Ægir - 01.01.2004, Blaðsíða 34
34
K Æ L I T Æ K N I
Gauti Hallsson, framkvæmda-
stjóri Kælismiðjunnar Frosts, er
staðsettur á Akureyri. „Höfuð-
stöðvar fyrirtækisins voru áður
fyrir sunnan, en nú eru þær hér á
Akureyri. Við erum með þjón-
ustumenn bæði hér og í Garðabæ,
sem þjóna jöfnum höndum við-
skiptavinum okkar um allt land.
Í Garðabæ eru sex starfsmenn, en
hér á Akureyri eru starfsmennirn-
ir fimmtán, þar af tíu þjónustu-
menn.
Þau verkefni sem við erum
fyrst og fremst að fást við er að
hanna, smíða og setja upp ný
kælikerfi, breyta eldri kerfum og
annast almennt viðhald á þeim.
Þetta á við um t.d. frystihús,
frystigeymslur, ísverksmiðjur,
rækjuverksmiðjur, kjöt- og
mjólkurvinnslur svo og kælikerfi
um borð í fiskiskipum.
Við höfum einnig sett upp
kælikerfi í mörgum verslunum og
sjáum um allt viðhald á þeim.
Þessi kælikerfi eru mörg hver
tengd við vakttölvur hjá okkur
sem láta okkur vita ef eitthvað
ber út af. Ef einhver bilun verður
lætur tölvan okkar þjónustumenn
vita strax og þá er hægt að bregð-
ast fljótt við og koma í veg fyrir
tjón á vörum, allan sólarhring-
inn.“
Umfangsmikill innflutningur
Kælismiðjan Frost er nokkuð
umfangsmikil í innflutningi á
nýjum búnaði og varahlutum í
kælikerfi. Til dæmis er fyrirtækið
umboðsaðili fyrir York Refriger-
ation á Íslandi, sem hefur á sínum
snærum vörumerkin Sabroe,
Frick, Gram og Stål.
Fyrirtækið sér um viðgerðar- og
varahlutaþjónustu fyrir York og
hafa margir þjónustumenn fyrir-
tækisins sótt námskeið erlendis
til þess að afla sér þekkingar á því
sviði. Einnig sér Kælismiðjan
Frost um viðgerðir og viðhald á
Howden og Grasso kæliþjöppum
auk annarra merkja. Þá er fyrir-
tækið sölu- og þjónustuaðili fyrir
plötufrysta frá Dybvad Stål
Industri, iðnaðar-, frysti -og kæli-
klefahurðir frá Dan-Doors, kæli-
miðilsdælur og annan búnað frá
Witt og frysti-og kælikerfi frá
Profroid Industries.
Verkefni erlendis
Eins og áður segir er Kælismiðjan
Frost með verkefni út um allt
land og einnig hefur fyrirtækið
tekið að sér metnaðarfull verkefni
erlendis. Þannig hefur Frost unn-
ið að því á síðustu mánuðum að
smíða og setja upp gríðarstóran
frysti í Kollafjord Pelagic í Fær-
eyjum, afar fullkominni vinnslu-
stöð fyrir uppsjávartegundir, í
samvinnu við Skagann hf. „Þetta
er stórt verkefni, hér er um að
ræða stærsta frysti sem við höfum
sett upp til þessa,“ segir Gauti
um þetta viðamikla verkefni í
Færeyjum og bætir við að í mörg
undanfarin ár hafi Kælismiðjan
Frost annað slagið tekið að sér
uppsetningu kælikerfa um borð í
fiskiskipum í smíðum fyrir Ís-
lendinga erlendis. „Okkar mark-
aður er fyrst og fremst hér á Ís-
landi, en það er vissulega mjög
góð búbót fyrir okkur að takast á
við verkefni erlendis,“ segir
Gauti.
Í sóknarhug
Rekstur Kælismiðjunnar Frosts
gekk ágætlega á síðasta ári og
Gauti telur að fyrirtækið hafi alla
burði til sóknar á markaðnum,
enda hafi starfsmenn þess yfir yf-
irgripsmikilli þekkingu og
reynslu að ráða. Hann telur að
eftir sem áður verði sjávarútveg-
urinn sá geiri atvinnulífsins sem
Frost muni leggja mesta áherslu
á, en enginn vafi sé á að sótt verði
fram á öðrum sviðum. Í því sam-
bandi nefnir hann að Kælismiðj-
an Frost hafi verið að selja kæli-
kerfi til tölvuhýsingarfyrirtækja
og einnig sé vaxandi áhersla á
loftkælingu á vinnustöðum. „Ég á
von á því að starfsfólk muni al-
mennt gera auknar kröfur varð-
andi loftræstingu á vinnustöðum,
auk þess sem reglur á þessu sviði
verða sífellt strangari,“ segir
Gauti Hallsson, framkvæmda-
stjóri Kælismiðjunnar Frosts.
Kælismiðjan Frost hefur sett
upp nýja heimasíðu á slóðinni
www.frost.is og þar má nálgast
ýmsar upplýsingar um fyrirtækið
og þjónustu þess. Á nýju heima-
síðunni er m.a. möguleiki að
fylgast með fréttum af verkum og
nýjungum hjá Frost, einnig er
gert ráð fyrir að hægt verði að
auglýsa til sölu og auglýsa eftir
notuðum búnaði, en þörf fyrir
slíkt hefur vaxið töluvert á sl.
árum. Einnig er fyrirhugað að
bjóða upp á ýmsan fróðleik
tengdan kælitækninni.
Kælismiðjan Frost ehf:
Leggur áherslu á kælikerfin
Kælismiðjan Frost ehf. er stærsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar hér á landi og rekur þjónustudeildir
á Akureyri og í Garðabæ. Fyrirtækið hefur í
mörg undanfarin ár verið í fararbroddi í upp-
byggingu og þjónustu á kælikerfum fyrir helstu
útgerðar- og matvælavinnslufyrirtæki landsins.
Rösklega 80% af veltu Kælismiðjunnar Frosts
koma af verkefnum sem fyrirtækið vinnur fyrir
sjávarútveginn - útgerð og fiskvinnslu.
Gauti Hallsson,
framkvæmdastjóri
Kælismiðjunnar
Frosts ehf.