Ægir - 01.01.2004, Síða 12
12
armönnum ber að láta okkur vita
um óhöpp og það sama gildir um
t.d. Tilkynningaskylduna og
Landhelgisgæsluna. Þessir opin-
beru aðilar láta okkur orðið vita
nær undantekningalaust, en skip-
stjórnarmenn þyrftu að bæta sig í
þessum efnum.“
Fundar að jafnaði
einu sinni í mánuði
Rannsóknarnefnd sjóslysa fundar
að jafnaði einu sinni í mánuði og
milli funda undirbúa starfsmenn
hennar mál. Um þau mál sem
tekin eru til rannsóknar skrifar
Rannsóknarnefndin skýrslur þar
sem atvikum er lýst og leitast við
að skýra hvað hafi orsakað við-
komandi slys. Áður en nefndin
sendir skýrslurnar frá sér, er öll-
um hlutaðeigandi aðilum auk
Siglingastofnunar Íslands gefinn
kostur á að gera við þær athuga-
semdir. „Stundum gerum við til-
lögur um hvernig megi bæta ör-
yggi sjófarenda og það er síðan
verkefni Siglingastofnunar Ís-
lands að vinna það áfram. Það er
óhætt að segja að mikill sigur sé
unninn ef unnt reynist að læra af
óhöppunum og færa hluti til
betri vegar.“
Ýmsar orsakir slysa
Jón A. Ingólfsson segir það sína
skoðun að óhöpp og slys til sjós
séu alltof mörg. „Já, ég tel að 350
til 400 óhöpp á ári sé alltof mik-
ið. Sem betur fer eru mörg þess-
ara óhappa og slysa ekki mjög al-
varleg, en engu að síður eru þetta
of mikið,“ segir Jón. Samkvæmt
gögnum Rannsóknarnefndar sjó-
slysa tengjast hlutfallslega flest
slys til sjós hífingum og vindum.
Einnig eru nokkuð algeng slys
þegar menn renna til á þilfari og
klemma sig. Þá má nefna að
skurðir og stungur eru nokkuð al-
gengar og það sama má segja um
fall úr stiga,“ segir Jón.
Innan tíðar má fá allar nánari
upplýsingar um starfsemi Rann-
sóknanefndar sjóslysa á slóðinni
www.rns.is. Nú þegar má þar
meðal annars sjá skýrslur um
óhöpp frá árunum 1998 og 1999
og unnið er að því að færa allar
skýrslur frá árinu 2000 inn á net-
ið. Jón segir ætlunina að koma
skýrslum síðustu ára eins fljótt
inn á veraldarvefinn og mögulegt
er og síðan sé að því stefnt að þær
birtist á netinu strax og þær verði
tilbúnar til opinberrar birtingar.
„Ég geri mér ljóst að margir líta á Rannsóknarnefnd sjóslysa sem
einskonar lögregluvald og að vissu leyti óvin. Þetta er mikill mis-
skilningur og er að mínu mati liður í þeirri röngu mynd sem menn
hafa af starfi nefndarinnar.“
Rannsóknarnefnd sjóslysa er til húsa í gamla flugstöðvarhúsinu í Stykkishólmi.
Jón A. Ingólfsson hóf
störf sem fram-
kvæmdastjóri Rann-
sóknanefndar sjóslysa
í nóvember árið 2001
og í kjölfarið var að-
setur nefndarinnar
flutt frá Hafnarhús-
inu í Reykjavík í flug-
stöðvarhúsið í Stykk-
ishólmi.
Jón er skipstjórnarmenntaður
og var skipstjóri til fjölda ára,
lengst af hjá Ríkisskip. „Eftir að
sú útgerð var lögð niður ákvað ég
að söðla um og fór í Samvinnuhá-
skólann á Bifröst og lærði þar
rekstrarfræði. Að námi loknu
starfaði ég sem forstöðumaður
hafnarþjónustu Reykjavíkurhafn-
ar í rösk fjögur og hálft ár. Þá var
þessi staða auglýst. Ég sótti um
og bauðst síðan að taka starfið að
mér, ég ákvað að taka því, enda
hef ég lengi haft áhuga á þessum
málum. Það kemur sér mjög vel í
þessu starfi að vera skipstjórnar-
menntaður og þekkja þannig til
aðstöðu sjómanna um borð í skip-
unum og þeirra véla sem þeir eru
að vinna við dags daglega. Ég er
líka byrjaður að fara í ferðir með
mismunandi fiskiskipum til að
fylgjast með og læra til að halda
mér ferskum og í betri tengslum
við það sem er að gerast.“
Hef lengi haft áhuga á þessum málum