Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 29

Ægir - 01.01.2003, Blaðsíða 29
T Æ K N I Í S J Á VA R Ú T V E G I 29 Rækjulausnir Hér á landi og erlendis hafa verið þróaðar svokallaðar rækjulausnir frá 3X-Stáli. Um er að ræða hönnun, smíði og uppsetningu á ýmsum tæknibúnaði sem þarf í sjálfvirka rækjuvinnslu. 3X-Stál hefur látið verulega að sér kveða í nýjungum í rækjuvinnslunni hér á landi og þá er athyglisvert að í t.d. Kanada hefur 3X-Stál sterka stöðu, þar í landi hafa tækni- lausnir frá fyrirtækinu gegnt lyk- ilhlutverki í uppbyggingu nú- tíma tæknivæddra rækjuverk- smiðja. Stór samningur við Fishery Products Í janúar var tilkynnt að 3X-Stál hefði samið við Fishery Products International um hönnun og smíði búnaðar vegna endurbygg- ingar tveggja rækjuverksmiðja fyrirtækisins á Nýfundnalandi. Þetta er stór samningur sem Jó- hann Jónsson, framkvæmdastjóri 3X-Stáls, segir að hafi mikla þýð- ingu fyrir fyrirtækið. „Samning- urinn tryggir okkur mjög góða verkefnastöðu til vors,“ segir hann og lýsir mikilli ánægju með að þessir samningar hafi tekist. „Frá árinu 1998 höfum við verið að styrkja stöðu okkar í tækni- lausnum fyrir rækjuiðnaðinn í Kanada og eitt hefur leitt af öðru. Fyrir utan þennan nýja samning við Fishery Products höfum við hannað lausnir og smíðað fyrir sex rækjuverksmiðjur í Kanada, sem er tæpur helmingur rækjuverk- smiðja á Nýfundnalandi, í Labrador og Nova Scotia. Okkar lausnir hafa líkað vel og það er besta auglýsingin. Það hefur líka mikið að segja að við höfum um nokkurt skeið verið með starfsemi á okkar vegum í St. Johns á Ný- fundnalandi, sem lýtur að mark- aðsstarfi og þjónustu við okkar viðskiptavini. Þessi starfsemi vestra er okkur tvímælalaust mjög mikilvæg,“ segir Jóhann og bætir við að markaðsskrifstofan, sem ber nafn 3X-Stáls, sé einnig mikilvæg vegna veiða hérlendra rækjufrystiskipa á Flæmska hatt- inum. Stærsta sjávarútvegsfyrirtæki í Kanada Fishery Products, sem reyndar er að 15% í eigu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, er stærsta sjáv- arútvegsfyrirtæki Kanada með fjölþættan rekstur. Til marks um það selur fyrirtækið um 60% af allri rækjuframleiðslu verksmiðja á Nýfundnalandi og er stærsti markaðurinn í Bandaríkjunum. Samningurinn við 3X-Stál, felur í sér endurhönnun á þessum tveim- ur rækjuverksmiðjum, þ.m.t. lausnir varðandi móttöku rækj- unnar, flutning hennar og hreins- un. „Þá erum við ráðgefandi um val á tækjabúnaði inn í verk- smiðjuna í samráði við eigendur og kemur hann frá okkur og fleiri framleiðendum.“ Hér má sjá yfirlitsmynd af karalausn 3X-Stáls - heildarlausn sem er sniðin af þörfum hvers og eins. Mjög athyglisverð hönnun, sem hefur slegið í gegn. Hér má sjá fiskiker skríða út úr karaþvottavél, sem 3X-Stál hefur hannað og smíðað. Þessi vél kallast skammtavog og er hluti af pökkunarlínu. Tæknibúnaður 3X- Stáls er í stöðugri þróun og á ári hverju koma á markaðinn um 10 nýjar vörutegundir. Skelblásari - hluti af vinnslubúnaði 3X-Stáls fyrir rækjuvinnslu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.