Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2012, Page 30

Ægir - 01.02.2012, Page 30
30 S T J Ó R N F I S K V E I Ð A „Megingrein frumvarps um stjórn fiskveiða er 1. gr. þess en hún tryggir að nytjastofnar við Ísland séu ævarandi sam- eign þjóðarinnar og að ríkið fyrir hönd þjóðarinnar ráðstafi veiðiheimildum með tiltekin markmið að leiðarljósi. Þetta orðalag tekur mið af tillögu Stjórnlagaráðs frá 2011 að frumvarpi til nýrrar stjórnar- skrár, en sú tillaga á sér ræt- ur í umræðu um auðlindamál á síðustu árum. Þannig var lagt til í skýrslu Auðlinda- nefndar frá árinu 2000 að tekið yrði upp nýtt form eign- arréttar, svonefndur þjóðar- eignarréttur, „til hliðar við hinn hefðbundna séreignar- rétt einstaklinga og lögaðila“. Þessi tillaga hefur legið til grundvallar ýmsum þeim til- lögum sem lagðar hafa verið fram á undanförnum áratug um auðlindaákvæði í stjórnar- skrá,“ segir í yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar þegar hún fylgdi á dögunum úr hlaði tveimur nýjum frumvörpum um sjávar- útvegsmál. Annars vegar er frumvarp um breytt fyrirkomu- lag við stjórn fiskveiða og hins vegar frumvarp um veiðigjöld í sjávarútvegi. Í greinargerð sjávarútvegs- ráðuneytisins segir að megin- markmið frumvarpsins um nýskipan við stjórn fiskveiða séu fimm talsins: a. Að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu fiski- stofna við Ísland. b. Að stuðla að farsælli sam- félagsþróun með hags- muni komandi kynslóða að leiðarljósi. c. Að treysta atvinnu og byggð í landinu. d. Að hámarka þjóðhagsleg- an virðisauka af sjávarauð- lindinni og tryggja þjóð- inni eðlilega auðlinda- rentu. e. Að sjávarútvegurinn sé arðsamur og búi við hag- stætt og stöðugt rekstrar- umhverfi. „Með frumvarpinu er reynt að leita jafnvægis milli þess- ara sjónarmiða en sum þeirra togast á svo sem eins og byggðasjónarmið og hrein arðsemissjónarmið. Grund- vallarsjónarmiðið um sjálf- bæra nýtingu auðlindarinnar er óumdeilt. Frumvarpið gerir ráð fyrir að núverandi hand- hafar aflaheimilda fái stærstan hluta aflaheimilda í þeim teg- undum sem hafa verið settar í aflahlutdeild (kvótasettar) í formi nýtingarleyfa sem ákveðnar kvaðir eru á. Nýt- ingarleyfin eru í fullu sam- ræmi við tillögur þingmanna- nefndarinnar sem og ráð- herranefndarinnar um ráð- stöfun aflaheimilda. Móttaka nýtingarleyfanna felur í sér ígildi samkomulags milli handhafanna og ríkisins,“ segir í greinargerðinni. Upphafsnýtingarleyfi til 20 ára Aflahlutdeildum verður sam- kvæmt þessari nýskipan skipt í tvo flokka, þ.e.: flokk 1; nýtingarleyfi til útgerða og flokk 2; til ríkisins. Til verður nýr leigupottur ríkisins sem selur aflamark (leigir) reglu- bundið á markaði, kvóta- þingi, yfir fiskveiðiárið. Mark- miðið með þessari aðgerð er í greinargerðinni sagt vera að til verði virkur markaður með Frumvörp um breytingar á sjávarútvegsmálum komin fram: Veiðigjöld hækkuð verulega og pottar stækka

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.