Ægir - 01.01.2003, Side 12
12
N Ý S M Í Ð I
Nýjungar í nýsmíði nr. 5 og 6
eru að bátarnir eru með fellikjöl
sem er 4,1 metra langur og geng-
ur 30 cm niður í lengstu stöðu.
Fellikilinum er stjórnað með raf-
knúnum tjökkum úr stýrishúsi
bátsins. Húsið sem kjölurinn fer
inn í er nýtt sem skvettiþil í elds-
neytisgeymi.
Smíðaður úr trefjaplasti
Báturinn er smíðaður úr trefja-
plasti samkvæmt reglum og und-
ir eftirliti Siglingastofnunar Ís-
lands og er með tvö vatnsþétt
skilrúm. Fremst er lúkar með
þremur hvílum, stjórnpalli og
100 l vatnsgeymi. Í lúkar er elda-
vél, kæliskápur og örbylgjuofn,
220 volt, rafknúið um tvo 1500
watta áriðara.
Lestarrými er heilt án uppi-
stoða. Í eldsneytisgeymi, sem er
undir lest, er áðurnefndur felli-
kjölur. Aftast er vélarrúm með
aflvél, stýrisvél og öðrum búnaði
sem til þarf, og vélarrúmskappi
með salernisaðstöðu.
Siglingatæki í stýrishúsi
Í stýrishúsi eru eftirtalin siglinga-
tæki: Simrad CA-50 sambyggð
siglingastöð (Navigation-Center)
sem er ratsjá; dýptarmælir,
tveggja tíðna og GPS plotter. Þrí-
vídda plotter er Olex tölva. Sjálf-
stýring er Simrad AP-50 og teng-
ist bógskrúfu. Rafeindakompás
(seguláhrif) er Simrad RFC-35R.
VHF talstöð er Simrad RS-8300.
Vél- og tæknibúnaður
Aflvél er Volvo Penta, gerð
TAMD 74C, hámarks afköst eru
430 hö/ 316 kW við 2500
sn/mín., stöðug afköst eru 268
hö/ 197 kW við 2100 sn/mín.
Niðurfærslugír er ZF-302 V, nið-
urgírun 1,65:1, og skrúfa er 4
blaða 58,4 cm (23“) í þvermál
með 68,6 cm (27“) skurð. Stjórn-
tæki eru frá ZF-Mather og tengj-
ast snuðventli á gírnum. Stýri er
0,24 m2 flipastýri. Vélin knýr 90
Amp. 24 V rafal með reimdrifi.
Vökvadælur fyrir línuspil og bóg-
skrúfu eru reimdrifin af vél, en
vökvadæla fyrir sjálfstýringu er
rafdrifin. Bógskrúfa er frá Cramm
cbc 700, sjö hestöfl, þvermál
skrúfu er 20,3 cm (8“). Til upp-
hitunar í vistarverum er Webasto
miðstöð sem hitar upp vatn og
loft, afköst 9 kW.
Rafkerfi
Rafkerfi er 24 Volta með breytum
fyrir 12 Volta jafnstraum og 220
Volta riðstraum, rafall er Leece-
Neville 90 amper, 2,2 kW. Tveir
Samantekt
og myndir:
Jón Sigurðsson.
Binni í Gröf VE-38:
Sjötta nýsmíði Seiglu til Eyja
Þann 9. janúar s.l. var afhentur nýr bátur, Binni í Gröf VE-38,
skipask.nr. 2558, frá Seiglu ehf. til nýrra eigenda, sem eru Benóný ehf. í
Vestmannaeyjum. Báturinn er nýsmíði nr. 6 hjá Seiglu ehf. en nýsmíði
nr. 5 fór til Færeyja, hinir fjórir eru Hafbjörg ST, Steini Randvers SH,
Draumur RE og Björn EA. Binni í Gröf VE er útbúinn á línu- og hand-
færaveiðar, framkvæmdastjóri útgerðar er Friðrik Benónýsson.
Binni í Gröf VE-38
er 9,26 brúttó-
tonna smábátur
frá Seiglu ehf.
Tækjabúnaður í stýrishúsi.