Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 20

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 20
20 S TA R F S F R Æ Ð S L A O G E N D U R M E N N T U N Að treysta stöðu sjómanna á vinnumarkaði Í samkomulagi sjómannasamtak- anna og vinnuveitenda er mark- miðinu með Sjómennt lýst með þessum orðum: „Að treysta stöðu sjómanna á vinnumarkaði með því að gefa þeim kost á að efla og endurnýja þekkingu sína og gera þá hæfari til að takast á við ný og breytt verkefni. Með starfsmennt- un er einkum átt við eftir- og sí- menntun sjómanna til að auka hæfni þeirra til að sinna nýjum og breyttum störfum um borð í fiskiskipum.“ Komið í fullan gang Hólmgeir Jónsson hjá Sjómanna- sambandinu segir að á undanförn- um mánuðum hafi verið unnið að því að skipuleggja ýmiskonar námskeiðahald innan Sjómenntar og hann á von á því að átakið verði komið nokkuð vel af stað þegar líður á þetta ár. Sjómennt er stýrt af sex manna verkefnis- stjórn þar sem tveir fulltrúar koma frá Samtökum atvinnulífs- ins, þrír frá verkalýðsfélögunum og einn er fulltrúi félagsmálaráð- herra. Hlutverk þessarar verkefn- isstjórnar er að halda utan um endurmenntunarátakið, þ.e. að hafa frumkvæði að þróunarverk- efnum í starfsmenntun, kanna þörfina fyrir starfsmenntun í stétt sjómanna, styrkja nýjungar í námsefnisgerð og að endurskoða námsefni, styrkja rekstur ein- stakra námskeiða og veita ein- staklingum og útgerðum styrki vegna starfsmenntunar. Hólmgeir Jónsson segir að heildarfjármögnun verkefnisins sé 45 milljónir króna, en þessir fjár- munir eru tryggðir úr Atvinnu- leysistryggingasjóði með sam- bærilegum hætti og starfs- menntaverkefni Starfsafls og Landsmenntar, sem eru verkefni sem miða að því að gera átak í starfsfræðslumálum ófaglærðra. Starfsfræðsluátakið Sjómennt er hafið: Gott tækifæri fyrir sjómenn að sækja sér endurmenntun „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga sjó- manna á endur- og símenntun og ég á von á því að þeir muni nýta sér þau námskeið sem eru og verða í boði,“ segir Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Ís- lands, um símenntunarátakið Starfsmenntun sjómanna - Sjómennt, sem hófst á síðasta ári með samkomulagi Sjómannasambandsins, Samtaka atvinnulífsins og Landssambands ís- lenskra útvegsmanna. „Það getur auðvitað verið snúið fyrir sjómenn að sækja kvöldnámskeið og því hef ég viljað leggja áherslu á að í þessu sambandi sé einnig hugað vel að möguleikanum á fjarvinnslu,“ segir Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.