Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Blaðsíða 113
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
223
Hverjum manni, sem gaf af fötum sínum, fannst sem hann ætti sinn hlut í
verkinu. Þeim finnst þeir allir bera ábyrgð á þessu barni. Það er þeirra, því
að hver þeirra hefur lagt því nokkuð af því, sem hans var. Ef þeir fengju
fötin aftur, væri þeim barnið óviðkomandi. Bezta aðferðin við að binda menn
í félagsskap er að láta þá leggja eitthvað af mörkum til hans. Eg er viss um,
að núna eru þeir allir hæstánægðir.“
Sagan sýnir okkur, hvernig hópur lánleysingja verður að sam-
hentum, einbeittum mönnum með aga og sjálfsvirðingu. Baráttan
er hörð. Menn þjást og láta lífið. En þjáningarnar eru sameigin-
legar eins og sigrarnir.
Ritdómari Daily Telegraph sagði: „Þetta er ein af þeim fáu vel
heppnuðu áróðursskáldsögum, sem ég hef lesið. Hún er verulega
hættuleg, af því hún er verulega læsileg. I In Dubious Battle er engu
orði ofaukið. Sagan er samanþjöppuð og rituð af hinu mesta raun-
sæi.“
Réttara hefði verið að segja, að bókin væri vel heppnaður áróður
vegna þess, að höfundinum er ekki um það hugað að rita áróður,
heldur að draga upp mynd af þeirri félagslegu baráttu, sem verk-
falli er samfara. Samúðin hlýtur auðvitað að verða með verkfalls-
mönnunum sökum erfiðleika þeirra og þess hugrekkis, er þeir sýna,
en ekki vegna neinnar stjórnmálastefnu.
In Dubious Battle er fyrsta skáldsagan, er Steinbeck ritar sem
þroskaður rithöfundur. Byrjendagallarnir eru horfnir. Mótsetningin
milli rökréttrar atburðarásar og táknrænna markmiða er leyst. Sag-
an vex fram jafneðlilega og planta af fræi sínu.
Oj Mice and Men varð vinsælli en In Dubious Battle. En að mínu
áliti mun tíminn sanna, að hún er ekki samboðin snilligáfu Stein-
becks. Þessi saga um landhungur hinna flakkandi verkamanna er
rituð af fullkominni tækni, en tilfinningasemin, sem að baki liggur,
spillir henni til muna. Lennie, risinn, sem hefur sterkar hendur, en
veikt höfuð, er hinn of einfaldi, heilagi einfeldningur. Aukapersón-
ur eins og svertinginn Crooks eru að vísu sannfærandi. Á leiksviði
getur verið, að hægt sé að gera söguna sannfærandi. Einfaldleikinn
í meðferð efnisins, sem spillir sögunni, getur lyft leiknum. En að
mínum dómi er Curley og kona hans aðeins ný útgáfa af rudda-