Ægir - 01.01.2003, Qupperneq 46
Þ O R S K E L D I
Öll áherslan verður lögð á
framleiðslu þorskseiða
„Þetta fyrirtæki var stofnað upp
úr 1990 og var framanaf að vinna
að ákveðnum eldisrannsóknum í
lúðu, steinbít og þorski. Nú hefur
fyrirtækið ákveðið að leggja alla
áherslu á þorskeldið og hafnar eru
miklar framkvæmdir sem miða að
því að byggja upp nýja og öfluga
þorskseiðaeldisstöð. Áætlanir gera
ráð fyrir að fyrirtækið verði ein-
ungis í því að framleiða
þorskseiði, en láti öðrum eftir
áframeldi,“ segir Ólafur.
Fyrirtækið eiga ýmsir sterkir
fjárfestar, sumir í eigendahópnum
hafa haslað sér völl í laxeldinu í
Noregi.
Reynslan úr lúðunni nýtist vel
Ólafur segir að vissulega eigi
framleiðsla þorskeldisseiða og
lúðuseiða, sem hann þekkir vel
frá því hann byggði upp og
stjórnaði Fiskeldi Eyjafjarðar, ým-
islegt sameiginlegt. „Jú, auðvitað
nýtist mér vel í þessu starfi
fimmtán ára reynsla í framleiðslu
lúðuseiða Að stórum hluta eru að-
ferðirnar áþekkar, þó ákveðinn
munur sé á.“
Um þrjár milljónir þorskseiða
á síðasti ári í Noregi
Á síðasta ári framleiddu Norð-
menn vel á þriðju milljón
þorskseiða og allar áætlanir miða
að því að sú tala eigi eftir að
hækka verulega á næstu árum.
Nokkrar seiðaeldisstöðvar eru í
uppbyggingu í Noregi, ein þeirra
gerir ráð fyrir að framleiða eina
milljón seiða á þessu ári. „Við
munum hins vegar ekki komast
með framleiðslu í gang fyrr en
um mitt þetta ár í nýju stöðinni
okkar. Áætlanir miða að því að
þegar stöðin verður komin í full
afköst verði hér framleidd tíu
milljón seiði, sem ættu að geta
orðið u.þ.b. 25-30 þúsund tonn
af þorski,“ segir Ólafur. Hann fer
varlega í að spá fyrir um hvenær
nýja stöðin verði komin í full af-
köst, áður en það takmark náist
þurfi að fara yfir marga þrösk-
ulda.
Kostnaður við byggingu
nýrrar stöðvar um
750 milljónir ísl. króna
Þessi nýja seiðaeldisstöð Troms
Marine kostar um 65 milljónir
norskra króna, eða um 750 millj-
ónir íslenskra króna. Stöðin er
samtals um 4000 fermetrar að
flatarmáli og hjá fyrirtækinu
starfa sautján manns. Troms Mar-
ine hefur fyrst og fremst verið
fjármagnað með hlutafé frá eig-
endum, en einnig í minna mæli
með lánsfé.
Ólafur Halldórsson fiskifræðingur stýrir þorskseiðaeldisstöð í Tromsö:
Ný eldisstöð í byggingu
og stefnt að 10 milljóna
seiða ársframleiðslu
Á síðasta ári var Ólafur Halldórsson, fiskifræð-
ingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fisk-
eldis Eyjafjarðar, ráðinn framkvæmdastjóri
eldisfyrirtækisins Troms Marine Yngel AS. í
Tromsö í Noregi. Hann hóf þar störf síðla síð-
asta árs og segist vera að vinna að afar áhuga-
verðum verkefnum.
„Áætlanir miða að því
að þegar stöðin verður
komin í full afköst
verði hér framleidd tíu
milljón seiði, sem ættu
að geta orðið u.þ.b.
25-30 þúsund tonn af
þorski.“