Ægir - 01.05.2005, Page 38
38
U M H V E R F I S M Á L
„Það færist í vöxt að þeir sem
kaupa fisk og dreifa honum á er-
lendum mörkuðum vilja geta
sagt sínum viðskiptavinum að vel
sé staðið að veiðum á fiskinum.
Almennt má segja að það er al-
mennt aukin vitund almennings
um umhverfisvernd og þar með
hvernig staðið er að fiskveiðum.
Þetta er þróun sem í sjálfu sér er
æskileg og við teljum okkur geta
mætt. En þetta þýðir að við Ís-
lendingar þurfum með markviss-
um hætti að koma á framfæri
upplýsingum við kaupendur ís-
lenskra sjávarafurða hvernig við
stöndum að fiskveiðum. Fiskifé-
lagið og aðildarfélög þess vinna
mikið á þessum vettvangi sem
m.a. felur í sér hvernig koma
megi slíkum upplýsingum á
framfæri á góðan, öruggan og
hagkvæman hátt.“
- Hvernig er unnt að gera það?
„Til þess eru ýmsar leiðir. Við
erum fyrst og fremst að tala um
veiðar á fiski á sjálfbæran hátt.
Okkar veiðar grundvallast á fjöl-
þættum rannsóknum, sem fara
inn í alþjóðlegt matskerfi - hjá
ICES og fleirum. Okkar boðskap-
ur er að við stöndum að veiðum í
samræmi við alþjóðlega viður-
kenndar aðferðir. Ein leiðin sem
menn hafa séð í þessu eru svoköll-
uð umhverfismerki, sem afurðir
eru merktar með ef þær standast
kröfur. Marine Stewardship
Council (MSC) eru samtök sem
fyrir nokkrum árum voru stofnuð
af Unilever, sem er stór kaupandi
á fiski, og World Wide Fund for
Nature. Þessi samtök hafa verið
að bjóða upp á að taka út fiski-
stofna og stimpla vörurnar
þannig að neytendur geti þekkt
þeirra merki. Við höfum haft ým-
islegt við aðferðir MSC að athuga.
Þeirra aðferðafræði stenst að okk-
ar mati ekki öll alþjóðlega hefð í
sambandi við faggildingu og
vottun og viðmið. Við teljum
ekki erfitt að rökstyðja að það
eigi ekki að vera á hendi eins slíks
aðila að setja fiskveiðum reglur
og ákvarða hverjir fái vottun um
að þær standist reglur.
MSC eru með einhverja tugi
stafsmanna og eyða miklum fjár-
munum í áróður. Og við vitum að
innan samtakanna togast á ólíkir
hagsmunir þar sem græn samtök
sem vilja öfgar í þessum málum,
hafa veruleg áhrif.
Almennt má segja að menn séu
í stórum dráttum sammála um að
ganga um auðlindir sjávar af var-
úð. Hins vegar geta menn deilt
um hvernig eigi að skilgreina
slíka varúð. Á meðan átök eru
Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands:
Umhverfismálin verða
æ þýðingarmeiri í
sjávarútvegsumræðunni
Eitt af stærstu verkefnum Fiskifélags Íslands lýtur að umhverfismálum í margbreyti-
legum skilningi þess orðs. Þar á meðal hefur félagið beint kröftum sínum í vinnu er
lýtur að þeirri vaxandi kröfu fiskkaupenda og -neytenda að vita hvernig að veiðum á
fiskinum sé staðið. Umhverfismálin voru eitt af stóru málunum á Fiskiþingi í apríl sl.
Ægir tók hús á Pétri Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Fiskifélagsins, og ræddi við hann
um umhverfismálin og önnur mál sem eru inni á borði Fiskifélagsins.
Pétur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Fiskifé-
lags Íslands.
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:09 Page 38