Ægir - 01.05.2005, Blaðsíða 46
Engey RE-1 er nýjasta
skip íslenska fiski-
skipaflotans og jafn-
framt það stærsta.
Eigandi skipsins er
HB-Grandi hf., en
seljandi er grískt fyr-
irtæki. Skipið hefur
síðustu árin verið
verkefnalaust í Suður-
Kóreu. Engey er 7.805
brúttótonn, 105 m
löng, 20 metra breið
og með sjö þilför.
Skipið var smíðað í
Vigo á Spáni árið
1994 og er hið síðasta
í röðinni af samtals
14 systurskipum sem
smíðuð voru á árun-
um 1991 til 1994.
HB-Grandi keypti skipið í
nóvember á síðasta ári, en síðan
hafa verið unnar gagngerar end-
urbætur á því í Póllandi. Meðal
annars var skipt um allan
vinnslubúnað, komið var fyrir
tuttugu lóðréttum frystitækjum
og sjö sjálfvirkum síldarflökunar-
vélum. Þá voru íbúðir skipverjar
endurnýjaðar í hólf og gólf.
Einn stærsti ávinningurinn við
skipið, að mati Rúnars Þórs Stef-
ánssonar, útgerðarstjóra, er hið
mikla lestarrými, en hún tekur
tvö þúsund tonn af frystum afurð-
um á brettum. Með tilkomu svo
öflugs skips í uppsjávarveiðar
verður unnt að stórauka verðmæti
uppsjávarkvóta fyrirtækisins, en
auk mikillar frystigetu, sem eru
200-250 tonn á sólarhring og
fiskimjölsverksmiðjan um borð
annar allt að 150 tonnum af hrá-
efni á sólarhring.
Strax eftir sjómannadaginn
mun Engey fara í sinn fyrsta túr
undir merkjum HB-Granda og
segir Rúnar Þór að stefnan sé tek-
in á norsk-íslensku síldina.
Allur aðbúnaður skipverja um
borð er fyrsta flokks og athygli
vekur hversu rúmgott vinnurými
er, sem og íbúðir.
Helstu mál
Mesta lengd skipsins er 105 m,
lengd m/lóðlína er 89,80 m,
breidd 20 m, dýpt að fyrsta þil-
fari 9,20 m, dýpt að öðru þilfari
11,8 m og dýpt að togþilfari 14,7
m. Skipið er 7.000 brúttórúm-
lestir, en léttskipsþyngd 4.950
tonn.
Efra fiskvinnslurými er 1.240
fermetrar en neðra fiskvinnslu-
rými 290 fermetrar - fiskvinnslu-
rýmið er því samtals 1.530 fer-
metrar.
Neðri frystilest er 4.200
rúmmetrar en sú efri 375 rúm-
metrar. Mjöllest er 1.250 rúm-
metrar. Heildar rúmtak lesta er
því 5.825 rúmmetrar.
Sjókælitankar (fjórir talsins) eru
samtals 465 rúmmetrar og krapa-
kælitankar (tveir) eru 440
rúmmetrar.
Skipssagan
Eins og fyrr segir var skipið hið
fjórtánda í röðinni af systurskip-
um, sem smíðuð voru í tveimur
skipasmíðastöðvum í Vigo á
Spáni eftir norskri hönnun. Þau
voru smíðuð fyrir rússneska aðila,
en eftir tímabundinn rekstur við
Rússland féllu veiðiheimildir
skipanna niður. Voru þau þá send
á veiðisvæði norður við Alaska til
veiða og vinnslu á alaskaufsa í
samstarfi við norður-ameríska að-
ila. Eftir að því samstarfi lauk
gekk erfiðlega að fá veiðiheimild-
ir fyrir skipin og á endanum var
stórum hluta þeirra lagt árið
2002 í Pusan í Suður-Kóreu.
Eitthvað af þessum skipum er nú
við veiðar á makríl í Kyrrahafi og
við strendur Afríku.
Frá Suður-Kóreu var skipinu
siglt til Las Palmas á Kanaríeyj-
um þar sem fram fór botnskoðun
í slipp. Gerðar voru smávægilegar
breytingar á skipinu neðan
sjólínu í tengslum við fiskileitar-
tæki ásamt sandblæstri og botn-
málun. Um miðjan desember
hélt skipið frá Las Palmas til Ála-
borgar í Danmörku og var bundið
þar yfir jól og áramót. Strax eftir
áramót hélt Engey til Gdynia í
Engey RE-1 - nýjasta skip í íslenska fiskiskipaflotanum:
Stærsta skip flotans
Engey RE-1, stærsta skip ís-
lenska flotans, við bryggju í
Reykjavík.
Myndir: Sigurður Bogi Sævarsson.
46
N Ý T T S K I P
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:09 Page 46