Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 68
Í takt við tÍmann marÍa ÓlafsdÓttir
Söngfugl sem smakkar ekki vín
María Ólafsdóttir er 22 ára Húnvetningur sem ólst upp í Mosfellsbæ. Hún er að læra að
kenna tónlist, leiklist og dans í Kennaraháskólanum og stefnir á leiklistarnám í fram-
tíðinni, annað hvort hér heima eða úti í löndum. María syngur lagið Lítil skref í Söngva-
keppni Sjónvarpsins á laugardagskvöld. Lagið er eftir strákana í Stop Wait Go en María
kynntist þeim þegar þeir sáu um tónlistina í söngleik í Versló.
Staðalbúnaður
Ég geng mikið í gallabuxum og víðum
peysum en annars er ég eiginlega alæta á
föt, ég kaupi bara það sem mér finnst flott.
Ætli uppáhalds búðin sé ekki Zara, ég er
einmitt að vinna þar.
Hugbúnaður
Mér finnst mjög gaman að fara í
leikhús og á tónleika. Svo reyni
ég að vera mikið með vinum
og fjölskyldu. Ég drekk
ekki og er þar af leiðandi
ekki mikið á djamminu
en það er samt alltaf
gaman að fara út og
hitta vinina. Ég
æfi í World Class
og reyni að
fara þangað á
hverjum degi.
Svo horfi
ég á týpíska
stelpuþætti
á netinu eins
og Desperate Housewives og Friends. Ég hef verið
að syngja og leika síðan ég man eftir mér, aðallega
í leikhúsunum. Síðast lék ég í Ronju ræningjadóttur
í leikfélaginu í Mosó.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone og Apple-tölvu. Ég nota símann
mest fyrir Facebook, Snapchat og Instagram og er
mjög dugleg að taka myndir. Ég er nokkuð virk á
samfélagsmiðlunum en ég er kannski ekki mikið
fyrir að tala um sjálfa mig þar, nema þegar eitthvað
merkilegt er í gangi.
Aukabúnaður
Ég hef gaman af því að elda og prófa eitthvað nýtt í
eldhúsinu. Ég er til dæmis mjög góð í að elda Dori-
tos-kjúklingarétt, ég dýrka hann. Ég borða líka
stundum úti og Saffran og Serrano eru í uppáhaldi
núna. Ég bý í Mosfellsbæ og á því bíl, silfurlitaðan
Polo, 2007 árgerð. Eina ferðalagið sem er planað
hjá mér á næstunni er til London. Þar ætla ég að
fara í prufur fyrir leiklistarskóla í vor. Af uppá-
haldsstöðum mínum má nefna Ítalíu, til að mynda
Feneyjar, og Akureyri. Ég dýrka Akureyri og fer
þangað helst á hverju ári.
Ljósmynd/Hari
FORRÉTTUR,
AÐALRÉTTUR
OG EFTIRRÉTTUR
Oyama spilar á Húrra á laugardagskvöld.
tÓnleikar Oyama Og tilbury á Húrra
Koma fersk frá Japan
Hljómsveitin Oyama heldur tón-
leika á skemmtistaðnum Húrra á
laugardagskvöldið. Oyama hefur
ekki verið iðin við tónleikahald hér
heima en fór á dögunum til Japan þar
sem sveitin hélt ferna tónleika. „Við
erum búin að vera með samning við
Imperial Records í Japan síðan 2012
og platan okkar Coolboy, sem kom
út fyrir jólin, kom líka út þar á sama
tíma,“ segir Úlfur Alexander Einars-
son einn meðlima Oyama.
„Við spiluðum á fernum tónleikum
og voru viðtökurnar mjög góðar. Það
er stór „underground sena“ í Japan.
Á tónleikunum á Húrra kemur einn-
ig fram hljómsveitin Tilbury. Við
ætlum að spila meira heima á árinu
og erum að koma okkur í spilagír.
Einnig erum við farin að vinna að
nýju efni og fram undan er að gera
músíkvídeó og svo er platan Coolboy
að koma út á vínyl. Svo það er nóg
fram undan,“ segir Úlfur.
Oyama er tilnefnd til Íslensku tón-
listarverðlaunanna í ár fyrir lagið
Siblings og fékk plata hljómsveitar-
innar einróma lof gagnrýnenda fyrir
síðustu jól.
Tónleikarnir á Húrra hefjast
klukkan 21 og er aðgangseyrir 1500
krónur. -hf
68 dægurmál Helgin 6.-8. febrúar 2015