ákveðnu tímabili.
Heimildir:
http://www.ncbi.
nlm.nih.gov/
pubmed/21075236
www.health.com
http://healthysleep.
med.harvard.edu/
Betra blóðflæði
betri heilsa
Fæst í Apótekum
og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf
Vegna stóraukinnar sölu hefur Neogenis lab
lækkað verðið svo um munar
lækka
ð verð
Rauðrófu kristall
100% náttúrulegt ofurfæði
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa