Ægir - 01.09.2003, Síða 22
22
E Y J A F J Ö R Ð U R
„Sæeyru eru tiltölulega ný teg-
und í eldi hér á landi og því má
segja að maður sé í stöðugu
þróunarstarfi. Það eitt gerir
þetta eldi mjög áhugavert.
Hauganes er um margt góður
staður fyrir sæeyrnaeldi. Hér
hefur gengið vel að fá hreinan
sjó og aðgangur er að heitu
vatni, sem er lykilatriði vegna
þess að sæeyrun þurfa heitan
sjó og honum náum við með
varmaskiptakerfi í eldinu hjá
okkur,“ segir Ásgeir E. Guðna-
son, fiskeldisfræðingur og
stöðvarstjóri eldisstöðvar
Stofnfisks á Hauganesi við
Eyjafjörð.
Sú reynsla sem fengist hefur á
undanförnum árum af eldi á
sæeyrum, í eldisstöð Sæbýlis hf. í
Vogum á Vatnsleysuströnd, sýnir
að eldisferillinn tekur um fjögur
ár frá lirfustiginu þar til sæeyrað
er komið í markaðsstærð. Ásgeir
telur góðar líkur á því að unnt sé
að stytta þennan tíma um allt að
fjórðung með bættri eldistækni
og síðan enn meir með kynbót-
um þegar til framtíðar er litið.
Einn af stærstu framleiðend-
um á sæeyraungviðum
í heiminum
Fyrsta frjóvgun í eldisstöðinni á
Hauganesi var í september 2002.
„Í dag er hér í stöðinni um ein
milljón af sæeyrum, sem eru sjö
mánuða gömul eða yngri,“ segir
Ásgeir.
„Eins og staðan er núna erum
við örugglega í hópi stærstu
framleiðenda í heimi á sæeyrum.
Við höfum til þessa einbeitt okk-
ur að því að koma framleiðslunni
í gang og fullvissa okkur um að
eldiskerfið, sem er ný hönnun,
virki eins og það á að gera. Það
hefur ekki valdið okkur neinum
vonbrigðum og ég tel nú að áætl-
anir okkar um að framleiða þrjár
til fjórar milljónir af sæeyrum á
ári eigi að ganga eftir.
Að mínu mati gengur eldið hér
á Hauganesi að óskum og það er
Sæeyru eru sjávarsniglar af ættkvíslinni
Haliotis. Alls munu vera til um 100 tegundir
sæeyrna, þar af eru 10-15 tegundir nýttar til
manneldis. Ein þeirra er svokallað rautt sæeyra
(Haliotis rufescens), sem á ensku er kallað Red
Abalone, en það var fyrst flutt til Íslands frá
Kaliforníu árið 1988 af Ingvari Níelssyni verk-
fræðingi.
Sæeyra er eitt dýrasta sjávarfang sem völ er
á. Hefð er fyrir neyslu á sæeyrum í Austur-
löndum fjær, t.d. Japan og Kína, þar sem efn-
að fólk hefur þetta sjávarfang á borðum og
sæeyru er að finna á dýrari veitingastöðum. Í
Bandaríkjunum og Kanada eru líka umtalsverð-
ir markaðir fyrir sæeyru, enda búa þar milljónir
manna af asískum uppruna sem vilja hafa
sæeyru á borðum. Það sama má segja um
svæði í Suður-Ameríku.
Sæeyru eru flutt lifandi á markað og hafa
margar mismunandi aðferðir verið þróaðar í
matreiðslu á þeim.
Sæeyru halda sig við botninn og því er ekki
unnt að veiða þau nema því aðeins að kafa
eftir þeim. Það segir sig því sjálft að erfitt er
að nálgast sæeyru og afurðirnar eru eftir því
dýrar. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er al-
gengt skilaverð til framleiðenda 30-33 dollarar
eða um 2.400 krónur. Á veitingastöðum í Jap-
an eru dæmi um að kílóaverð á sæeyrum sé
um sextíu þúsund krónur þegar þau eru komin
á borðið.
Hvað er sæeyra?
Milljón sæeyru
á Hauganesi
Sæeyru geta orðið allt að þrjátíu sentímetrar að lengd, en markaðsstærðin er 8-10
sentímetrar að lengd, ca. 100-200 grömm.