Ægir - 01.01.2004, Side 31
31
B R E Y T T F I S K I S K I P
„Mér líst mjög vel á þær
breytingar sem hafa
verið gerðar á bátnum.
Þær eru allar mjög til
bóta,“ segir Karl Ólafs-
son, skipstjóri á drag-
nóta- og togbátnum
Erni KE-14, en í desem-
ber sl. var byggt yfir
hluta vinnsluþilfars og
einnig var sett um borð
í hann ný ískrapa- og
sótthreinsunarkerfi.
Örn KE er 159 tonna stálbátur,
smíðaður í Póllandi árið 1995.
Það er Sólbakki ehf. í Njarðvík
sem gerir bátinn út, en að þeirri
útgerð stendur hinn kunni út-
gerðarmaður Örn Erlingsson. Sjö
menn eru í áhöfn Arnar, frá
Keflavík og Sandgerði. Útgerðin
hefur gengið vel og aflabrögðin
verið prýðileg. Á síðasta ári
fiskaði Örn KE-14 um 1000
tonn, en var þó ekki á veiðum í
þrjá mánuði. Í ár væntir Karl
skipstjóri þess að báturinn verði
enn aflasælli en í fyrra, enda hefur
verið keyptur töluverður kvóti á
hann frá því á síðasta fiskveiðiári.
Í þorskígildum er kvóti yfirstand-
andi fiskveiðiárs um 1.240 tonn,
þar af er þorskkvótinn um 420
tonn, ýsan um 230 tonn, sand- og
skarkolakvótinn er um 480 tonn,
tæplega 90 tonn af skötusel, um
63 tonn af steinbít og um 50
tonn af ufsa.
Betra hráefni með ískrapanum
„Það var unnið að breytingum á
skipinu í desember og við fórum
síðan á sjó strax 2. janúar. Þetta
kemur mjög vel út, það er að
sjálfsögðu allt annað líf þegar öll
aðgerðaraðstaða er komin undir
þak. Og sömuleiðis er mikið
framfaraspor að fá ískrapavél um
borð. Ég held að sé óhætt að segja
að hráefnið sé allt annað og betra.
Fiskurinn er miklu hvítari en
áður, hann blæðir miklu betur í
krapanum,“ segir Karl.
Allur afli Arnar KE er seldur á
fiskmarkaði, með því móti fær
útgerðin besta verðið, að sögn
Karls.
DIS-sótthreinsunarkerfi um
borð í Erni KE-14
Það var Gjörvi ehf. - vélaverk-
stæði í Reykjavík sem byggði yfir
þilfar Arnar KE-14. Ískrapakerfið
sem var sett um borð er frá STG-
ísvélum. Um er að ræða svokallað
STG-fjölískerfi, auk ístanks, ís-
lagnakerfis í lest og á millidekki.
Þá var sett um borð í bátinn svo-
kallað ByoTrol-sótthreinsikerfi frá
DIS ehf. í Reykjavík. Karl Ólafs-
son skipstjóri segir að millidekk
og lest sé þvegin eftir hverja
löndun með þessu kerfi. Slíkt
kerfi hefur þegar verið sett upp í
tíu togurum og bátum, auk þess
sem það er komið í sex fisk-
vinnsluhús um allt land.
Við notkun DIS-kerfisins
myndast einskonar þoka úr vatni
og sótthreinsiefninu ByoTrol.
Vökvinn dauðhreinsar allt sem
hann kemur nálægt og eiginleik-
ar þrýstikerfisins eru þess eðlis að
efnið smýgur allsstaðar og er því
mikilvæg leið til sótthreinsunar.
Auk þess að sótthreinsa aðgerðar-
rýmið og lestina eru öll fiskikerin
spúluð í hólf og gólf, sem og sjó-
gallar áhafnarinnar. Sótthreinsi-
vökvinn myndar húð sem bæði
eyðir örverum og bakteríum og
hindrar fjölgun þeirra.
Líst mjög vel á
þessar breytingar
- segir Karl Ólafsson, skipstjóri á
dragnóta- og togbátnum Erni KE-14
Örn KE-14 við bryggju í Sandgerði. Myndir Sverrir Jónsson.
Karl Ólafsson, skipstjóri.