Ægir - 01.01.2004, Blaðsíða 26
26
„Ég hef verið á þeirri skoðun að
hrefnuveiðunum sé stefnt gegn
þeim atvinnurekstri sem hvala-
skoðunarfyrirtækin hafa verið að
byggja upp á undanförnum árum.
Ef einhverju öðru er haldið fram,
þá tala menn gegn betri vitund
eða þá að menn hafa ekki kynnt
sér í hverju hvalaskoðun við Ís-
land er fólgin. Við erum fyrst og
fremst að sýna ferðamönnum
hrefnur og það er einstakt í heim-
inum, hvalaskoðun byggist
hvergi á hrefnu með sama hætti
og hér. Við erum fyrst og fremst
að sýna ferðamönnum hrefnu hér
á Skjálfandaflóa, í Eyjafirði og á
Faxaflóa og því má segja að þessi
útgerð standi og falli með hrefn-
unni. Ef menn hyggjast skjóta
þær hrefnur sem við erum að
sýna, þá er hvalaskoðun við Ísland
sjálfhætt.“
Engin sátt um þessa
málsmeðferð
Hörður segist alltaf hafa verið á
þeirri skoðun að Íslendingar yrðu
að nálgast hvalveiðar með því að
ganga í Alþjóðahvalveiðiráðið og
leggja sínar áætlanir fyrir það.
„Íslendingar lögðu sín plön fyrir
Alþjóðahvalveiðiráðið og þeim
var hafnað. Í mínum huga er
málsmeðferð Íslendinga í þessu
máli fráleit og ég tel ekki með
nokkru móti hægt að bera þann
þjóðarrembing og sjálfstæðisbar-
áttu sem endurspeglast í þessu
máli saman við landhelgismálið á
sínum tíma. Um þessa málsmeð-
ferð verður engin þjóðarsátt að
mínu mati, um þetta verður stríð
ef menn ætla að fara fram með
þessum hætti. Við sem gerum út
á hvalaskoðun höfum engu að
tapa, við höfum ekki fyrir neinu
öðru að berjast en tilveru okkar.
Þeir sem ráðast að rótum hennar
uppskera ekkert annað en stríð.
Ég tel að íslensk stjórnvöld ættu
að sjá sóma sinn í því að setja
punktinn aftan við þessar vísinda-
veiðar.“
Norðmenn sýna búrhvali og
háhyrninga en skjóta hrefnu
Fylgjendur hrefnu- og hvalveiða
við Ísland vísa oft til þess að
hvalaskoðun og hrefnuveiðar
Norðmanna þrífist ágætlega hlið
við hlið. Þetta segir Hörður að sé
alls ekki rétt. „Norðmenn sýna
fyrst og fremst búrhvali og há-
hyrninga, en þeir skjóta hins veg-
ar hrefnu. Kannski getum við Ís-
lendingar eitthvað lært af óförum
ferðaþjónustunnar í Noregi því
hún hefur átt í vök að verjast á
síðustu mánuðum og misserum.
„Ég get ekki annað séð en
að hrefnuveiðunum sé al-
gjörlega stefnt gegn þeim
atvinnurekstri sem hvala-
skoðunarfyrirtækin hafa
verið að byggja upp á und-
anförnum árum. Ef ein-
hverju öðru er haldið fram,
þá tala menn gegn betri
vitund eða þá að menn hafa
ekki kynnt sér í hverju
hvalaskoðun við Ísland er
fólgin,“ segir Hörður Sigur-
bjarnarson m.a. í viðtalinu.
Berjumst fyrir
tilveru okkar
- segir Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri
Norður-Siglingar á Húsavík
Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins
Norður-Siglingar á Húsavík, segir alveg ljóst í sínum huga að til fram-
tíðar muni aldrei ganga upp að veiða hval við landið og bjóða ferða-
mönnum upp á hvalaskoðunarferðir á sömu tegundunum. Hörður telur
að ef sátt yrði um það í alþjóðasamfélaginu kæmi til greina að skil-
greina ákveðin svæði við Ísland sem hvalaskoðunarsvæði, t.d. hafsvæð-
ið fyrir norðan land, en leyfa hrefnuveiðar fyrir vestan land. Þetta segir
hann að sé þó afar slæmur kostur sem hann dregur stórlega í efa að geti
gengið upp.
H VA L A S K O Ð U N