Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2004, Blaðsíða 6

Ægir - 01.01.2004, Blaðsíða 6
6 R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L Sjávarútvegsárið 2004 hefur byrjað fjörlega. Útvegsrisanum Brimi hefur verið skipt upp, sumt í þeim viðskipt- um kom nokkuð á óvart, annað ekki. Mikilvægt er að nýjum eigendum þriggja meginstoða Brims, ÚA, HB og Skagstrendings, takist vel upp því öll skipta þessi fyrirtæki gríðarlega miklu máli í athafnalífinu á þessum stöðum - eru í raun burðarásar. Í ljósi þess að þessi fyrirtæki voru óneitanlega verð- lögð nokkuð hátt, verður ekki öðru trú- að en að Grandi, Rifs-feðgar og Fiskiðj- an Skagfirðingur hafi upp í erminni ýmsar leiðir til þess að ná fram aukinni hagkvæmni eða samlegðaráhrifum, eins og það er gjarnan kallað, með því að koma að rekstri þessara þriggja kvóta- sterku fyrirtækja á Akureyri, Akranesi og Skagaströnd. Þetta mun væntanlega skýrast betur á allra næstu mánuðum. Það er auðvitað alltaf álitamál hvað er hátt verð fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, en hafa ber í huga að upplausnarverð áðurnefndra þriggja sjávarútvegsfyrir- tækja er mun hærra en kaupendurnir greiddu fyrir þau. Þar vegur kvótinn að sjálfsögðu þyngst. En á hitt ber að líta að verðið sýnist nokkuð hátt þegar þess er gætt að sjávarútvegurinn er almennt í nokkrum öldudal um þessar mundir vegna raunlækkunar á ýmsu helstu mörkuðum og erfiðrar stöðu dollars gagnvart íslensku krónunni. Á meðan virkjað verður fyrir austan og álver byggt á Reyðarfirði er ólíklegt að doll- arinn styrkist verulega gagnvart krón- unni og því munu útflutningsgreinarn- ar áfram búa við nokkuð þröngan kost. Hins vegar hefur reynslan sýnt að Ís- lendingar eru öðrum fremri í að laga sig að breyttum aðstæðum og það hefur sjávarútvegurinn nú þegar gert. Á undanförnum mánuðum hefur sjávarútvegsfyrirtækjum á markaði ver- ið að fækka verulega og jafnframt hafa heimamenn slegið skjaldborg um fyrir- tækin. Þetta hefur til dæmis gerst með Hraðfrystistöðina Gunnvöru í Hnífsdal og Eskju á Eskifirði. Og þessu til við- bótar má nefna að heimamenn á Vopnafirði hafa lagt allt í sölurnar til þess að verja eignarhald á Tanga, enda um sannkallaða lífæð samfélagsins að ræða. Á sínum tíma töldu stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækjanna mikilvægt fyrir fyrirtækin að vera á hlutabréfa- markaði, en svo virðist sem margir þeirra telji að svo sé ekki lengur. Það kemur ekki á óvart, því viðskipti með bréf sjávarútvegsfyrirtækjanna hafa ver- ið hverfandi á síðustu misserum og í því ljósi hafa menn endurmetið stöð- una. Hræringar í ársbyrjun Óskar Þór Halldórsson, ritstjóri Vírstroffa að láni Andrés Gunnar Jónasson, fyrrum verk- smiðjustjóri, er maður grandvar og hirðusamur, sem oft hefur komið sér vel fyrir samferðamennina. Eitt sinn var útgerðarstjóri Fáfnis hf. að bjástra eitthvað um borð í togara við Þingeyr- arbryggju og vantaði vírstroffu. Hann brá sér til verksmiðjustjórans og spurði hvort hann ætti ekki til vír- stroffu af gerð sem hann tiltók og gæti lánað sér. „Jú, það má athuga það,“ svaraði verksmiðjustjórinn, „komdu vinur,“ bætti hann við og fór að feta sig upp stiga sem lá að dyrum súðar- herbergis við þak verksmiðjunnar. Út- gerðarstjórinn fór á eftir honum og er inn í herbergið kom tók verksmiðju- stjórinn splunkunýja vírstroffu úr hillu sem þarna var og rétti útgerðar- stjóranum. „Getur þetta passað, vin- ur?“ „Já, já þetta er einmitt sú rétta, þú verður að skila mér henni aftur vin- ur, þegar þú ert búinn að nota hana,“ sagði verksmiðjustjórinn fremur hvasst. „Heldur þú að ég fari að skila þér aftur þessum stroffuræfli? „Já, vin- ur, það er annars ekki víst að ég geti lánað þér hana næst þegar þú þarft á henni að halda!“ (Af Þingeyrarvefnum - www.thingeyri.com) Sjómenn verji sjómannaafsláttinn „Hátekjuskattur leggst á tekjur sem eru yfir kr. 700 þús. á mánuði hjá hjónum eða sambýlisfólki. Það eru ekki mjög margir í þeim hópi þar sem sam- anlagðar árstekjur fólks eru yfir 8,4 milljónir króna sem er upphæðin sem þarf til þess að njóta í einhverju lækk- unar hátekjuskatts. Sjómannaafsláttinn eiga sjómenn að verja með öllum ráðum, hann er fyrir löngu orðinn hluti af samningsbundn- um kjörum sjómanna sem nýtist öll- um, en í stétt sjómanna er hann mjög verðmætur og kemur þeim best sem lægstar hafa tekjurnar.“ (Guðjón Arnar Kristjánsson, alþm, í grein á vef Frjálslynda flokksins) Snýst um tilfærslu „Þegar þingmenn stjórnarandstöðunn- ar tala um breytingar á stjórn fiskveiða snúast þær oftar en ekki um leiðir til þess að tryggja byggð hér og hvar á landinu og leiðir til þess að takmarka framsal aflaheimilda. Ef þessir flokkar verða þeir sem breyta kerfinu er því allt eins líklegt að breytingarnar muni hvorki snúast um aukna hagkvæmni né um að þjóðin fái öll notið rentunn- ar. Þær munu þvert á móti snúast um að taka rentuna af einum sérhags- munahópi og færa hana öðrum sér- hagsmunahópi.“ (Jón Sveinsson í pistli á Deiglan.com) U M M Æ L I

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.