Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 38
38 bílar Helgin 6.-8. febrúar 2015
ReynsluakstuR skoda yeti outdooR
Algjör jarðýta
Fyrsti Skodinn með bakkmyndavél
Skoda Yeti er lipur og mjög þægilegur í akstri
og hann er líka einn af þessum
bílum sem er algjörlega laus við
alla óþarfa takka og stæla að inn-
an, sem gerir hann auðveldan og
þægilegan í notkun. Þar að auki
er Skoda Yeti með óvenju lágan
kolvetnisútblástur miðað við
bensínbíl og eyðslan er með því
minnsta sem gerist. Og enn einn
kosturinn, allavega fyrir þá sem
hafa aldrei lært almennilega að
bakka, þá er þetta fyrsti Skodinn
með bakkmyndavél.
Fjölbreytt sætaval
Annar helsti kostur þessa bíls er hversu rúm-
góður hann er. Farangursrýmið er helmingi
stærra að innan en það lítur út fyrir að vera að
utan og farþegarýmið er vel rúmt,
bæði fram og aftur í. Reyndar hef
ég aldrei séð jafn marga möguleika
á sætafyrirkomulagi aftur í og í
þessum bíl, en það eru alls tutt-
ugu mismunandi valmöguleikar á
sætaskipan og auk þess er hægt að
taka út miðjusætið og búa þannig
til enn meira rými. Þetta er frábær
bíll fyrir fólk sem er mikið á ferð-
inni, inn og út úr borginni með
mismikið af farangri og börnum
hverju sinni.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
É g verð að viðurkenna að mér fannst þessi Skoda-týpa dáldið skrítin í útliti við
fyrstu sýn. En um leið og ég settist
undir stýri og keyrði út í ömurlega
færðina snerist mér hugur. Þessi
smágerði og lítilláti sendiferðalegi
bíll reyndist vera algjör himna-
sending í sköflunum og slabbinu
sem hékk á götum borgarinnar
.. Það má eiginlega líkja honum
við litla jarðýtu svo vel gekk mér
að keyra yfir skafla og illa troðin
stæði. Við venjulegar aðstæður er
bíllinn með framdrifi en við erfið-
ari aðstæður skiptir hann sjálfur
yfir í aldrif án þess að þú takir eftir
því. Ef þú vilt svo enn meira drif
er hægt að ýta á Off-road takka á
mælaborðinu.
Skoda Yeti Outdoor kemur kannski á óvart við fyrstu sýn en
um leið og þú kynnist honum betur er auðvelt að kolfalla fyrir
honum. Í ömurlegri færð síðustu daga hefur hann reynst eins
og lítil jarðýta. Þetta er frábær bíll fyrir alla sem vilja rúmgóða
innanbæjarbíla sem komast líka leiðar sinnar utan borgarinnar.
Skoda Yeti
Outdoor er bíll
sem leynir á
sér. Hann mjög
þægilegur í
keyrslu, lipur og
léttur í stýri en
drífur yfir hvaða
skafla sem er.
Ljósmynd/Hari
Reyndar
hef ég
aldrei séð
jafn marga
möguleika
á sætafyr-
irkomulagi
aftur í og
í þessum
bíl ...
Fáðu meira
út úr Fríinu
gerðu verðsamanburð á hótelum og bílaleigubílum á túristi.is
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert ú að huga
að dreifingu?
Eyðsla 5l./100 km
Farangursrými 510 l.
CO2 132 g/km.
Bakkmyndavél
Rafstýrt drif á öllum
hjólum
Varioflex aftursætakerfi
skoda yeti