Ægir - 01.08.2011, Side 14
12
Samskip hafa byggt upp heildar-
þjónustu bæði heima og erlendis á sviði
flutninga, vörustýringar og vöru-
meðhöndlunar þar sem þjónusta við
sjávarútveginn er þungamiðja starf-
seminnar . Félagið býður útflytjendum
heildarlausnir í flutningum þar sem tekið
er við vörum við dyr sendanda hér
heima og þeim skilað að dyrum
móttakanda erlendis .
„Flutningar í tengslum við makríl-
ævintýrið í sumar er nýjasta viðbótin í
þjónustunni hjá okkur,“ segir Gunnar
Kvaran, forstöðumaður útflutnings hjá
Samskipum . „Þetta var sannkölluð vertíð
og mikil stemmning því úthlutað var 150
þúsund tonnum af makríl og þar af 35
þúsund tonnum til frystiskipa . Við sáum
um útflutninginn fyrir fjölmargar útgerðir,
bæði með frystiskipum inn á markað í
Eystrasaltslöndunum og í Rússlandi og
með vikulegum Evrópusiglingum okkar
frá Reykjavík með viðkomu í Vest-
mannaeyjum og Immingham á Bret-
landseyjum .“
Góður undirbúningur skiptir sköpum
Gunnar er ánægður með hlutdeild Sam-
skipa í makrílvertíðinni . „Við leystum úr
vanda margra á þessum 6-8 vikum sem
vertíðin stóð yfir í júlí og ágúst og vil ég
ekki síst þakka það góðum undir-
búningi . Við sáum teikn á lofti um hvað
væri framundan og undirbjuggum okkur
vel með viðskiptavinum okkar . Þannig
vissum við nákvæmlega hvað við
hefðum mikið af lausum gámum til-
tækum í þessa flutninga og fyrir vikið
rann það magn, sem við vorum búin að
skuldbinda okkur til að flytja, vel í
gegnum kerfið hjá okkur,“ segir Gunnar
og bætir við að sumpart hafi tíma-
setningin líka hjálpað til . „Sumarið er
oftast rólegur tími í útflutningi og því
visst svigrúm en þá eru líka margir í
sumarfríi og því var pressan mikil á þá
sem voru að vinna í þessari törn,“ segir
Gunnar . Það hafi ekki komið að sök því
mannskapurinn hjá Samskipum sé
þrautþjálfaður og vanur að fást við
svona aðstæður . „Okkur gekk vel að
sinna þeim viðskiptavinum sem áttu
pantaðan flutning og jafnframt reyndum
við að leysa úr vanda hinna sem leituðu
til okkar með skömmum fyrirvara . Á
sama tíma var einnig mikið um landanir
úthafstogara þannig að á tímabili voru
allar geymslur fullar og því talsvert
púsluspil að útvega viðbótargeymslu-
pláss, en allt gekk þetta upp að lokum .“
Vöxtur á ný í útflutningi bolfisks
Makrílvertíðin í sumar var mikil búbót
fyrir útgerðirnar sem fengu úthlutað
veiðiheimildum og var hún mun stærri
en loðnuvertíðar undanfarinna ára . „Ég
get ekki ímyndað mér annað en að það
verði enn frekari aukning á næsta ári þó
svo það sé ekki komin úthlutun ennþá,“
segir Gunnar . Það liggi hins vegar fyrir
5% aukning í bolfiski á nýbyrjuðu fisk-
veiðiári, aðallega í þorski og karfa, og
Samskip séu að endurskoða sínar
flutningaáætlanir . „Við erum að reikna
með því að makrílvertíðin sé komin til
að vera og hún væri þá að bæta okkur
upp hvarf kolmunnans fyrir tveimur
árum . Við fengum góða reynslu í
makrílnum í sumar og aðeins í fyrra-
sumar og því betri skipulagning því betri
þjónusta þó við reynum að sjálfsögðu
ávallt að bregðast við flutningaóskum
sem upp koma með stuttum fyrirvara .
Lykilatriðið er bara að við eigum
flutningapláss, ef það er ekki til staðar
er lítið hægt að gera!“
Gunnar segir útflutning sjávarafurða
eðlilega fylgja kvótaúthlutuninni . Sam-
Samskip
Kjalarvogur 7-15
104 Reykjavík
Sími 458 8000
www.samskip.is
Það er í mörg horn að líta hjá Gunnari Kvaran, forstöðumanni útflutnings hjá Samskipum,
sem fylgist hér með útskipun á gámum á athafnasvæði félagsins í Sundahöfn .
Þjónusta við sjávarút-
veginn þungamiðjan
í starfsemi Samskipa