Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 6

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 6
6 P I S T I L L M Á N A Ð A R I N S Binni í Vinnslustöðinni í Vestmanna- eyjum nefndi það í desemberblaði Ægis að þrátt fyrir að reksturinn hafi gengið vel á síðasta ári væru blikur á lofti. Þetta kann að hafa komið nokk- uð á óvart þegar höfð er í huga mjög góð rekstrarafkoma Vinnslustöðvar- innar og margra fleiri sjávarútvegsfyr- irtækja á síðasta ári. En þegar betur er að gáð eiga áhyggjur Binna sér eðli- legar skýringar og núna í upphafi árs- ins eru þær betur að koma í ljós. Sjáv- arútvegurinn er almennt svo háður gengisskráningu íslensku krónunnar að þegar þar verða umtalsverð frávik koma þau strax fram í afkomu sjávar- útvegsfyrirtækja. Og í þeim efnum eru blikur á lofti um þessar mundir. Ég heyrði stjórnanda eins af stærri sjávarútvegsfyrirtækjum landsins segja á dögunum að í raun væri ís- lenska krónan um 20% of sterk og það væri fljótt að koma fram í afkomu sjávarútvegsins. Vitlaust skráð króna gagnvart er- lendum myntum hefur keðjuverkandi áhrif. Um leið og afkoma sjávarút- vegsfyrirtækjanna veikist, minnka möguleikar þeirra til fjárfestinga og þar með til atvinnusköpunar. Þetta er eflaust ein af helstu skýringunum á því að atvinnumarkaðskönnun í des- ember leiddi í ljós að sjávarútvegsfyr- irtæki gerðu ráð fyrir að fækka fólki á þessu ári en ekki fjölga. Stórhuga í þorskeldinu Í þessu tölublaði kemur fram í viðtali við Ólaf Halldórsson, fyrrum fram- kvæmdastjóra Fiskeldis Eyjafjarðar, sem nú stýrir fiskeldisfyrirtæki í Nor- egi, að þar hafi menn uppi stór áform um þorskeldi í framtíðinni. Troms Marine Yngel, fyrirtækið sem Ólafur stýrir, ætlar að einbeita sér að seiða- framleiðslunni og í byggingu er risa- stór seiðastöð sem verður tekin í notk- un síðar á þessu ári. Athyglisvert er að opinberir aðilar í Noregi styðja vel við bakið á fiskeldisfyrirtækjunum við uppbyggingu þorskeldisins, litið er svo á að hér sé um að ræða viðamikið þróunarverkefni sem vonir eru bundn- ar við í framtíðinni. Við Íslendingar vinnum að þorsk- eldisverkefni þar sem kannaðir eru all- ir fletir á þorskeldinu. Alltof snemmt er að segja til um til hvers verkefnið leiðir, en það er allrar athygli vert. En stóra málið er vitaskuld það að til þess að mæta aukinni spurn eftir hvítfiski á okkar helstu mörkuðum þarf til að koma eldi. Veiðar á villtum fiski munu ekki aukast frá því sem nú er, um það eru flestir sammála. Þvert á móti mun væntanlega draga úr veið- um á villtum fiski. Til þess að við- halda markaðnum þarf að halda uppi framboðinu á fiskinum. Annars er stór hætta á því að neytendur snúi sér að öðrum tegundum matvæla og það er gömul saga og ný að erfitt kann að vera að venja neytendur aftur á að borða fisk hafi þeir snúið sér að öðrum matvælategundum. Leitað í þekkingarskjóðu Norð- manna Óhætt er að fullyrða að Norðmenn eru risar í fiskeldi í heiminum og fáir slá þeim við í kunnáttu í eldi. Nú um stundir er reyndar dálítil brekka í norsku laxeldi vegna verðlækkana á mörkuðum, en því er spáð að verð á laxinum nái aftur jafnvægi. Við Ís- lendingar erum óneitanlega að taka stærri skref í fiskeldi en áður hafa þekkst. Stór fyrirtæki eins og Sam- herji og Síldarvinnslan hafa staðið í fararbroddi í að byggja upp laxeldi fyrir austan og einnig hefur uppbygg- ingin verið hröð hjá Íslandslaxi í Grindavík og Silfurstjörnunni í Öxar- firði. Það kom því ekki mjög á óvart þegar Samherji tilkynnti fyrir nokkrum vikum að fyrirtækið hafi keypt hlut í norskum eldisrisa, sem er Fjord Seafood - þriðja stærsta fyrir- tæki í laxeldi í heiminum. Ein af helstu ástæðum viðskiptanna er sú að með þessu móti fær Samherji aðgang að mikilli þekkingu í fiskeldi. Þó svo að aðstæður séu um margt öðruvísi á Íslandi en í Noregi eru helstu lögmál- in í laxeldinu þau sömu og því nýtist þekking og reynsla Norðmanna í eldi og markaðsmálum hérlendu fiskeldi að fullu. Með í kaupunum fylgir líka það ákvæði að Fjord Seafood hefur rétt til kaupa á allt að helmingi fiskeldis- starfsemi Samherja. Það er enginn vafi að það hlýtur að vera hérlendu fiskeldi ákveðinn styrkur að fá inn þekkingu þeirra sem lengi hafa starfað í grein- inni og tekist á við bæði niðursveiflur og uppsveiflur. Fiskeldi er hins vegar afar viðkvæm atvinnugrein, það hafa dæmin sannað, og því er eðlilegt að menn taki varfærnisleg skref. Eins og í svo mörgu öðru er sígandi lukka best í þessum efnum. Sterk króna og fiskeldið Pistil mánaðarins skrifar Óskar Þór Halldórsson, blaðamaður

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.