Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2012, Qupperneq 39

Ægir - 01.02.2012, Qupperneq 39
39 F I S K V I N N S L A N ræða alsjálfvirka vinnslulínu frá móttöku hráefnis til pökk- unar afurða á bretti. Starfs- menn annast stjórnun og eft- irlit en kerfið flokkar fiskinn eftir stærð, sendir hann ýmist áfram heilan í frystingu eða í frekari vinnslu áður en hann er frystur. Afurðirnar geta þannig verið ýmist heill fisk- ur, hausaður, hausaður og slógdreginn eða flök. Í síðari hluta vinnslurásarinnar eru afurðirnar vittaðar sjálfvirkt í skömmturum áður en þær fara í poka og síðan í sér- hannaða plastbakka sem fær- ast í sjálfvirka frystiskápa. Sjálfvirkni tekur síðan bakk- ana úr frystunum og færir í lokavinnsluna, þ.e. röðun í kassa og á endanum er sjálf- virk stöflun á vörubretti. Svarar til 200 ársverka Umfangs verkefnisins er mik- ið hér á landi og nú strax eft- ir páska hefst vinna af fullum þunga við búnaðinn í verk- smiðjunni á Suðurey. Hér landi koma mörg fyrirtæki að verkefninu sem undirverktak- ar og sem dæmi má nefna að rafiðnaðarfyrirtækið Straum- nes á Akranesi er undirverk- taki hjá Skaganum, sama er að segja um rafiðnaðarfyrir- tækið Rafeyri á Akureyri hjá Kælismiðjunni Frosti. Þá má nefna blikksmiðjur á Akra- nesi, vélsmiðjur á Akranesi, Ísafirði og Siglufirði, galvan- húðun á Akureyri og þannig mætti áfram telja. Með öðrum orðum koma fyrirtæki í flest- um landsfjórðungum að verkefninu og það í heild metið til 200 ársverka. Ingólfur Árnason, fram- kvæmdastjóri Skagans hf., segir fyrirtækið hafa hannað og framleitt margar af þeim vinnslulausnum sem er að finna í íslenskum fisk- vinnslum. Á þann hátt megi segja að aðdragandinn að þessu stóra verkefni í Færeyj- um sé langur og byggist í raun á samstarfi við bæði ís- lensk sjávarútvegsfyrirtæki og önnur þjónustufyrirtæki í sjávarútvegslausnum, saman- ber samstarfið við Kælismiðj- una Frost. Ingólfur segir Skagann hafa tekið mikla áhættu með fjárfestingu í ítölsku plötufrystaverksmiðj- unni mitt í bankahruni. Þá- verandi iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, hafi gefið fyrirheit um mögulegan stuðning við framtakið úr sjóðakerfi hér heima en það hafi aldrei gengið eftir. Lykil- atriði hafi síðan verið þegar Síldarvinnslan keypti fyrsta plötufrystinn. Þar með hafi hjólin farið að snúast en segja má að vinnslan í Nes- kaupstað sé fyrirmynd þeirrar línu sem verður sett upp í Færeyjum. Uppsetning í Færeyjum á fulla ferð Gunnar Larsen, fram- kvæmdastjóri Kælismiðjunnar Frosts segir frystikerfið í Fær- eyjum það stærsta sem Frost hafi sett upp hingað til. Strax í kjölfar undirritunar samn- ings hófst undirbúningur verkefnisins í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Akureyri en auk þess að selja búnað og uppsetningu smíða starfs- menn Frosts ýmsa hluta kerf- isins hér á landi. Frá páskum reiknar Gunnar með að 25-30 starfsmenn verði á vegum Frosts ytra en ætlunin er að ljúka uppsetningu verksmiðj- unnar í júlí. Þá verða aðeins fjórir mánuðir frá undirritun samnings. „Grunnurinn að þessu er vinnslulína og plötufrystar Skagans en fyrirtækin tvö hafa lengi átt samstarf verk- efnum fyrir íslenskan sjávar- útveg,“ segir Gunnar og svar- ar því aðspurður að nokkur atriði ráði mestu um að fær- eyska fyrirtækið valdi ís- lenskan búnað umfram ann- an. „Þetta er sjálfvirkasta lausnin sem fæst í heiminum í dag, hún er afkastamikil en skilar jafnframt mjög miklum raforkusparnaði miðað við hefðbundna blástursfrystingu. Þar erum við að tala um sem nemur um 1100 þúsund króna sparnað á sólarhring miðað við orkuverð í Færeyj- um, samanborið við blásturs- frystinguna. Það munar um minna,“ segir Gunnar en Skaginn og Frost hafa hug á að kynna þessa vinnslulausn enn frekar á erlendum mark- aði á næstunni. Ekki hvað síst er horft til Noregs í þeim efnum en Gunnar segir vinnslulínuna einnig eiga fullt erindi í t.d. stórar kjöt- vinnslur. Fyrirmynd línunnar í Færeyjum er í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þar sem settir hafa verið upp plötufrystar frá Skaganum. Hér er Jón Gunnar Sigurjónsson, versmiðjustjóri í fiskiðjuveri SVN fyrir framan pokavélarnar. Afurðirnar komnar í poka og fara þaðan í plötufrystana.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.