Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Síða 79
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
189
í Alaska, hafa liðsforingjar vorir og hermenn unnið kraftaverk,
en allt af sömu hógværð, sem væru það hversdagsverk. En ég get
fullvissað yður um, að öll þessi verk eru tákn amerísks hugvits, getu
og dirfðar og verðugur minnisvarði amerískum hermönnum.
(2) Meðan ég dvaldi í Rússlandi fyrir sex árum, ferðaðist ég um
þúsundir mílna í Hvíta-Rússlandi, Úkraínu, Kákasus og Donets-
héruðunum, til þess að kynna mér iðnað og akuryrkju á þeirn stöð-
um, þar sem sagt var að 60% af iðnaði Rússlands væri framleitt.
í þetta sinn langaði mig til að skoða landið hjá Úralfjöllunum og
í Síberíu, svo að ég fór heimleiðis um Alaska.
í einni borg í Úral sá ég iðjuver, sem höfðu verið flutt heil frá
Kiev og Karkov. Með þessum iðjuverum voru fluttar fjölskyldur
í þúsundum flutningabíla. Mörg hundruð stór, hálfrar þriðju hæðar
tígulsteinahús, byggð í mílnalöngum röðum, voru reist handa verka-
fólkinu á átján mánuðum. Ég hafði heyrt getið um þetta, lesið um
það, en þegar ég sá það með eigin augum, skildi ég, hve tröllaukið
starf þessi þjóð hefur unnið.
(3) Hvað Síberíu snertir, mun ég aldrei gleyma þeim áhrifum,
sem hún hafði á mig. Mörg hundruð mílna víðáttumikil flatneskja
af fögru landi, alsett trjágróðri, vötnum og hálsum og geilað hugð-
óttum ám.
Þegar ég flaug yfir þetta land í 1000 til 1500 feta hæð gafst
mér að líta geysimikil akuryrkjuhéruð. Þar voru á mörg hundruð
fermílna svæði stórir akrar, stærri en bæjarlönd vor, í mismunandi
lit gróðurtegundanna, allir sánir, og úr lofti að sjá mjög vel hirtir.
Auðlegð akuryrkjunnar fyrir austan Moskvu, í Síberíu, er svo mikil,
að hún nægir til að fæða heilt heimsveldi. Og meðfram allri strönd-
inni, sem veit að vestri vors lands, sá ég stórar borgir, borgir, sem
þotið hafa upp með hraða sprengingar, byggðar í ferhyrning eins
og borgirnar á grassléttum vorum, þéttsettar verksmiðjum, stórum
iðjuverum og gnæfandi reykháfum, borgir, þar sem íbúatalan fyrir
nokkrum árum fór ekki fram úr fáum þúsundum, nú með hundruð-
um þúsunda íbúa.
Ég sá eitt iðjuver, sem framleiddi orustuflugvélar af tegund, sem
óþekkt var í júní 1941, og verksmiðjurnar, sem smíða þær og vél-
arnar í þær voru ekki til fyrir tveimur árum.