Tímarit Máls og menningar - 01.11.1943, Blaðsíða 138
248
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
sögu helztu uppfinninga og iðnaðarframkvæmda. En vitaskuld er ekki hægt
að hafa mörg stórvirki á prjónunum samtímis, sízt á þeirn vitlausu tímum,
sem nú eru.
Virðingarfyllst,
Hallur Jóhannesson.
- MÁL OG MENNING ~
Af sparnaðarástæðum er hvert hefti Tímaritsins látið standa á heilli örk.
Þessi póstur, sem er einskonar bréf til félagsmanna, er ekki rltaður fyrr en
gengið er frá heftinu að öðru leyti, og verður þá oft að iáta rúmið ráða miklu
urn, hve ítarlegt bréfið verður. I síðasta hefti stóð svo á, að rúmið leyfði að-
eins, að birtir væru reikningar Máls og menningar, en engin skýrsla írá að-
alfundi né yfirlit yfir starf félagsins árið 1942. Nú er hins vegar svo langur
tími liðinn, að ég kann ekki við að taka upp nema fá atriði.
Félagsmannatala Máls og menningar vex stöðugt. I árbsyrjun 1939 voru fé-
lagsmenn 4000; 1940 : 5000; 1941: 5530; 1942 : 5700, og í ársbyrjun 1943 voru
félagsmenn 6200, og hafði því félagsmannatalan aukizt um 500 á árinu 1942.
Utgája jélagsins 1942 var með minnsta móti að arkatali, en kostnaður á
örk hafði nærri þrefaldazt frá árinu á undan, og sýnir þetta, að dýrtíðin
hljóp fyrst upp úr öllu valdi það ár. Eg gef aðeins samanburð tveggja ára.
Árið 1941 gaf Mál og menning út 68 arkir, og var kostnaður (prentun, bók-
band, hefting, ritlaun) á hverja örk, að meðaltali rúmar 1100 krónur. Arið
1942 gaf félagið út aðeins 45 arkir, en samsvarandi kostnaður á örk var að
meðaltali nærri 3000 kr.
Reikningar jélagsins sýna, að nokkur tekjuafgangur varð á síðasta ári bæði
af Bókabúð Máls og menningar og útgáfustarfsemi félagsins, eða samtals
rúmar 27 þús. kr. Rekstursreikning Arfs Islendinga var ekki hægt að gera
upp um áramót af þeirri ástæðu, að íslenzk menning, fyrsta bindi Arfsins,
kom svo seint út, að ekki var hægt að afhenda bókina til félagsmanna fyrir
áramót.
Áskrijendur að Arji íslendinga voru um síðustu áramót 4470, en eftir laus-
legri áætlun nú, rnunu um 7000 eintök vera seld af bókinni, og þannig langt
gengið á. upplagið.
Stjórn félagsins var endurkosin á aðalfundi, eins endurskoðendur og þeir,
sem úr félagsráði gengu.
Félagsbækur Máls og menningar í ár eru ásamt Tímaritinu fyrsta bindi af
mannkynssögu, eftir Ásgeir Hjartarson, og fyrra bindi af skáldsögunni Þrúgur
reiðinnar eftir ameríska skáldið John Steinbeck, en Stefán Bjarman befur
snúið sögunni á íslenzku.
Ég hef ekki heyrt annað en félagsmenn séu sérstaklega ánægðir með
báðar þessar bækur. Hér að framan er birtur ritdómur urn mannkynsssögu