Ægir - 01.09.2003, Page 23
E Y J A F J Ö R Ð U R
23
vissulega mjög mikilvægur
grunnur að byggja á,“ segir Ás-
geir.
Nákvæmi er lykilatriði
Eldi á sæeyrum er flókið ferli sem
Ásgeir lýsir svo: „Við erum með
klakdýr, sem að stofni til eru frá
árinu 1988. Við fáum hrogn og
svil frá þessum dýrum og frjóvg-
um. Eftir einn sólarhring klekjast
hrognin og til verða sundlægar
lirfur. Eftir að lirfutímabilinu
lýkur eru lirfur settar í botnnám-
sker þar sem þær nærast á þör-
ungum. Í þessum kerjum eru
sæeyrun alin þar til þau eru nægi-
lega stór til þess að flytja þau yfir
í önnur ker þar sem þau fara á
þurrfóður. Síðan tekur við eldi
uns sæeyrun eru komin í mark-
aðsstærð. Hér á Hauganesi ein-
beitum við okkur að eldi á sæeyr-
um þar til þau eru á bilinu 10 til
20 millimetrar að stærð, eða 6-10
mánuða gömul. Þegar þessari
stærð er náð eru sæeyrun tilbúin
til áframeldis og við hjá Stofnfiski
erum með áætlanir um að byggja
upp áframeldisstöð á Reykjanesi
ásamt því að selja ungviði til ann-
arra eldisstöðva. Hugmyndin er
sú að flytja sæeyrun úr stöðinni
hér á Hauganesi og suður á
Reykjanes þar sem þau verði alin
í markaðsstærð. Mikilvægt er að
staðsetja slíka eldisstöð í nágrenni
við Keflavíkurflugvöll, enda eru
sæeyru flutt lifandi á markaði.
Þau þola allt að 40 klukkustunda
flutning og því er raunhæft að
flytja þau lifandi alla leið til Jap-
ans.“
Athyglisverð uppbygging
Eldisstöðin á Hauganesi er á
tveimur hæðum í eigin húsnæði
Stofnfisks. Ásgeir hefur stýrt
uppbyggingu stöðvarinnar, varð-
andi búnað og annað, og hann og
tveir starfsmenn stöðvarinnar,
sem báðir eru af Hauganesi, hafa
unnið ötullega að því að koma
búnaðinum upp og fylgja eldinu
úr hlaði. Ófáar vinnustundirnar
eru að baki og það vekur athygli
blaðamanns Ægis hversu vel er
fyrir öllum hlutum hugsað. Bún-
aðurinn er einfaldur, en virkar
eins og til er ætlast. Á tölvuskjá
er unnt að fylgjast með öllum
þráðum eldisins, hitastigi eldis-
vökvans í hverjum eldissal og
öðru sem skiptir máli til að
tryggja góðan árangur.
Ásgeir nefnir að heimamenn á
Árskógsströnd og Hauganesi hafi
stutt vel við uppbyggingu eldis-
stöðvarinnar og fyrir það sé hann
þakklátur. Þá nefnir hann að gott
samstarf hafi verið við fóðurverk-
smiðjuna Laxá hf. um þróun á
þurrfóðri fyrir sæeyru og það
muni halda áfram.
Tvö þúsund ára hefð
Um tvöþúsund ára hefð er fyrir
neyslu á sæeyrum í Japan og
Kína. Sæeyru geta orðið allt að
þrjátíu sentímetrar að lengd, en
markaðsstærðin er 8-10 sentí-
metrar að lengd, ca. 100-200
grömm.
Eldi á sæeyrum hófst í kjölfarið
á gegndarlausri ofveiði á þessari
tegund. Sem dæmi hafa veiðar á
sæeyrum verið alfarið bannaðar í
Bandaríkjunum. Eldi á sæeyrum
hefur í raun ekki náð fótfestu
víða, enda er óhætt að segja að
það sé afar sérhæft og krefst mik-
illar kunnáttu. Stærstu eldislönd-
in í heiminum eru Kína, Ástralía,
Bandaríkin, Suður-Afríka, Írland
og Ísland. Þá er töluvert sæeyrna-
eldi í Japan, sem byggir á hafbeit.
Þá var ekki aftur snúið
Ásgeir E. Guðnason lauk námi á fiskeldisfræði-
braut Fjölbrautaskóla Suðurlands á Kirkjubæjar-
klaustri vorið 1991 og tók síðan verknám hjá Haf-
rannsóknastofnuninni, í fiskeldisstöðinni Stað í
Grindavík. Að námi loknu starfaði Ásgeir áfram
við stöðina og þar segist hann hafa aflað sér mik-
illar reynslu í eldi á mörgum tegundum, t.d.
þorsk, lúðu, sandhverfu og síðast en ekki síst
sæeyrum.
Áður en Ásgeir fór í fiskeldið hafði hann verið í
nokkur ár til sjós og tók m.a. próf frá Stýrimanna-
skólanum. Þrátt fyrir að þykja sjómennskan um
margt skemmtileg ákvað Ásgeir að fara í land og niðurstaðan var sú að takast á við verkefni
sem tengdust sjávarútveginum á einn eða annan hátt. Fiskeldið varð fyrir valinu. „Á þessum
tíma hafði ég áhuga á því að fara í þorskeldi - fá mér trillu og veiða smáþorsk til áframeldis í
kvíum. En svo kynntist ég sæeyrunum og þá var ekki aftur snúið,“ rifjar Ásgeir upp.
Eftir að hafa starfað um hríð hjá fiskeldisstöð Hafró í Grindavík, ákvað Ásgeir að taka
næsta skref í eldi á sæeyrum. Hann stofnaði fyrirtækið Sæbýli hf. í Vogum á Vatnsleysu-
strönd í október 1993 og átti 80% í því í upphafi á móti Agnari Steinarssyni, líffræðingi, hjá
Hafrannsóknastofnuninni, og Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, núverandi framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Ásgeir var framkvæmdastjóri Sæbýlis fram á mitt ár
1999 og starfaði þar áfram sem eldisstjóri til ársins 2000. Þá lá leiðin norður í land. Ásgeir
stofnaði fyrirtækið Haliotis, sem er latneska heitið á sæeyra. Í upphafi fékk Ásgeir til liðs við
sig Útgerðarfélag Akureyringa og fjárfestingasjóðinn Tækifæri, en síðar komu Stofnfiskur,
Framtak og fleiri aðilar inn í félagið. Um áramótin 2001-2002 var Haliotis sameinað Stofn-
fiski hf og hefur fyrirtækið síðan verið rekið á Hauganesi við Eyjafjörð undir nafni Stofnfisks.
Ásgeir Guðnason, stöðvarstjóri Stofnfisks á
Hauganesi.