Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2012, Blaðsíða 35

Ægir - 01.02.2012, Blaðsíða 35
35 F I S K V I N N S L A N að skera beingarð í þorski og ýsu. Grunnurinn að þessum búnaði er röntgensjón í há- upplausn og er miðað við að með þessari tækni verði unnt að ná 2-3% meiri nýtingu í flökun. Verkefnið er þegar hafið í samstarfi við Samherja, Norway Seafood og norska rannsóknarfyrirtækið SINTEF. „Samhliða þessu höfum við sett á fót rannsóknateymi sem hefur að markmiði að rannsaka hvað veldur því að bein í þorski eru jafn föst og raun ber vitni og finna leiðir til að hafa áhrif á þessa festu. Þegar vitneskja um þetta at- riði liggur fyrir er ætlunin að ráðast í þróun á sjálvirkum búnaði til að fjarlægja beinin án þess að þau séu skorin í burtu. Takist þetta erum við að tala um grunn að algjör- lega nýju landslagi í vinnslu á bolfiski frá því sem við þekkj- um í dag. Nýting getur með þessu aukist um 5-9%, sem jafngildir nokkrum milljörðum króna á núvirði. Með því að beinhreinsa flökin á þennan hátt eru opnaðir nýir mögu- leikar í bitaskurði og margt fleira. Við getum orðað það þannig að nýjungin í áherslu okkar núna sé að fara inn í flakið og skoða hvað gerist þar og hvernig við getum þróað okkar búnað út frá því,“ segir Kristján en vegna þessa verkefnis hefur Marel fjölgað starfsfólki í vörurþró- un og rannsóknarvinnu. Krist- ján segir að gera verði grein- armun á þessum tveimur sviðum og í raun megi segja að rannsóknarvinnan sé grundvöllur fyrir þróunarstarf- inu – tæknilegu útfærslunni á vélbúnaðinum. Íslensk fiskvinnsla verði í tæknilegum fararbroddi Rannsóknarteymið sem Krist- ján vísar til er einsdæmi með- al vélbúnaðarframleiðenda. Kristján bindur miklar vonir við starf þess. „Rannsókna- teymi okkar samanstendur af starfsfólki með þekkingu á líf- fræði, matvælavinnslu, reynslu af iðnaðarframleiðslu og svo framvegis. Teymið mun vinna náið með rann- sóknastofnunum á borð við Matís hér á landi og Nofima og Sintef í Noregi en við vit- um af miklum áhuga Norð- manna á þessari þróun. Við viljum leggja okkar lóð á vog- arskálarnar, líkt og oft áður, til að íslensk fiskvinnsla taki enn á ný forystu og treysti sig í sessi í samkeppninni. Mark- aðurinn hefur miklar vænting- ar til okkar þróunarstarfs og við ætlum okkur að standa undir þeim. Enda sta´um við af langari reynslu af því að vinna náið með íslenskum Þegar ný tækni við beinhreinsun hefur litið dagsins ljós opnast nýir möguleikar í bitavinnslu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.