Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2004, Síða 13

Ægir - 01.01.2004, Síða 13
13 R A N N S Ó K N A R N E F N D S J Ó S LY S A Í lögunum um Rannsóknar- nefnd sjóslysa kemur fram að hún starfi sjálfstætt og óháð stjórn- völdum og öðrum rannsóknarað- ilum, ákæruvaldi og dómstólum. Nefndin ákveði sjálf hvenær efni séu til rannsóknar sjóslyss um- fram það sem henni er skylt sam- kvæmt lögunum. Lögsaga nefnd- arinnar tekur „til allra íslenskra skipa, svo og allra erlendra skipa í siglingum að og frá landinu þegar sjóslys varðar íslenska hagsmuni. Heimilt er nefndinni að rannsaka önnur slys eða atvik sem verða á erlendum skipum er koma til landsins eða í íslenska efnahags- lögsögu ef nefndin telur ástæðu til þess eða þess er óskað af fána- ríki.“ Rannsóknarnefndinni er ætlað að rannsaka: 1. Sjóslys þar sem skráð skip eiga hlut að máli og sem verða á íslensku yfirráðasvæði, 2. Sjóslys þar sem skip skráð á Íslandi á hlut að máli, hvar sem það er statt í heiminum, 3. Slys og önnur atvik til sjós og á vötnum sem verða á óskráð- um skipum, þ.m.t. skipum undir 6 metrum að lengd. Þá kemur fram í lögum um Rannsóknarnefnd sjóslysa að skipstjóra eða þeim er kemur í hans stað sé skylt að annast skrán- ingu og tilkynningu allra slysa á mönnum sem verða á skipi. Skráningar- og tilkynningar- skyldan tekur m.a. til hvers konar vinnuslysa á sjó, eitrana, atvinnu- sjúkdóma og annarra þeirra at- vika sem þýðingu kunna að hafa í því sambandi. Skýrslum Rannsóknarnefndar sjóslysa skal ekki beitt sem sönn- unargögnum í opinberum mál- um, enda er markmið sjóslysa- rannsókna samkvæmt lögum um nefndina að greina orsakaþætti sjóslysa í því skyni að koma í veg fyrir að slys af sömu eða sambæri- legum orsökum endurtaki sig til sjós. Tilgangurinn er ekki að skipta sök eða ábyrgð. Á síðasta vorþingi voru sam- þykkt lög nr. 57/2003 um breyt- ingu á lögum um rannsókn sjó- slysa, nr. 68/2000. Þar er megin- breytingin m.a. sú að þegar við á skal Rannsóknarnefnd sjóslysa láta rannsókn ná til fyrirkomu- lags tilkynninga um sjóslys, til leitar, björgunaraðgerða og ann- arra aðgerða sem ætla má að dragi úr afleiðingum sjóslysa. Lög frá árinu 2000 um Rannsóknarnefnd sjóslysa: Markmiðið að koma í veg fyrir slys og auka öryggi sjófarenda Rannsóknarnefnd sjóslysa starfar samkvæmt lögum nr. 68 frá árinu 2000 með síðari tíma breytingum. Lögin taka til slysa og atvika til sjós og einnig til svokallaðra köfunarslysa. Rannsóknir nefndarinnar miða að því að koma í veg fyrir slys um borð í skipum og auka öryggi sjófarenda. Rannsóknarnefndin hefur ekki með höndum svokallaða meinta refsiverða háttsemi í tengslum við sjóslys - þau mál heyra undir lög um meðferð opinberra mála. Fimm manna nefnd Í Rannsóknarnefnd sjóslysa eru eftirtaldir aðalmenn: Ingi Tryggvason, lögfræðingur, formaður, Hilmar Snorrason, skipstjóri og skólastjóri Slysa- varnaskóla sjómanna, Pálmi Jóns- son, vélfræðingur, Emil Ragnars- son, skipaverkfræðingur og Pétur Ágústsson, skipstjóri og útgerð- armaður Ingi. Hilmar. Pálmi. Emil. Pétur.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.