Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 47

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 47
47 Öflugur „infrastrúktúr“ Þróun í þorskeldi er í fullum gangi hér á landi eins og í Nor- egi. Norðmenn eru þó greinilega komnir töluvert lengra í þessu ferli en Íslendingar sem sést best á því að í Noregi voru á síðasta ári framleidd hátt í þrjár milljón- ir seiða samanborið við nokkur þúsund seiði á vegum Hafró í Grindavík. Þarna er ekki saman að jafna. Reynsla Norðmanna í marga undanfarna áratugi af öfl- ugu fiskeldi mun einnig nýtast þeim vel í uppbyggingu þorsk- eldisins þar í landi. „Það er ekki hægt að líkja umhverfinu í fisk- eldinu hér í Noregi saman við það sem við þekkjum heima á Ís- landi. „Hér er allur „infrastrúktúr“ í þessari grein mun þróaðri en heima, ekki síst þegar kemur að matfiskeldinu. Ég hef trú á því að hér geti menn fljótlega leyst ákveðin vandamál við seiðaeldið og síðan tekur mat- fiskeldið við, þar sem Norðmenn eru á heimavelli, svo fremi sem markaðsaðstæður fyrir þorskinn verði viðunandi,“ segir Ólafur. Þorskurinn tegund framtíðarinnar? Mikil umræða er þessa mánuðina í norskum fjölmiðlum um þorsk- eldið, margir eru á þeirri skoðun að þorskurinn sé sú tegund sem Norðmenn eigi og komi til með að leggja áherslu á næstu árin. „Það gengur illa í hefðbundnum sjávarútvegi í Noregi eins og er og á síðasta ári fékkst frekar lágt verð fyrir laxinn. Þetta kann að hafa einhver neikvæð áhrif í þess- ari uppbyggingu í þorskeldinu, en ég get ekki merkt að það sé að finna neinn bilbug á mönnum,“ segir Ólafur, sem var ráðinn til að byrja með til eins árs sem fram- kvæmdastjóri Troms Marine. Hann segist kunna vel við sig í þessu starfi, með byggingu hinn- ar nýju stöðvar gjörbreytist að- stæður til hins betra og margt mjög áhugavert sé framundan í uppbyggingu fyrirtækisins. Kann vel við sig í Tromsö Ólafur segist kunna því ágætlega að búa í Tromsö, þrátt fyrir að dagsbirtan sé þar heldur skamm- vinn á þessum tíma árs, enda er Tromsö langt fyrir norðan Ísland. „Hér er staðviðrasamt, það snjóar í logni með froststillum. Þetta er prýðisgott vetrarveður.“ Umhverfi í Tromsö til þess að byggja upp nýjan atvinnuveg í fiskeldi sem þorskseiðaeldi vissu- lega er, segir Ólafur að sé mjög gott. Í borginni er eins og kunn- ugt er öflugur sjávarútvegsháskóli og sömuleiðis er norska hafrann- sóknastofnunin með öfluga starf- semi þar. Það eru því hæg heima- tökin að eiga gott samstarf við vísindamenn sem þarna vinna. „Þetta er auðvitað mjög stórt og spennandi verkefni,“ segir Ólafur. 5-6 þúsund tonn af eldis- þorski eftir tvö ár Með því að leika sér með tölur má skjóta á að þrjár milljónir þorskseiða á þessu ári geti gefið af sér um 9 þúsund tonn eftir tvö ár. Talan verður þó vart hærri en 5-6 þúsund tonn, miðað við eðlileg afföll. Engu að síður er þetta nokkuð öflug byrjun hjá Norð- mönnum og menn eru bjartsýnir á að þeir nái ágætis tökum á seiðaframleiðslunni fyrr en síðar, sem aftur er grunnurinn að öfl- ugu matfiskeldi í framtíðinni. Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Troms Marine Yngel í Noregi. „Það er ekki hægt að líkja umhverfinu í fiskeldinu hér í Noregi saman við það sem við þekkjum heima á Íslandi. „Hér er allur „infrastrúktúr“ í þessari grein mun þróaðri en heima.“

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.