Ægir - 01.01.2004, Síða 40
40
N Ý S K Ö P U N
Óskar Friðrik orðar það svo að
hann hafi verið með hugmyndina
að harðkorna skósólum í magan-
um í ein fimm ár. Hann þekkir
vel til skóframleiðslu, enda rak
hann skóframleiðslufyrirtæki í
Portúgal um níu ára skeið. „Síð-
astliðin þrjú ár hef ég einbeitt
mér algjörlega að verkefninu og
núna er varan tilbúin til fram-
leiðslu,“ segir Óskar.
Harðkornum blandað saman
við ekta gúmmí
„Sólarnir eru þannig að harðkorn-
unum er blandað saman við ekta
gúmmí og síðan er beitt ákveð-
inni vinnsluaðferð, sem ég hef
þróað, við að koma kornunum í
gúmmíið og bræða sólana. Rann-
sóknir hafa sýnt að gúmmí bland-
að með harðkornum gefur allt að
30% meira grip en gúmmí án
harðkorna. Það er því í mínum
huga alveg ljóst að fyrir t.d. sjó-
menn og starfsfólk í fiskvinnslu
myndu svona skósólar nýtast
mjög vel.“
Íslenskir neytendur kannast vel
við harðkorna hjólbarða, sem
komu á markaðinn fyrir nokkrum
árum. „Það má segja að ég sé að
vinna út frá hugmyndinni um
harðkorna dekk, þó svo að fram-
leiðsluferlið sé mjög ólíkt og auk
þess eru notað töluvert annað efni
í skósólana og stígvélin en dekk-
in,“ segir Óskar.
Harðkornin hafa þann eigin-
leika að við viðnám virka þau eins
og einskonar naglar. Þess vegna
verður stöðugleiki viðkomandi
mun meiri en ella þegar t.d. er
gengið á ís eða á blautu gólfi í
matvinnslufyrirtæki.
Næsta skref er að finna fjár-
magn og samstarfsaðila
„Næsta skref er að finna fjármagn
og samstarfsaðila í þetta verkefni.
Til þessa hef ég dregið vagninn
einn og fjármagnað þetta þróun-
arverkefni sjálfur. En nú er komið
að því að fleiri komi að verkefn-
inu og ég bind miklar vonir við
að það takist. Varan er tilbúin til
framleiðslu, en áður en að því
kemur þarf ég að fá fjárfesta að
verkefninu,“ segir Óskar.
Hann segir að viðtökur hafi til
þessa verið framúrskarandi góðar
og mikill áhugi sé fyrir því að
fara í framleiðslu á skófatnaði
með þessum sólum. Þegar liggja
fyrir áætlanir um að stígvélin
verði fjöldaframleidd í Kína en
annar skófatnaður í Portúgal.
Breið vöruflóra
„Vöruflóran er mjög breið. Ég hef
nefnt sjávarútveginn, en einnig
má nefna allan matvælafram-
leiðslugeirann, stígvél á börnin í
leikskólum, veiðistígvél, reiðstíg-
vél fyrir hestamenn og fjall-
gönguskó, svo dæmi séu nefnd.
Einnig eru uppi áætlanir um að
framleiða öryggisskó með stáltá
fyrir iðnaðarmenn og einnig
venjulega götuskó fyrir almenn-
ing. Ég vil gjarnan geta byrjað að
prófa þennan skófatnað hér á Ís-
landi áður en farið er inn á alþjóð-
legan markað,“ segir Óskar. „Í
mínum huga er spurningin ekki
sú hvort þessar vörur koma á
markað, heldur hvenær. Við skul-
um hafa í huga að samkvæmt
tölulegum upplýsingum má rekja
um helming slysa á Íslandi til
þess að fólk hreinlega hrasar eða
dettur á jafnsléttu. Þess vegna er
gríðarlega mikilvægt atriði að
fólk fái betri og öruggari skófatn-
að til þess að minnka hættuna á
slíkum óhöppum. Ef þessum slys-
um myndi fækka um þó ekki
væri nema nokkur prósent,
myndi það spara viðkomandi ein-
staklingum, atvinnulífinu og
þjóðfélaginu öllu umtalsverða
fjármuni.
Bara í Bandaríkjunum detta og
slasa sig um 25 þúsund manns á
dag. Það er því til mikils að vinna
að koma með öruggari skófatnað
á markaðinn en nú er og ég full-
yrði að hér er komin ákveðin
lausn á því,“ segir Óskar Friðrik
Jónsson.
Green Diamond harðkornasólar
fyrir skó og stígvél
„Ég tel að þessi lausn muni m.a. nýtast mjög
vel í sjávarútvegi, bæði fiskvinnslu og sjó-
mennsku, enda eru sólarnir þeirrar gerðar að
þeir eru ekki eins hálir og venjulegir skór,“
segir Óskar Friðrik Jónsson hjá fyrirtækinu
GDTS ehf, sem undir lok síðasta árs hlaut
fyrstu verðlaun í Nýsköpun 2003 fyrir hönnun
á nýrri gerð skósóla með harðkornum.
Óskar Friðrik Jónas-
son, hönnuður og
guðfaðir Green
Diamond harðkorna-
sólanna. Myndir: Sverrir Jónsson.