Ægir - 01.05.2005, Qupperneq 45
45
L A X A H R O G N
Laufey sagði í samtali við Ægi
að hrognavinnslan sé samkvæmt
ákveðinni forskrift frá Eistlandi,
en þar er rík hefð fyrir neyslu á
hrognum, rétt eins og mörgum
öðrum löndum Austur-Evrópu og
nægir þar að nefna neyslu Rússa á
styrjuhrognum.
„Við þreifuðum okkur áfram
með þessa framleiðslu og leyfðum
fólki að prófa og viðtökurnar voru
það hvetjandi að við töldum
ástæðu til þess að stíga skrefinu
lengra og fara út í framleiðslu.
Við fáum hrognin frá laxeldisfyr-
irtækinu Rifósi í Kelduhverfi og
það samstarf gengur mjög vel.
Við fáum hrognin til okkar innan
sólarhrings frá slátrun og síðan
eru þau hreinsuð og söltuð áður
en þeim er pakkað í litlar krukk-
ur. Það líða um þrír sólarhringar
frá því að fiskinum er slátrað þar
til varan er tilbúin til neyslu,“
segir Laufey.
Hér á landi eru hrognin mest
notuð í forrétti, á smurbrauðstert-
ur sem skraut, í sushirétti, með
ostum, í salöt og súpur - svo eitt-
hvað sé nefnt.
Góðar viðtökur
Fyrsta alvöru kynningin á laxa-
hrognunum frá Ice & Fire var á
matvælasýningunni MATUR-
INN 2005 á Akureyri í mars og
einnig var kynning á hrognunum
á sýningunni Norðurland 2005 í
Íþróttahöllinni á Akureyri um
hvítasunnuna.
„Viðbrögðin hafa almennt verið
mjög góð. Fyrst og fremst höfum
við verið að selja framleiðsluna í
höfuðborginni - bæði í verslanir
(Fylgifiska við Suðurlandsbraut,
Ostabúðina við Skólavörðustíg og
Yndisauka í Lækjargötu) og til
veitingahúsa og hótela. Á Akur-
eyri eru hrognin seld í Heilsu-
horninu og einnig hefur Friðrik
V. Karlsson verið að nota þetta
hráefni á sínum veitingastað. Við
höfum fengið fyrirspurnir frá að-
ilum um hvort við getum útveg-
að hrogn út allt þetta ár og því
getum við ekki kvartað undan
viðtökunum.“
Stefna á útflutning
Laufey leggur áherslu á að hér sé
um að ræða lífræna framleiðslu og
engin litarefni komi við sögu.
„Við erum enn sem komið er með
þessa einu framleiðsluvöru og
höfum einbeitt okkur að henni,
hvað svo sem síðar kann að verða.
Við vitum ekki nákvæmlega
hversu stór markaðurinn hér inn-
anlands er, en vissulega höfum
við áform um að flytja vöruna
einnig út, en til þess þurfum við
útflutningsleyfi og að uppfylla
ýmis skilyrði. Við vitum t.d. af
miklum áhuga í Eistlandi og ef
gengur upp að koma vörunni á
þann markað, eru líkur á töluvert
mikilli sölu,“ segir Laufey, en
strax í sumar er von á pökkunar-
vél, sem gerir það að verkum að
unnt verður að auka framleiðsl-
una umtalsvert.
Framleiða laxahrogn
á Svalbarðseyri
Laufey Kristjánsdóttir hjá Ice & Fire með laxahrognakrukkur.
Það þarf áræðni og dug til þess að hrinda góð-
um hugmyndum í framkvæmd. Í september sl.
þróaðist góð hugmynd í stofnun fyrirtækisins
Ice & Fire ehf. um framleiðslu á laxahrognum -
vöru sem ekki hefur verið framleidd hér á
landi, svo vitað sé. Fyrirtækið er staðsett á
Svalbarðseyri við Eyjafjörð og eigendur þess
eru tvenn hjón, Laufey Kristjánsdóttir og Jó-
hann Helgason, skipverji á Hákoni ÞH, og
Mait Trink og Kulliki Matson frá Eistlandi.
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:09 Page 45