Ægir - 01.08.2011, Síða 15
13
dráttur hafi verið í bolfiskinum sl . tvö ár
en nú sé hann að aukast á ný . „Við
höfum haldið ágætlega sjó í sam-
keppninni og heldur bætt okkar
markaðshlutdeild,“ segir Gunnar en
bætir við að það sé hins vegar
áhyggjuefni hversu mikið hefur dregið
úr útflutningi á heilum ferskum fiski inn á
Bretlandsmarkað í kjölfar skerðingar-
ákvæða sem sett voru . „Það er auðvitað
grátlegt að sjá hvernig er vegið að
þessum eina vöruflokki . Fyrir vikið erum
við að missa sérstöðuna sem við
höfðum á Bretlandsmarkaði og í staðinn
flæðir nú Noregsfiskur þarna inn . Á móti
kemur hins vegar að nýir markaðir hafa
opnast í Frakklandi og á meginlandinu
fyrir unnin ferskfisk, hnakka og svoleiðis
varning, þannig að það sem datt út í
heila ferska fiskinum er að koma inn í
öðrum vöruflokkum, þ .á .m . í saltfiski og
að einhverju marki líka í frystum fiski,“
segir Gunnar og áréttar að þar standi
Samskip sterkt í dreifingunni gegnum
skrifstofu félagsins í Immingham .
Góð nýting á siglingakerfinu
Vel hefur gengið að nýta siglingakerfi
Samskipa sem stokkað var upp í kjölfar
efnahagshrunsins en félagið býður upp
á vikulegar ferðir frá Reykjavík og Vest-
mannaeyjum og á níu daga fresti frá
Reyðarfirði fyrir Austurlandið . „Það er
bara áskorun fyrir okkur að fylla skipin til
að tryggja sem besta nýtingu . Þar hefur
fiskur forgang en auðvitað er það
töluvert púsluspil að fá þetta til að
ganga upp . Viðskiptavinahópur Sam-
skipa er hins vegar mjög traustur og
góður og framtíðin sker svo úr um það
hvenær er tímabært að stækka kerfið
enn frekar . Það er að heyra að ýmislegt
gæti verið í pípunum; frekari stóriðja,
ýmiskonar fiskeldi sem krefst út-
flutnings, sem og aukning í ýmsum
öðrum afurðum, t .d . lamba kjötinu okkar
góða . Gleymum ekki vatninu, þar eru
menn að spá og spekúlera og mikið um
fyrirspurnir en svona heilt á litið er þetta
bara búin að vera nokkuð bærileg tíð í
útflutningnum undanfarin ár,“ eru loka-
orð Gunnars Kvaran, forstöðumanns út-
flutnings hjá Samskipum .
Ísheimar, frystigeymsla Samskipa í Sundahöfn, var í lykilhlutverki á nýafstaðinni makrílvertíð og þar var oft handagangur í öskjunni þær 6-8
vikur sem vertíðin stóð yfir . Myndir: Samskip/Kristján Maack .
Arnarfell og Helgafell eru með vikulegar ferðir milli Íslands og Evrópu og þriðja skip
Samskipa fer á níu daga fresti frá Reyðarfirði .