Ægir - 01.01.2004, Qupperneq 30
„Við erum í raun rétt að byrja
að kynna þetta tæki hér á landi.
Ég get nefnt að nú þegar hefur
Eimskip keypt tæki um borð í sín
flutningaskip,“ segir Arna þegar
hún er innt eftir því hversu víða
tækið sé komið hér á landi.
Arna segir að Endurlífgunarráð
Íslands hafi látið frá sér fara yfir-
lýsingu þar sem fram kemur að
ráðið hvetur til þess að slíkt end-
urlífgunartæki sé tiltækt sem víð-
ast, en til þessa hefur það einung-
is verið á sjúkrahúsum og í
sjúkrabifreiðum.
Lítið og handhægt tæki - raf-
stuð og aðstoð við endurlífg-
un með hjartahnoði.
Endurlífgunartækið frá Zoll er
lítið og handhægt. Elektróður eru
límdar á sjúkling, innbyggt forrit
greinir hjartsláttartruflanir við-
komandi, tækið gefur upplýsing-
ar um hvort gefa eigi rafstuð eða
fara í endurlífgun með hjarta-
hnoði.
Sérhannaðar elektróður hafa tvo
meginkosti:
1. Engin spurning um stað-
setningu á sjúklingi.
2. Nemi sem finnur hvernig er
hnoðað og sendir boð til
tækis sem á móti gefur skip-
anir um hvernig skal hnoða;
hratt, hægt, fast eða laust.
Arna A. Antonsdóttir bendir á
að ef einstaklingur fer í hjarta-
stopp, séu fumlausar aðgerðir
þeirra sem eru á vettvangi lykilat-
riði og því ákaflega mikilvægt að
hafa aðgang að einföldu og skil-
virku endurlífgunartæki. „Stað-
reyndin er auðvitað sú að maður
les ekki leiðbeiningar með dauð-
an mann fyrir framan sig. Þetta
endurlífgunartæki er mjög einfalt
í notkun og það má orða það svo
að það leiði notandann áfram
skref fyrir skref. Ég vil því hik-
laust segja að það geti hver sem er
notað tækið með miklu öryggi,“
segir Arna og bendir á að áhrifa-
mesti þátturinn í endurlífgun sé
sá tími sem líði frá því að mann-
eskja fer í hjartastopp og þar til
hjartað er komið í eðlilegan gang.
Tölur sýna að ef viðkomandi er
gefið rafstuð innan við mínútu frá
hjartastoppi eru lífslíkurnar allt
að 90%. Möguleikar á endurlífg-
un minnka hins vegar um 7-10%
með hverri mínútu sem líður eftir
hjartastopp. Eftir tólf mínútur frá
hjartastoppi eru lífslíkur sjúk-
lings því aðeins 2-5%.
Leiðir notandann áfram
„Það eru líklega ekki nema tvö ár
síðan þetta tæki frá Zoll kom
fyrst á markaðinn og við erum
bara rétt að byrja að kynna það
hér á landi,“ segir Arna.
Zoll endurlífgunartækið er eins
og áður segir bandarískt og bygg-
ir á nýrri tækni sem er svokallað
tveggja fasa bylgjuform (Rect-
ilinear Biphasic Waveform). Þessi
tækni hefur þann kost að hægt er
að nota minni styrk í rafstuði.
AED Plus frá ZOLL veitir ekki
aðeins hjartarafstuð, það aðstoðar
líka við hjartahnoð og fer þannig
í gegnum allan endurlífgunarfer-
ilinn. Tækið leiðir notandann
áfram bæði með munnlegum
skipunum og einnig á myndræn-
an hátt. Innan skamms er við það
miðað að tækið verði komið með
íslenskt viðmót.
„Slysavarnaskóli sjómanna hef-
ur fengið tæki frá okkur og ég
vænti þess að leiðbeiningar um
notkun þess verði settar inn í
grunnnámskeið sjómanna. Endur-
lífgunarráð Íslands, sem starfar á
vegum Landlæknisembættisins,
hefur mælt með því að þetta tæki
verði aðgengilegt á sem flestum
stórum vinnustöðum og þar sem
margir koma saman, t.d. í sund-
laugum og langferðabílum.
Einnig á stöðum þar sem örðugt
er að koma fólki fljótt undir
læknishendur, eins og t.d. úti á
sjó. Það má líka geta þess að víða
erlendis er farið að koma þeim
fyrir á deildum spítala, þau þykja
það handhæg.
Það er enginn vafi að þetta tæki
getur bjargað mannslífum, slíkt
er dýrmæt,“ segir Arna A. Ant-
onsdóttir.
Byrjað að kynna endurlífgunartæki frá Zoll hér á landi:
Tel að slíkt tæki verði komið
í öll skip innan fárra ára
- segir Arna A. Antonsdóttir hjá Inter ehf.
Fyrirtækið Inter ehf. í Reykjavík hefur hafið
sölu á endurlífgunartæki frá bandaríska fram-
leiðandanum Zoll. Fyrir utan mjög góða virkni
tækisins er einn höfuðkostur þess að það þykir
einfalt í notkun. Arna A. Antonsdóttir hjá Int-
er segir að nú þegar sé byrjað að kynna tækið í
Slysavarnaskóla sjómanna og hún telur að
innan fárra ára verði slíkt tæki komið í öll hér-
lend fiskiskip.
Endurlífgunartækið frá Zoll þykir einfalt
í notkun, sem er mikill kostur.
Arna A. Antonsdóttir
hjá Inter ehf. með
endurlífgunartækið.
Eins og sjá má rúmast
það í litlum handhæg-
um kassa.
Myndir: Sverrir Jónsson.
30
E N D U R L Í F G U N