Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Qupperneq 114
224
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
menninu og léttúðarkvendinu, sem eru svo algengar persónur í sög-
um eldri skáldanna í vesturríkjunum.
Og nú er komið að The Grapes of Wrath. The Grapes of Wrath
hefur sömu angan og auðlegð og In Dubious Battle, en þar sem
lesandinn er áhorfandi að því, hvernig verkfall eplatínslumannanna
breiðist út, lijir liann sögu Sjódfjölskyldunnar.
Allar persónur fjölskyldunnar eru skýrt og vandlega dregnar. Afi,
sem hefur alið allan aldur sinn á sama bænum, er nú orðinn elli-
hrumur og orðljótur. Kona hans er líka orðin hrum, en trúuð.
Þá er Jón Sjód, sem missti konuna sína, af því hann hélt að jóð-
sótt hennar væri kveisa, og er alltaf að reyna að bæta fyrir
það með því að vera góður við börn. Mamma, hæglát kona, sem
allt sér og stjórnar heimili sínu með kyrrlátum hætti. Faðirinn
missir fótfestuna, þegar hann missir jörð sína, og sumpart vegna
sektarmeðvitundar gagnvart Nóa, sem er vanskapaður. Nói, elzti
sonurinn, gengur inn í sjálfan sig, og Tommi er nýsloppinn úr fang-
elsi, hefur í bræði orðið manns bani, er bardagamaður, en ekki
morðingi. Alli, næsti bróðirinn, dáist að Tomina, gerir hann að
morðingja í huga sér og dreymir um, að hann hafi brotizt út úr
fangelsi. Rósa, galin af ást til hins unga bónda síns, Konna Rívers,
og þykk undir belti. Þá eru tvö yngstu börnin, Rut og Vinfíld. Fyrir
þeim er tíminn aðeins dagurinn í dag og heimurinn aðeins það, sem
Jiau sjá umhverfis sig. Loks er gamall trúboði, Jimmi Casy að
nafni, sem prédikar helvíti og Jesú, en þegar bændurnir missa
jarðir sínar, sýður hann í vandræðum sínum nýtt fagnaðarerindi,
sem svo hljóðar: „Tveir eru betur komnir en einn, ])ví að þeir fá
gott kaup fyrir vinnu sína. Ef Jjeir falla, lyftir annar félaga sínum,
en vei þeim, sem er einn, þegar hann fellur, því að hann hefur engan
til að hjálpa sér á fætur.“
Lífsreglur fjölskyldunnar eru einfaldar. Þau mega myrða, drýgja
hór, verða drukkin, en ekki vera „ódrengileg“. Odrengskapur er að-
ferðin, ekki verknaðurinn sjálfur. Maður getur verið ódrengilega
hjálpsamur alveg eins og ódrengilega svikráður. Það er ekki hægt
að fremja neitt, sem þau kalla synd, og vera jafnframt ódrengilegur.
Og það er hægt að brjóta öll tíu boðorðin án þess að vera ódrengur.