Ægir - 01.05.2005, Síða 47
Póllandi í umfangsmiklar breyt-
ingar sem voru hannaðar af Alfreð
Tulinius hjá ráðgjafafyrirtækinu
Nautic ehf. í samráði við Rúnar
Þór Stefánsson útgerðastjóra HB
Granda hf. og var framkvæmdin í
höndum verktakafyrirtækisins
Nordship í Gdynia.
Breytingarnar miðuðu að því að
búa skipið til veiða og vinnslu á
uppsjávartegundum svo sem síld,
loðnu og kolmunna. Sömuleiðis
var íbúðum skipsins breytt frá því
að vera fyrir 120 manna áhöfn til
að henta þeirri 26 manna áhöfn á
Engey. Þá voru ýmis rými og
kerfi skipsins aðlöguð og lagfærð.
Kælitankar
Fyrir breytingar voru kælitankar
fyrir hráefni í skipinu takmarkað-
ir við fjóra sjókælitanka með sam-
tals rúmtak um 465 m3. Til að
auka móttökurými á hráefni úr
sjó var hefðbundin fiskmóttaka
skipsins, sem var um 180 m3,
dýpkuð niður á neðra vinnsluþil-
far. Þannig var botn fiskmóttök-
unnar lækkaður niður sem nemur
einu þilfari og hún gerð að tveim-
ur aðskildum krapakælitönkum
með um 220 m3 rúmtaki hvor,
eða um 440 m3 samtals. Þannig
er skipið nú með samtals um 905
m3 fyrir hráefni í 6 aðskildum
kælitönkum.
Annar krapakælitankurinn
þjónar hlutverki hefðbundinnar
fiskmóttöku við veiðar á bolfisk-
tegundum. Þannig er sá tankur
útbúinn með lúgur niður við
neðra fiskvinnslurými fyrir mót-
töku á bolfisktegundum til full-
vinnslu á því fiskvinnslurými.
Fiskvinnslurými
Neðra fiskvinnslurými var tæmt
af öllum fyrri búnaði. Dýpkuð
fiskmóttaka, sem nú tekur aftari
hluta af þessu rými, minnkaði
flatarmál þessa vinnslurýmis úr
430 m2 niður í 290 m2.
Í þessu vinnslurými eru nú
staðsett fjögur lárétt frystitæki
sem nýst geta til frystingar á bol-
fisktegundum. Auk þess var á
þessu svæði sett upp nýtt vacuum
kerfi fyrir færslu á hráefni á milli
sjókælitanka og krapatanka eða
til færslu á hráefni til vinnslu á
efra vinnsluþilfari. Nýja vacuum
kerfið fyrir hráefnisfærslu er frá
MMC-Tendos og samanstendur af
3200 lítra vacuum tanki, 2 press-
um og nýju 12“ rörakerfi fyrir
alla tanka, ásamt dælukerfi fyrir
blóðvatn.
Allur fyrri vinnslubúnaður
skipsins var fjarlægður á efra
vinnslurými, sem er samtals 1230
m2, og var það allt sandblásið og
klæðning í síðum og lofti var end-
urnýjuð. Ýmsar röralagnir á milli-
þilfari voru aðlagaðar að nýju
vinnslufyrirkomulagi.
Búnaðurinn á efra vinnsluþilfari
er fyrir vinnslu á uppsjávarfisk-
tegundum - síld, loðnu og
kolmunna - og eru vinnsluafköst
um 200 til 250 tonn á sólarhring.
Á efra fiskvinnslurými var reist
nýtt afmarkað svæði fyrir tuttugu
nýja frysta. Frystarnir eru 36
stöðva lóðréttir frystar frá Optim-
47
N Ý T T S K I P
Fi
sk
if
ré
tt
ir
/G
u
te
n
b
er
g
L
jó
sm
. A
lf
o
n
s
Fi
n
n
ss
o
n
ENGEY RE 1
Óskum HB Granda og áhöfn
til hamingju með glæsilegt nýtt skip
KÆLITÆKNI
Rauðagerði 25 108 Reykjavík
S: 568 4580 Fax: 568 4585 www.cooltech.is
Um borð er krapakerfi frá
aegirmai2005-nota 27.5.2005 17:09 Page 47