Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2004, Síða 18

Ægir - 01.01.2004, Síða 18
18 Ú T F L U T N I N G U R S J Á VA R A F U R Ð A Hversu stór er ferskfiskmarkaðurinn? Níels metur það svo að í upphafi árs sé töluverð óvissa með sölu á ferskum fiski á þessu ári. „Þar kemur ýmislegt til. Til dæmis hófst kvótaárið í Noregi núna um áramótin og því erfitt að sjá fyrir hversu mikið af ferskum fiski kemur frá Noregi í ár. Einnig hef- ur kvótaaukningin hér á landi sitt að segja. Sú aukning er raunar þegar komin fram í ýsunni, en minna í þorskinum.“ Níels segir erfitt að segja ná- kvæmlega til um hversu stór ferskfiskmarkaðurinn í rauninni er. Fram að þessu hafi Íslendingar verið nokkuð leiðandi í sölu á ferskum flökum inn á Bretland og meginland Evrópu, en enginn vafi sé á því að þar sæki Norð- menn á. Samkvæmt tölum Hag- stofunnar segir Níels að á síðasta ári hafi orðið töluverð aukning á sölu gámafisks frá Íslandi til Bretlands, „sem þýðir að það er meira framboð á ferskum fiski fyrir fiskvinnslurnar í Bretlandi.“ Umtalsverð lækkun á ýsu Eins og fram hefur komið varð töluverð lækkun á ýsuverði á síð- asta ári og það sama má segja um karfann. Mun minni breytingar hafa hins vegar orðið á þorskverði. „Framboð á ýsu jókst verulega á síðasta ári vegna auk- ins kvóta hér við Ísland, í Barentshafi og við Skotland. Það hefur líka verið aukning í ýsu- veiði á hafsvæðinu við Nýja Eng- land, sem hefur vissulega áhrif á útflutning á ýsu til Bandaríkj- anna. Sem kunnugt er voru Bandaríkin lengi vel okkar besti markaður fyrir fiskafurðir, en það hefur breyst á síðustu árum. Og gengi dollars hefur líka afgerandi áhrif, enda hefur gengi hans gagnvart íslensku krónunni ekki verið lægra í fimm ár en núna í upphafi árs. Það má því almennt segja að í ársbyrjun séu ýmsar blikur á lofti og óvissan í útflutn- ingi sjávarafurða sé meiri en oft áður,“ segir Níels Guðmundsson. Gott verð fyrir fersk hnakka- stykki Á síðustu árum hefur verið mikill vöxtur í sölu á ferskum hnakka- stykkjum inn á Frakkland og Belgíu og fyrir þá afurð hefur fengist ágætt verð. Aftur á móti hefur orðið raunlækkun á karfaaf- urðum. Danir og Norðmenn selja í miklum mæli fisk úr Barents- hafinu á meginlandi Evrópu, en samkeppnin er minni í Bretlandi Tros í Sandgerði er eitt stærsta fyrirtæki hér á landi í sölu á ferskum fiski: Nokkur óvissa á mörkuð- unum í upphafi árs - er mat Níelsar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra hjá Trosi „Síðasta ár var alveg þokkalegt. Það var tölu- verð aukning hjá okkur í magni, en aukningin var ekki eins mikil í verðmætum sem kemur til af því að hráefnisverð hefur lækkað og gengi krónunnar hækkað. Út úr útflutnings- tölum frá Hagstofunni má lesa nokkra magnaukningu á síðasta ári í útflutningi á ferskum flökum,“ segir Níels Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tros ehf. í Sandgerði, sem er einn af stærri útflytjendum á ferskum fiski frá Íslandi. Fyrirtækið rekur eigin fiskvinnslu í Sandgerði og selur auk þess ferskan fisk fyrir marga aðra framleðendur. Horft yfir vinnslulínu Tros í Sandgerði. Húsnæði Tros ehf. í Sandgerði. Myndir: Sverrir Jónsson

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.