Ægir - 01.05.2005, Blaðsíða 49
49
ar og eru útbúnir með sjálfvirkri
tæmingu. Optimar Ísland afhenti
allan samhangandi vinnslubúnað í
tengslum við frystingu, þ.e. inn-
mötunarbönd að frystum, 20 lóð-
rétta frysta, sjálfvirkan tæmibún-
að fyrir frystar blokkir, plöstun á
frystri blokk og tvöfaldri hleðslu-
stöð fyrir hleðslu á frystum blokk-
um á bretti.
Fyrir flökun á síld og/eða
kolmunna voru 7 sjálfvirkar VMK
flökunarvélar settar um borð í
skipið. Flökunarvélarnar eru full-
komlega sjálfvirkar og eru útbún-
ar með nýrri útfærslu á roðflett-
ingu þannig að alltaf er til staðar
án nokkurra tilfæringa roðfletting
fyrir bæði síld og kolmunna í
einni og sömu vélinni.
Tilfærsla á hráefni að flökunar-
vélum er gerð með nýju vacuum
sogfærslukerfi frá MMC-Tendos.
Þannig eru við hverja flökunarvél
staðsettir minni vacuum tankar
sem soga til sín hráefni eftir þörf-
um hverrar vélar. Möguleiki er að
vinna tvo stærðarflokka á hverj-
um tíma.
Nýr Style flokkari fyrir upp-
sjávarfisk var settur um borð í
skipið. Við flokkara eru fjögur 8
m3 safnkör fyrir flokkað hráefni.
Færibönd á milliþilfari eru öll
smíðuð af Micro í Kópavogi.
Frystilestar
Neðri frystilest skipsins, sem er
samtals um 4.200 m3, var bretta-
vædd. Hillur fyrir bretti voru
settar í síður lestarinnar og járn-
bent steypa sett í gólf fyrir notk-
un á lyftara við hleðslu á brettum
í lest.
Neðri lest skipsins tekur um
1.800 tonn af frystum afurðum á
brettum. Efri frystilest tekur um
200 tonn af frystum afurðum á
brettum, þannig að heildarmagn
af frystum afurðum á brettum er
um 2.000 tonn.
Brettalyfta og færslukerfi
fyrir bretti
Færslukerfi og lyfta fyrir bretti
voru smíðuð af Skaganum á Akra-
nesi. Kerfið er þannig útfært að
frágangur af afurðum á bretti fer
fram á efra vinnsluþilfari skipsins.
Sjálfvirk færsla er á brettum frá
brettunarstöðvum að lyftu og er
uppsöfnun á 8 brettum fyrir
framan lyftu sjálfvirk. Lyftan er
tvöföld og getur tekið samtals 4
bretti niður í lest eða 2 bretti á
hverri lyftu. Niður í lest eru
brettafæribönd sem taka á móti
þessum fjórum brettum og tæma
Gagngerar endurbætur
voru gerðar á vinnslu
skipsins og nú er þar
komið fullkomið upp-
sjávarfrystihús.
N Ý T T S K I P
Um leið og við þökkum ánægjulegt samstarf um hönnun
breytinga á Engey RE-1 óskum við útgerð skipsins
og áhöfn til hamingju með glæsilegt skip.
Nautic ehf. Lágmúla 5 • 108 • Reykjavík • Sími 540 0510
M
yn
d
:S
ig
u
rð
u
r B
o
g
i S
æ
va
rs
so
n
.
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:09 Page 49