Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 6
4
Ísmar ehf . hefur veitt sjávarútveginum
farsæla þjónustu allt frá stofnun árið
1982 . Í dag eru starfsmenn fyrirtækisins
8 og eru þeir allir með margra ára og
áratuga reynslu af þjónustu við
sjávarútveginn og einnig við fyrirtæki í
framkvæmdageiranum sem Ísmar hefur
þjónað með hátæknibúnaði um langt
skeið .
Ísmar hefur frá upphafi verið frum-
kvöðull í að kynna nýja tækni fyrir við-
skiptavinum sínum . Nýjasta og um leið
ein athyglisverðasta tækninýjungin frá
Ísmar var kynnt fyrir fyrirtækjum í
sjávarútvegi nýlega en það eru
hitamyndavélar eða hitasjár, sem gera
skipstjórnarmönnum kleift að sjá jafn vel
á nóttu sem degi . Þessi tækni nýtist
bæði sem viðbótar siglingatæki og sem
öryggis- og leitartæki . Þá hafa
hitamyndavélar einnig verið notaðar í
fyrirbyggjandi viðhaldi til að sjá fyrir bil-
anir í gírum, mótorum eða rafmagns-
búnaði í vélarrúmi og annars staðar um
borð . Hitamyndavélarnar sem Ísmar
býður eru frá frumkvöðli þessarar tækni í
heiminum en það er bandaríska fyrir-
tækið FLIR . Þessari nýju tækni hefur
verið vel tekið af íslenskum sjómönnum
og er þessi búnaður þegar kominn í
nokkur skip hérlendis eins og til dæmis
rannsóknaskipið Árna Friðriksson og
varðskipið Ægi . „Hitamyndavélarnar
hafa reynst gríðarlega vel og notagildi
þeirra er mikið . Þess vegna er ég fullviss
um að þessi búnaður verður komin um
borð í flest skip flotans innan fárra ára,“
segir Jón Tryggvi Helgason,
framkvæmdastjóri Ísmar .
Af öðrum lausnum sem Ísmar hefur á
boðstólum fyrir sjávarútveg má nefna
sjálfvirkan tilkynningaskyldubúnað (AIS)
frá þekktum framleiðendum eins og
SAAB Transpondertech og TrueHeading
í Svíþjóð auk ýmissa lausna til nota við
uppsetningu tækja frá Scanstrut . Þá er
Ísmar með umboð fyrir Streamlight sem
framleiðir ýmiss konar leitarljós og vasa-
ljós fyrir atvinnufólk á sjó og landi .
Jón Tryggvi segir að flest fyrirtæki í
verktaka- og byggingariðnaði hafi verið
viðskiptavinir Ísmar til fjölda ára enda
býður fyrirtækið margvíslegan há-
tæknibúnað sem notaður er bæði til sjós
og lands . Þannig hefur búnaðurinn frá
Ísmar um margra ára skeið komið við
sögu allra helstu framkvæmda hérlendis,
hvort sem það eru hafnarframkvæmdir,
dýpkanir, gerð varnargarða eða bygging
vega og virkjana . „Við erum með umboð
fyrir Trimble sem er stærsti og virtasti
framleiðandi staðsetningar- og
nákvæmnisbúnaðar fyrir framkvæmda-
geirann í heiminum og höfum átt gott og
farsælt samstarf við það fyrirtæki allt frá
árinu 1986,“ segir Jón Tryggvi . Hann
bætir því við að þau tvö GPS leiðrétt-
ingakerfi sem rekin eru á Íslandi eru
bæði frá Ísmar og Trimble og er annað
þeirra í rekstri og eigu Ísmar .
Á sjávarútvegssýningunni mun Ísmar
sýna búnað frá þeim fjölmörgu fram-
leiðendum sem fyrirtækið er með
umboð fyrir og á sýningarbás Ísmar
munu gestir geta prófað mismunandi
gerðir af hitamyndavélum og hitasjám,
AIS búnað hvort heldur er class-A eða B,
hugbúnað og tækjabúnað til nota við
hafnarframkvæmdir auk ýmiss konar
ljósabúnaðar .
Ísmar ehf.
Síðumúla 28
108 Reykjavík
Sími 510 5100
www.ismar.is
EX
PO
Síðumúla 28 – 108 Reykjavík – Sími: 5105100 – Tölvupóstfang: ismar@ismar.is – www.ismar.is
FLIR Hitamyndavélar og hitasjónaukar frá frumkvöðli sem þróaði þessa tækni.
Frábær viðbót við hefðbundin siglingatæki. Auðveldara er að finna baujur,
sjá strandlínu, ísjaka o.fl. og auka þar með öryggi á siglingu verulega.
Hitaskynjun sér jafn vel í birtu eða myrkri og hentar því mjög vel
til leitar og björgunar.
Ekki lengur þörf fyrir ljóskastara. Geta tengst ratsjá.
Bylting í öryggi og þægindum fyrir sjófarendur.
Breyttu nótt í dag
Sex af átta samhentum starfsmönnum Ísmar hampa hitamyndavélinni sem Jón Tryggvi telur
að verði komin í flest íslensk skip innan fárra ára .
Hitamyndavélar verða
komnar í flest skip
innan fárra ára
Hitamyndavélarnar frá Ísmar eru framleidd-
ar af bandaríska fyrirtækinu FLIR sem er
frumkvöðull þessarar tækni á heimsvísu .