Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 27
S TA R F S F R Æ Ð S L A O G E N D U R M E N N T U N
27
Bókleg og verkleg námskeið
„Við erum með fjögur til fimm
námskeið á ári og skiptist námið
annars vegar í bóklegan hluta og
hins vegar verklegan. Ég var
kennari við Stýrimannaskólann
og rak skólann þar fyrir utan. En
frá 1991 hef ég eingöngu verið
með þennan rekstur,“ sagði Bene-
dikt í samtali við Ægi. „Frá því á
haustin og til vors erum við með
bóklega kennslu en yfir sumarið
er ég með verklega kennslu í
skútusiglingum. Ég er sjálfur
með skútu, sem er sérstaklega
hönnuð til kennslu,“ sagði Bene-
dikt.
Mismunandi bakgrunnur
Hér á landi eru tiltölulega fáar
skútur, en hérlendir áhugamenn
um skútusiglingar eiga þónokkr-
ar skútur erlendis og sigla þeim
yfir sumarmánuðina í t.d. Karab-
íska hafinu eða Miðjarðarhafinu.
„Sumir skútueigendur hafa aldrei
áður farið til sjós og þurfa því að
að byrja á byrjuninni, ef svo má
segja. Aðrir eru vanir sjómenn og
hafa grunnþekkinguna í sjó-
mennsku. Þeir þurfa hins vegar
að fá kennslu í notkun seglanna,
því það er að sjálfsögðu eitt af
lykilatriðunum í skútusiglingum
að kunna skil á því hvernig á að
beita seglunum. Nauðsynlegt er
að menn taki tvö til þrjú nám-
skeið, hvert þeirra er í um eina
viku, til þess að menn nái færni í
skútusiglingunum,“ sagði Bene-
dikt.
60-70 manns sækja
námskeið á hverju ári
Eins og áður segir er Siglinga-
skólinn einnig með námskeið fyr-
ir þá sem hafa sjósókn að atvinnu.
„Þar er um að ræða eigendur báta
30 rúmlestir og minni og sama
námsefnið á við um eigendur svo-
kallaðra skemmtibáta,“ segir
Benedikt og bætir við að nám-
skeið sem Siglingaskólinn bjóði
upp á séu yfirleitt ljómandi vel
sótt. „Núna er ég með námskeið í
gangi og á því eru um 20 manns.
Að jafnaði sækja 60-70 manns
bóklegu námskeiðin á hverju ári
og 30-40 manns verklegu nám-
skeiðin,“ segir Benedikt.
Á bóklegu námskeiðunum er
m.a. lögð áhersla á siglingafræð-
ina og siglingareglur - þ.e. um-
ferðarreglur hafsins. „Síðan er
mikið lagt upp kennslu í stöðug-
leika skipa, ekki síst fyrir þá sem
hafa atvinnu af sjósókn. Varðandi
björgunar- og öryggismálin sækja
menn síðan námskeið hjá Slysa-
varnaskóla sjómanna.“
Hefði viljað fleiri
konur á námskeið
Benedikt segir að meirihluti
þeirra sem sækir námskeið Sigl-
ingaskólans sé á bilinu 30-40 ára.
„Samkvæmt núgildandi reglum
þarf fólk að lágmarki að vera 20
ára til þess að öðlast skipstjórnar-
réttindi á allt að 30 tonna bátum.
Það má koma fram að ég hefði
gjarnan viljað sjá fleiri konur
sækja námskeiðin hjá okkur. Ég
hef mest verið með fimm konur á
einu námskeiði, en á námskeiðinu
sem nú er í gangi, er til dæmis
engin kona. Að sama skapi eru
fáar konur sem sækja verklegu
námskeiðin í siglingum. Við höf-
um reynt að leggja áherslu á að
siglingar séu fjölskyldusport og
ég hef viljað halda því fram að
nauðsynlegt sé að um borð í
hverjum báti eða skútu séu tveir
með þessa grunnmenntun. Það er
tvímælalaust ákveðið öryggisat-
riði ef eitthvað út af bregður,“
segir Benedikt.
Siglingaskólinn hefur verið rekinn í tæplega tuttugu ár:
Fjölbreytt námskeið fyrir
smábátaeigendur og skútufólk
Frá árinu 1984 hefur Benedikt H. Alfonsson
starfrækt Siglingaskólann í Reykjavík þar sem
smábátaeigendum og áhugafólki um skútusigl-
ingar gefst kostur á að afla sér nauðsynlegrar
þekkingar á siglingafræði og öðru því er við-
kemur stjórnun minni báta.
Benedikt H. Alfonsson, skólastjóri og eigandi Siglingaskólans í Reykjavík. Mynd: Sverrir Jónsson.