Ægir - 01.02.2012, Qupperneq 26
26
Aflaverðmæti íslenskra skipa
nam rúmum 153 milljörðum
króna á árinu 2011 saman-
borið við tæpa 133 milljarða á
árinu 2010. Verðmætaaukn-
ingin nemur því 20,3 milljörð-
um króna eða 15,3% milli
ára. Verðmæti afla sem land-
að var til vinnslu innanlands
jókst um 17,5% milli ára, eða
úr rúmum 54 milljörðum í
tæplega 64 milljarða. Á sama
tíma var hins vegar samdrátt-
ur um tvo milljarða í útflutn-
ingi á gámafiski, eða um rúm
23%.
Á árinu 2011 sótti sjófryst-
ingin talsvert á og mælt í
verðmætum var hún nánast
við hlið innanlandsvinnslunn-
ar. Sjófrystingin nam tæplega
65,5 milljörðum króna, sem
er aukning um rúmlega 26%
milli ára.
Verðmæti botnfisks var
tæpir 96 milljarðar króna í
fyrra og jókst um 2,4% frá
fyrra ári þegar aflaverðmætið
nam tæpum 94 milljörðum.
Verðmæti þorskafla var um
46,4 milljarðar og jókst um
4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti
ýsu nam 12 milljörðum og
dróst saman um 21,3%, en
verðmæti karfaaflans nam 15
milljörðum, sem er 24,7%
aukning frá árinu 2010. Verð-
mæti ufsaaflans jókst um
7,8% milli ára í 9,1 milljarð.
Verðmæti flatfiskafla nam
10,3 milljörðum króna á árinu
2011 sem er 12,5% aukning
frá fyrra ári. Aflaverðmæti
uppsjávarafla jókst um 56,9%
milli ára og nam 43,3 millj-
örðum. Stafar sú aukning að
stærstum hluta af verðmæta-
aukningu makrílaflans, sem
nam tæpum 18 milljörðum
króna á árinu 2011 og jókst
um 10 milljarða milli ára.
Verðmæti loðnuaflans nam
8,9 milljörðum króna og jókst
um 237% á milli ára.
Verðmæti afla sem seldur
er í beinni sölu útgerða til
vinnslu innanlands nam 63,8
milljörðum króna á árinu
2011 og jókst um 17,5% frá
fyrra ári. Aflaverðmæti sjó-
frystingar var 62,5 milljarðar
sem er 26,3% aukning frá
fyrra ári. Verðmæti afla sem
keyptur er á markaði til
vinnslu innanlands nam um
19,3 milljörðum króna, sem
er 1,8% aukning milli ára.
F I S K A F L I N N
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-desember 2011
Milljónirkróna
Desember Janúar-desember Breyting frá
2010 2011 2010 2011 fyrra ári Verðmætialls 8.298,1 10.261,9 132.979,2 153.305,2 15,3
Til vinnslu innanlands 2.880,5 3.310,6 54.318,7 63.831,9 17,5
Í gáma til útflutnings 308,9 495,5 8.651,8 6.645,9 -23,2
Landað erlendis í bræðslu 6,7 0,0 92,6 145,5 57,1
Sjófryst 3.894,4 5.110,5 49.496,8 62.498,4 26,3
Á markað til vinnslu innanlands 1.180,5 1.315,6 19.008,8 19.349,4 1,8
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,9 0,0 270,9 141,7 -47,7
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 0,0 0,0 –
Fiskeldi 0,0 0,0 72,7 0,0 –
Aðrar löndunartegundir 26,2 29,7 1.066,8 692,4 -35,1
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-desember 2011
Milljónir króna
Milljónirkróna
Desember Janúar-desember Breyting frá
2010 2011 2010 2011 fyrra ári Verðmætialls 8.298,1 10.261,9 132.979,2 153.305,2 15,3
Höfuðborgarsvæði 1.975,7 3.044,9 25.005,1 31.237,3 24,9
Suðurnes 1.577,6 1.822,4 22.936,7 25.873,5 12,8
Vesturland 284,0 378,1 5.666,4 6.856,2 21,0
Vestfirðir 482,4 595,6 7.039,4 7.941,3 12,8
Norðurland vestra 655,5 898,8 9.738,4 10.311,3 5,9
Norðurland eystra 1.596,3 1.136,6 22.150,0 24.153,4 9,0
Austurland 732,6 822,5 17.523,8 20.894,9 19,2
Suðurland 678,4 1.067,4 14.279,8 19.246,1 34,8
Útlönd 315,6 495,5 8.639,7 6.791,4 -21,4
Uppsjávaraflinn verðmætur
Nákvæmnisvogir:
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
35 ára reynsla
Frá 1 upp í 3 aukastafi.
www.vibra.co.jp/global
þar finnur þú réttu vogina.
Nánari uppl. í síma 567 88 88