Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 43
43
B R E Y T T F I S K I S K I P
Ásrafall er ABB, 1760 kW
(2200 KVA), og rafkerfi skipsins
er 3 x 380 V, 50 Hz, skammtíma-
samfösun er á milli hjálparvél-
arafala og ásrafal.
Bógskrúfur
Nýjar rafdrifnar bógskrúfur eru
frá Brunvoll gerð FU-63-LTC-
1550, þvermál skrúfa er 1500
mm og drifnar af 590 kW raf-
mótorum, áætlaður þrýstikraftur
er 10 tonn á hvora skrúfu. Hægt
er að tengja sjálfstýringu við bóg-
skrúfur.
Kæli/frystiþjöppur og kerfi
Kæli/frystikerfin eru tvö, annað
er fyrir frystingu í frystitækjum
og viðhalda kælingu/ frosti í lest-
um, og svo er sér kerfi fyrir ísvél-
ar, kerfin vinna á kælimiðli
R-717, Ammoníak.
Kæli/frystikerfi fyrir frystingu
og lestar eru tvær Howden þjöpp-
ur WRV-204, upphaflegar, og af-
kasta hvor um sig, við -40°C/
+25°C, 220 kW og ein ný York-
SAB 87 afkastar, við -40°C/
+25°C, 523 kW. Þetta kerfi fæðir
átta lárétta plötufrysta, tvo
kæli/frysti blásara fyrir lestar,
Fincoyl afköst 38 kW hvor, og
kælispíral í fremstu lest. Laus-
frystir fyrir rækju er ókominn í
skipið en verður í rými þar sem
áður voru íbúðir s.b. megin á tog-
þilfari. Plötufrystar eru frá Kæli-
smiðjunni Frosti ehf. sex 17
stöðva, 2400x1140 mm plötu-
stærð og tveir 17 stöðva,
1940x1170 mm plötustærð.
Til að þjóna ísvélum er
Howden þjappa, notuð, WRV-
204 afkastar, við -22°C/+25°C,
400kW.
Tvær nýjar ísvélar eru frá Frost
ehf gerð AIM-35 og afkasta um
90 tonnum af 6-7 mm þykkum ís
á sólahring. Ísinn fer í krapískerfi
sem er síðan dælt í lestar og mót-
töku.
Vindu- losunarbúnaður
Nýjar vökvaknúnar vindur eru frá
Rapp-Hydema, kerfisþrýstingur
210 bar. Tvær snurpi/hjálpar
vindur, gerð TWS-5030C,
tromlumál d 416 mm/ D 1500
mm x 1490 mm, víramagn 2210
m af 30 mmø vír, togátak 19
tonn, við 57 m/mín, á miðja
tromlu, afl 177 kW/ 240 hö.
Tvær hjálparvindur, gerð GW
2000 B, 9,3 tonn, afl 44 kW/ 60
hö. Tvær slönguvindur, tvær 18“
fiskidælur og Optimar vakum-
dælur. Vökvadælur fyrir vindu-
og nótabúnað eru tvær 160 kW-
og tvær 132 kW stöðvar.
Fyrir eru þrjár rafdrifnar tog-
vindur frá Brusselle, 15,5 tonn
(23,2 t tímab.álag), við 109m/
mín, á miðja tromlu, afl 276
(411) kW/ 375 (560) hö. Sex 12
tonna grandaravindur, tvær 21
tonna hífingavindur ásamt fjölda
af öðrum smávindum.
Tvær 11 tonna (15,4 t.
tímab.álag), við 61 m/mín, 20m3
rafdrifnar flotvörpuvindur, afl
110 (153) kW/ 150 (209) hö.
Kraftblökk og nótaleggjari eru
frá Karm, notuð tæki, Triplex
kraftblökk er með 30 tonna tog-
kraft og nótaleggjari er með 3,5
tonna vindu og 3,5 tonna lyfti-
getu í 1,8-8,3 metra armi.
Íbúðir
Í allt eru nítján klefar með þrjátíu
hvílum auk sjúkraklefa. Á togþil-
fari eu sjö klefar, einn eins manns,
fimm tveggja manna og sjúkra-
klefi, Á bakkaþilfari eru sex klef-
Strax eftir áramótin fór skipið á loðnuveiðar og hafa þær gengið ágætlega.