Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Síða 54

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Síða 54
164 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR „Nei,“ svaraði hún. „En sonur þinn er siðferðilega styrkari en margur, sem fullþroska er talinn. Brýndu ekki um of þá viðkvæmu egg, og farðu varlega með hana, svo hún brotni ekki og svo hún særi ekki sjálfan þig.“ „Góðu eiginleikarnir verða aldrei of góðir,“ svaraði ég. Hún þagði um stund. Svo sagði hún: „Tókstu eftir gamla manninum í kirkjunni í dag, honum Jóa, sem kallaður er ræfill?“ Ég játaði því og leit á hana spyrjandi. „Hann hefur nú fengið að reyna, hvað það getur kostað að slá of harkalega á viðkvæma strengi,“ sagði hún. „Viltu að ég segi þér þá sögu?“ Ég játaði einnig því, og við fengum okkur sæti afsíðis. „Hann er ættaður úr minni sveit,“ byrjaði hún. „Hann var þar vinnumaður hjá fátækri ekkju, margra barna móður, og var af öllum talinn afburðamaður að kröftum og dugnaði. Að sama skapi gerði hann miklar kröfur til annarra og stillti, því miður, ekki ætíð orðum sínum í hóf, því lundin var ör og óvægin. Son átti hann á fermingaraldri, að nafni Hálfdán. Og það verð ég að segja, að var einhver sá efnilegasti unglingur, sem ég hef séð, en stórgeðja líka eins og faðirinn. Hann hafði alizt upp hjá Gunnari á Gils- múla, vel efnuðum bónda í sveitinni. í þessu byggðarlagi var það venja í þá daga, og reyndar kannski enn, að færa frá ánum og reka lömbin til fjalls. Það voru erfiðar ferðir og gátu verið hættulegar, því ekki þótti skemmra mega flytja lömbin en inn fyrir fljót, svo þau kæmu ekki aftur, og voru þau ferjuð yfir á tveim stórum bátum. Þetta vor, sem ég hef sérstaklega í huga, voru þeir sammæltir í lambareksturinn, Jóhann þessi, Sigurður bróðir minn og Gunnar á Gilsmúla. Hann hafði helmingi fleiri lömb en hvor hinna, og bar því að láta tvo fjallmenn fullgilda á móti hinum. Rekstrardagurinn var ákveðinn nokkru fyrirfram og skyldu allir mætast á Gilsmúla, sem var innsti bær sveitarinnar, og leggja upp þaðan ekki seinna en klukkan sjö að morgni. — Jóhann kom að Gilsmúla með sín lömb á tilsettum tíma og spurði eftir sam- ferðamönnum sínum. Þá var Sigurður bróðir minn ekki kominn, enda átti hann nokkuð langt að sækja. Jóhanni þótti strax miður,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.