Ægir - 01.01.2003, Síða 30
T Æ K N I Í S J Á VA R Ú T V E G I
30
Um 70% framleiðslunnar til
útflutnings
Það er ekki ofsögum sagt að 3X-
Stál er alþjóðlegt fyrirtæki. Raun-
ar er það svo að um 70% af sölu
fyrirtækisins fara til kaupenda er-
lendis, fyrst og fremst í Kanada
og Bandaríkjunum. Tækjabúnað-
urinn er hannaður og framleiddur
á Ísafirði og segir Jóhann fram-
kvæmdastjóri að því fylgi margir
kostir, þótt vissulega sé því ekki
að neita að mikill flutningskostn-
aður á aðföngum og framleiðslu-
vörum geri það að verkum að trú-
lega myndu sparast um 5-7%
framleiðslukostnaðar með stað-
setningu fyrirtækisins á höfuð-
borgarsvæðinu. „Slæmar sam-
göngur við Ísafjörð gera okkur
vissulega erfitt fyrir, því er ekki
að neita. En kostirnir við að hafa
fyrirtækið hér fyrir vestan eru að
mínu mati mun fleiri en ókostirn-
ir. Hér erum við í nánu sambandi
við sjávarútveginn og það skiptir
fyrirtækið miklu máli. Sjávarút-
vegsfyrirtækin hér fyrir vestan eru
fús að taka þátt í þróun tækni-
lausna og það sama má segja um
sjávarútvegsfyrirtæki í öðrum
landshlutum. Ég get í því sam-
bandi nefnt mjög gott samstarf
við Útgerðarfélag Akureyringa,
Granda og Samherja, en í sam-
vinnu við tæknimenn þar á bæ
hönnuðum við og settum nýverð
upp nýja tæknilausn í meðhöndl-
um á körum í vinnslu Strýtu á
Akureyri. Ég er mjög ánægður
með hvernig tókst til í Strýtu og
tel að þar séum við að taka merki-
legt skref - þetta er fyrsta kerfi
sinnar tegundar í heiminum,“
segir Jóhann. Hann nefnir einnig
að á Ísafirði sé vinnuaflið mjög
stöðugt og í slíkum tækniiðnaði
sé slíkt mikils virði.
Velgengni á árinu 2002
Síðasta ár var það besta til þessa í
sögu 3X-Stáls. Veltan nam um
300 milljónum króna og starf-
semin gekk almennt vel. Jóhann
segir enga ástæðu til annars en að
líta björtum augum fram á veg-
inn. „Þegar við hófum rekstur
fyrir tæpum áratug renndum við
nokkuð blint í sjóinn með hvern-
ig starfseminni yrði háttað. Við
áttum ekki von á því að innan
áratugar yrði fyrirtækið komið í
þessa stöðu. En það sem hefur
skipt sköpum er að við höfum
alltaf verið á tánum og fylgst vel
með markaðnum og hagað okkar
vöruþróun og nýsköpun eftir því.
Vöruþróunin er gríðarlega mikil-
væg og til marks um það höfum
við verið að þróa fjórtán nýja
vöruflokka á tveimur síðustu
árum. Markaðurinn kallar
stöðugt eftir nýjungum og til
þess að fylgja honum eftir verðum
við að vera stöðugt á vaktinni,“
segir Jóhann Jónsson, fram-
kvæmdastjóri 3X-Stáls á Ísafirði.
3X-Stál smíðaði snyrtilínu fiskvinnslunnar Kambs á Flateyri, þar sem þessi mynd var
tekin.
Eigendur 3X-Stáls, Al-
bert M. Högnason
(t.v.) og Jóhann Jóns-
son ásamt Árna M.
Mathiesen, sjávarút-
vegsráðherra.
Mynd: Halldór Sveinbjörnsson/Ísafirði.