Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 26

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 26
26 F I S K A R St. 534, Suðausturdjúp (61°39´N, 13°54´V), 1640-1648 m Mjóhali, Coryphaenoides brevibarbis, 24 cm heildarlengd. Aurláki, Lycodonus flagellicauda, 2 stk. 7,5 og 15 cm. Þessir fiskar fengust í s.k. RP sleða. Af öðrum athyglisverðum fiskum sem bárust má nefna gísla- háf, Apristurus laurussonii, jensensháf, Galeus murinus, rauðháf, Centrophorus squamosus, djúpál, Synaphobranchus kaupi, ál- snípu, Nemichthys scolopaceus, trjónuál, Serrivomer beani, ber- haus, Alepocephalus agassizii, bersnata, Xenodermichthys copei, digra geirsíli, Magnisuidis atlantica, langhalabróður, Trachyr- inchus murrayi, ingólfshala, Coryphaenoides guentheri, fjól- umóra, Antimora rostrata, bjúgtanna, Anoplogaster cornuta og stinglax, Aphanopus carbo. Þá bárust einnig nokkrir óvenju stórir fiskar einstakra teg- unda þ.á.m. var 160 cm þorskhrygna sem reyndist 29 kg á þyngd óslægð og 18 ára gömul. Hún veiddist á 128-238 m dýpi í Kolluál (65°02´N, 23°39´V) í júní . Í febrúar veiddist 106 cm ýsuhrygna í Reykjanesröst. Ýsan var 12 kg óslægð og 11 ára gömul. Þetta mun vera þriðja stærsta ýsa sem veiðist á Íslands- miðum. Sú stærsta veiddist í maí árið 1927 einhversstaðar und- an Suðurlandi á milli Ingólfshöfða og Dyrhólaeyjar og mældist 112 cm löng, 16,8 kg á þyngd slægð og var 13 eða 14 ára göm- ul og er hún talin vera stærsta ýsa sem veiðst hefur. Næst stærsta ýsa á Íslandsmiðum veiddist út af Arnarfirði í janúar árið 1991 og var hún 109 cm og 8,45 kg slægð. Hún var 14 ára gömul. Í desember veiddist 47 cm sandkoli við Garðskaga. Hann var 1,3 kg á þyngd, 10 ára hrygna. Þakkir eru færðar öllum þeim sem fært hafa okkur fiska til rannsókna og veit hafa upplýsingar um þá og viljum við sérstak- lega þakka Magnúsi Þorsteinssyni og skipstjóra og áhöfn togar- ans Snorra Sturlusonar VE svo og skipstjóra og áhöfn Farsæls GK og Þorgeiri Baldurssyni og skipstjóra og áhöfn togarans Sléttbaks EA. Einnig Magnúsi Jóhannssyni, Veiðimálastofnun á Selfossi. Helstu heimildir Geistdoerfer, P. 1986. Macrouridae. Í: Fishes of the North-eastern Atlantic and the Mediterranean 2: 644-676. Eds. P.J.P. Whitehead, M.-. Bauchot, J.-C. Hureau, J. Nielsen, E. Tortonese. Unesco. Paris. Gunnar Jónsson, Jakob Magnússon, Vilhelmína Vilhelmsdóttir og Jónbjörn Pálsson. 1998. Nýjar og sjaldséðar fisktegundir árið 1997. Ægir 91(2): 18-22. Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson. 2002. Sjaldséðir fiskar á Íslandsmiðum árið 2001. Ægir 95(2): 40- 44. Quéro, J.-C. 1986. Zeidae. Í: Fishes of the North-eastern Atlantic and the Mediterranean 2: 769-774.Editors: P.J.P: Whitehead, M.-Bauchot, J.-C. Hur- eau, J. Nielsen, E. Tortonese. Unesco. Paris. Quéro, J.-C, M.H. Du Buit et J.J: Vayne. 1997. Les captures de poissons à affinités tropicales le long des côtes atlantiques européennes. Ann. Soc. nat. Charente-Marit., 8(6): 651-673. Quéro, J.-C, M.H. Du Buit et J.J: Vayne. 1998. Les observations de pois- sons tropicaux et le réchauffement des eaux dans l´Atlantique européen. Ocean- ologica Acta 21(2): 345-351. Scott, W.B. and M.G. Scott. 1988. Atlantic fishes of Canada. Can. Bull. Fish. Aquat. Sci. 219: 731 p. Thompson, H. 1929. General features in the Biology of the haddock (Gad- us æglefinus L.) in Icelandic waters in the period 1903-1926. (with 3 graphs and 4 figures).Fisheries, Schotland, Sci. Invest., 1928, No. V. 64 p.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.