Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Blaðsíða 77
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
187
í upphafi vil ég geta þess, að reynsla mín í þessari ferð veitti
mér endurnýjaða trú á lokasigur vorn og á betri og friðsamari
veröld að afstöðnum sigrinum. Eg kom aftur til Rússlands eftir
fimm ár. Þar hafa örðið miklar breytingar. Moskva hefur stækkað
mikið. Or styrjaldarinnar sjást lítt á henni. Fyrir utan hinar miklu
annir, sem þar ríkja, verður vart séð, að þessi borg eigi í ófriði.
Hermennirnir eru vel klæddir. Einkennisbúningar liðsforingjanna
með nýju axlaskrauti eru glæsilegir. Siðferðið virðist mjög gott.
Það sjást mörg merki mikils matvælaskorts vegna slríðsins. Þó
lítur fólk almennt út sem það fái nógan mat. Skömmtun er strengi-
lega fylgt. Hún er miðið við það, hve mikilvægt starf menn vinna
í þágu stríðsins. Þeir, sem ekki vinna að því, fá minni skammt.
Mér var sagt, að margir lifðu á káli og kartöflum, sem þeir ræktuðu
sjálfir.
Alstaðar eru auðsæ vitni sorgar og harma. Skýrslur telja fallna
og særða, hermenn og borgara, skipla milljónum. Sérhver fjöl-
skylda í Rússlandi hefur misst einhvern ástvin. Hin eðlilega beiskja
fólksins hefur margfaldazt við hina villimannslegu, gegndarlausu
eyðileggingu borga þess og hin dýrslegu grimmdarverk nazistaherj-
anna. Hver einasti karlmaður, hver kona, hvert barn á í stríði og er
ósættanlegur fjandmaður Hitlers.
Ég er þeirrar skoðunar, að hin þjáða þjóð og staðfastir foringjar
hennar sætti sig aldrei við neitt annað en fullkominn sigur og skil-
yrðislausa uppgjöf.
Ég átti Iangar samræður við hina miklu foringja þjóðarinnar,
Stalin marskálk, Molotov utanríkisráðherra, Vorosilov og fleiri
gamla vini. Þeir eru allir önnum kafnir, vinna af kappi, og geta
einhvern veginn komið öllu í verk.
Stalin marskálkur leit vel út, var hraustur og rólegur. Ég varð
ennþá snortinn af hæversku, hyggindum, heilhrigðri skynsemi og
vísdómi þessa frábæra manns. Að mínu áliti er hann sá maður,
sem mestan þátt hefur átt í sköpun Rauða hersins og stóriðnaðar
Rússlands, og samsteypu þeirra í þá miklu vél, sem reyndist liæf til
að veita Hitler viðnám og stöðva hann. Fremur öllu öðru er hann
hægur maður, en hann endurspeglar ómælanlegt sálarþrek. hugprýði
og meðfæddan kraft.