Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 36

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 36
36 Þ O R S K E L D I S DA G U R I N N Á A K U R E Y R I Styrkleikar og veikleikar Guðbrandur segir vissulega að Ís- lendingar standi að sumu leyti sterkt varðandi uppbyggingu þorskeldis, en einnig séu þar veikleikar. Styrkleikar Íslands í þorskeldi felist m.a. í arðsömum sjávarútvegi og þekking og reynsla fari vaxandi. Þá nefnir hann að hér á landi séu öflug markaðsfyrirtæki sem hafi yfir mikilli þekkingu að ráða til þess að markaðssetja eldisþorsk. Hins vegar segir Guðbrandur alveg ljóst að veikleikarnir felist m.a. í lítilli fiskeldisþekkingu og einnig sé Ísland tiltölulega langt frá mörkuðunum. Þá nefnir hann að ekki megi horfa framhjá ógnum sem stafi af köldum sjó, óstöðugu veðurfari, öldulagi og möguleg- um hafís og lagnaðarís. Þarf samstillt átak margra aðila „Í þorskeldinu tel ég að við þurf- um sterka markaðstengingu og við þurfum að átta okkur á því hvaða áhrif aukið framboð hefur á verð. Það er líka umhugsunarefni að til þess að búa til nýja eldis- tegund eins og þorsk þurfa til að koma 1,8 til 2 milljarðar króna. Þetta eru miklir peningar sem tæplega verða reiddir fram af einu fyrirtæki, heldur þarf samstillt átak fyrirtækja, fjárfesta og ríkis- valdsins,“ segir Guðbrandur. „Það sem skiptir miklu máli til þess að þorskeldið verði eitthvað meira en hugmyndin ein er að stóru fyr- irtækin og aðrir aðilar í sjávarút- vegi hafii áhuga á þorskeldinu og trúi á það. Trú á verkefninu er forsenda þess að fjárfestar komi að því. Ef hún er hins vegar ekki til staðar er þorskeldisverkefninu sjálfhætt.“ Að halda stöðu okkar á mörkuðum „Ég tel að við eigum að taka virk- an þátt í þorskeldi til þess að halda stöðu okkar á helstu mörk- uðunum. Til þess að það geti orð- ið þurfum við samkeppnishæft eldi og við verðum að vera vak- andi yfir því að skoða kerfisbund- ið aðrar tegundir sem henta í eldi hér á landi,“ segir Guðrandur Sigurðsson. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brims og ÚA: Lykilatriði að hafa trú á verkefninu „Í mínum huga er stóra tækifærið í þorskeldi sú staðreynd að við erum að fiska verulegt magn af uppsjávarfiski sem hentar vel til mjöl- og lýs- isframleiðslu. Verðmæti þessara afurða eru í dag um 19 milljarðar króna. Þessar uppsjávarafurðir gætu nýst í fóður til þess að framleiða um 400 þúsund tonn af þorski í eldi. Verðmæti þess massa gætu verið yfir 70 milljarðar króna og virðisaukinn yfir 50 milljarðar króna. Þó svo að þetta sé mjög einfölduð mynd, þá tel ég að í þessu liggi okkar stóra tækifæri því hér erum við að tala um verulega verðmæta- og atvinnu- sköpun,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brims - sjáv- arútvegssviðs Eimskipafélagsins og ÚA. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Brims og ÚA.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.