Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Page 16
126 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR fara fóstri þeirra og þar með ryðja þegar úr vegi hugsanlegum keppinauti. Frægust allra slíkra sagna er sagan um Heródes, sem lét myrða öll sveinbörn innan ákveðins aldurs í heilli borg. En flestar fóru þessar sögur á sama veg, konungsefnið gekk úr greipum morðvarganna með hjálp einnar og annarrar helgivættar, sem sí og æ vaka yfir velferð mannkynsins. Og þótt ofsótti sveinninn frá Betlehem yrði um síðir nappaður og hengdur á tré sem óbótamaður, öllum Heródesum mannkynsins til mikils fagnaðar, þá urðu enda- lok þessara sagna venjulegast á þá leið, að hinu ofsótta ungbarni tókst að standa yfir höfuðsvörðum hins siðspillta ofsækjara og setjast á veldisstólinn við fagnaðarhyllingu þrautpíndrar þjóðar. Otrúlegt er það, að óprentuð bók á íslandi geti orðið fyrir því- líkum ofsóknum af hendi þeirra, er sjálft ríkisvaldið felur forustu í menningarmálum, að mest minni á þessar þjóðsagnir úr grárri forneskju um ofsóknir gegn ófæddum konungssonum. En svona er það nú samt. Aðgangurinn um þessa bók, áður en hún birtist, og árásirnar á höfund hennar hljóma eins og hreinasta skröksaga, sem margra alda þjóðtrú hefur farið höndum um. Allur gangur málsins um undirbúning þessarar útgáfu virðist vera svo látlaus og eðli- legur sem hugsazt getur. Til er bókmenntafélag á íslandi, sem telur um sex þúsundir félagsmanna. Það er fjölmennasta bókmennta- félagið, sem nokkru sinni hefur stofnsett verið á íslenzkri grund, hver bók, sem frá útgáfu þess kemur, er lesin af hverjum þeim Islendingi, sem nokkurn áhuga hefur fyrir góðum bókmenntum og hæfileika til að meta þær. Mesti fræðimaður þessarar aldar í ís- lenzkri bókmennta- og menningarsögu gerir samning við þetta félag um ritstjórn á ritsafni um „Arf íslendinga", er hann nefnir svo. Það er rit, sem á inni að halda sögu íslendinga frá fyrstu tímum til hinna síðustu, efnahagslega, félagslega og menningarlega sögu þeirra, lýsingu á landi, lífsskilyrðum og lífskjörum í þúsund ár. Margir sérfræðingar höfðu lofað að leggja hönd á plóginn við samningu þessa rits, sem átti að vera hið glæsilegasta, sem þjóðin nokkru sinni hafði eignazt um sjálfa sig og landið sitt. Mikinn hluta þessa rits ætlaði ritstjórinn sjálfur að semja, snjallasti sér- fræðingurinn í bókmenntasögu þjóðarinnar ætlaði að skrifa menn- ingarsögu hennar, og það var gert heyrum kunnugt, að mikill hluti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.