Ægir - 01.01.2004, Qupperneq 27
27
Á árinu 2002 var farið með um
12 þúsund manns í hvalaskoðun í
Norður-Noregi, rúmlega helming
af því sem við hjá Norður-Sigl-
ingu fórum með í hvalaskoðun
sama ár. Hvort sem hrefnuveiðum
Norðmanna er um að kenna eða
ekki, þá er það staðreynd að þessi
atvinnugrein hefur ekki skotið
jafn sterkum rótum og hér á Ís-
landi,“ segir Hörður.
Áhugi á eikarbátum
Norður-Sigling á Húsavík gerir
út fjóra eikarbáta, Knörrinn,
Hauk, Náttfara og Bjössa Sör.
Gríðarleg vinna hefur verið lögð í
endurbætur á þessum bátum, en
Hörður segist ekki sjá eftir einni
einustu mínútu sem í þær hafa
farið. Upphaflega var ekki ætlun-
in að fara út í slíka stórútgerð,
þeir bræður Árni og Hörður Sig-
urbjarnarsynir höfðu það einungis
á stefnuskránni að kaupa einn
eikarbát og gera upp til þess að
bjarga menningarverðmætum.
„Okkur langaði að eignast eikar-
bát til þess hreinlega að varðveita
hann. Við vissum að erlendis
hafði mikið verið gert af því að
gera upp og varðveita slíka báta,
en hér á landi var eins og öllum
væri sama um þá. Í framhaldinu
varð okkur hins vegar ljóst að til
þess að standa undir fjárfesting-
unni á Knerrinum yrðum við að
gera hann út og afla tekna af hon-
um með einhverjum hætti. Úr
varð að við fórum í hvalaskoðun-
ina árið 1995 og hún hefur síðan
vaxið ár frá ári.“
Að bjarga menningar-
verðmætum
Hörður segist hafa kynnst eikar-
bátunum þegar hann sem ungur
maður fór til sjós frá Húsavík, en
tvítugur hafði hann verið níu
sumarvertíðir til sjós. „Ég var
m.a. á tveimur eikarbátum frá
Húsavík, annar þeirra hét And-
vari, hinn Glaður. Einnig var ég
eina vertíð á furu- og eikarbát
sem var gerður út frá Flatey á
Skjálfanda,“ segir Hörður og játar
því að hann hafi snemma fengið
sjómennskubakteríuna. Í fram-
haldinu lauk hann vélstjórnar-
prófi og nýtti þá menntun í tvo
áratugi sem vélavörður hjá Kísil-
iðjunni í Mývatnssveit og Kröflu-
virkjun. Síðan tók við endurgerð
eikarbátanna og útgerð þeirra til
hvalaskoðunar á Skjálfanda. „Við
keyptum Knörrinn í maí 1994 og
höfðum þá skoðað slíka báta um
allt land. Þennan bát fundum við
loks á Grenivík og sáum strax að
þetta var nákvæmlega báturinn
sem við vorum að leita að. Knörr-
inn var á sínum tíma smíðaður
fyrir Hríseyinga og hét Auðunn
EA fyrstu tólf árin. Báturinn var
smíðaður á Akureyri, en þar var á
sínum tíma mjög öflug bátasmíði
og að margra mati voru þar smíð-
aðir fallegustu eikarbátarnir. Þeg-
ar mest var voru starfræktar fimm
bátasmiðjur á Akureyri og því var
þar gríðarlega mikil þekking til
staðar á þessu sviði. Við unnum
að því í eitt ár að gera Knörrinn
upp. Báturinn var í nokkuð góðu
ásigkomulagi, en það voru
ákveðnir hlutir sem við þurftum
að lagfæra. Við hófum síðan að
gera Knörrinn út á hvala- og
náttúrskoðun sumarið 1995 og
var þetta í fyrsta skipti sem hald-
ið var úti fastri áætlun í slíkar
ferðir. Mörgum þótti þetta skrýt-
in útgerð, ekki síst undruðust
ýmsir sjómenn hvað við værum
að fara út í. En fljótlega áttuðu
menn sig á því að full ástæða væri
til þess að bjóða upp á slíkar ferð-
ir fyrir ferðamenn og lýstu
ánægju sinni með þetta framtak,“
segir Hörður.
Fjórir eikarbátar í
hvalaskoðun
Næsti hvalaskoðunarbátur Norð-
ur-Siglingar var Haukur, sem
Hörður segir að fundist hafi vest-
ur á Bolungarvík. Þessi bátur var
í slæmu ásigkomulagi og vart
haffær þegar Norður-Sigling tók
við honum. Því næst kom Nátt-
fari, sem sömuleiðis var mjög illa
farinn þegar viðgerð á honum
hófst. Náttfari er langstærsti bát-
ur Norður-Siglingar og segir
Hörður að Húsvíkingar hafi við
kaupin á Náttfara talið að nú
Í tengslum við hvalaskoð-
unarferðirnar hefur þetta
fallega hús, Gamli Baukur,
verið byggt upp á hafnar-
svæðinu, en þar er m.a.
veitingasala.
Horft yfir miðbæ Húsavíkur og hafnarsvæðið.
H VA L A S K O Ð U N